Dagblaðið - 11.06.1981, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981.
f
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
[ BJARNASON
Eiturefni ígörðum:
Ekki sannað aó eitrið
valdi lakkskemmdum
Vantarábyrgan aðila
íþjóðfélaginu til þess að
rannsaka áhrif eiturefnisins,
segir Brandur Gíslason
garðyrkjumaður, sem unnið
hefur við garðaúðun í átta ár
„Þaö er alls ekki sannað að eitur-
efnið, sem notaö er til þess að úða
með garða, eyðileggi lakk á bilum.
Lakkskemmdir geta átt sér margar
orsakir eins og t.d. ef lökkun er rang-
lega undirbúin, eöa jafnvel billinn er
bónaður í sólskini. Viðmælandi DB á
neytendasíðunni 5. júní sl. er því að
fara með staðlausa stafi, þegar hann
fullyrðir að lakkskemmdir á bil hans
stafi af eiturúðun,” sagði Brandur
Gíslason, garðyrkjumaður, sem
rekur fyrirtækið Úöi. Eins og nafnið
bendir til sér fyrirtækið um að eitur-
úða garða borgarbúa. Brandur hefur
unnið við garðaúðun 1 sl. átta ár.
,,Það er hvergi tekið fram á um-
búðum eiturefnisins að það eyðileggi
bílalakk. Það hefur aldrei verið
minnzt á það hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna, sem flýtur efni þetta til
landsins, að það skemmi bílalakk. —
Það vantar hins vegar einhvern
ábyrgan aðila til þess að rannsaka
hvort eitrið skemmir lakk á bílum. Ef
svo reynist ætti tafarlaust að banna
notkun þessa eiturefnis hér á landi.
Gríðarlega háar fjárupphæðir eru i
húfi,” sagði Brandur.
Brandur sagði einnig að fyrirtæki
hans ætti tvo bíla sem notaðir eru við
starfsemina. Eins og nærri má geta
hefur eiturefnið oft farið á bílana, en
ekki hefur borið á lakkskemmdum á
þeim. — Hins vegar sagði Brandur,
að starfsmenn fyrirtækisins hefðu
jafnan meðferðis brúsa með hreinu
vatni. Ef eiturefnið fer á bíla er það
samstundis skolað af. —
í því tilfelli er rætt var um í DB 5.
júni var eitrið sem sprautaðist á bíl-
inn skolað af samstundis. Var það
varla lengur á bílnum en i um það bil
fimm mínútur.
Varúðin aðallega
vegna barnanna
Eftir að garðar hafa verið úðaðir er
þeim lokað allt upp í vikutíma. Hins
vegar er fullorðnu fólki óhætt að
sinna venjulegum störfum í garöin-
um. Þær ströngu varúðarráðstafanir
sem settar eru eiga aðallega við börn,
sem eiga til að setja það sem á vegi
þeirra verður upp í sig. — Brandur
sagði að fyrirtæki hans væri með tvo
bíla og fimm manns i hverjum bíl.
Tveir þeirra líta eftir að ekkert laus-
legt sé í görðunum eins og t.d. leik-
föngogannað slíkt.
-A.Bj.
Meira fyrir mánaðarlaunin:
Lýs, maðkur og önnur óværa sem herjar á tré garðeigenda lcggst ekki jatn hart á
allar trjátegundir. Hinn bráðfallegi brekkuvíðir virðist sérlega vinsæll hjá trjá-
maðki. Hins vegar hafa garðyrkjumenn sagt okkur á ncytcndasiðunni að óværa
sæki mun síður á heilbrigðar plöntur sem vcl er hugsað um. —
DB-mvnd Hörður.
Nýja heimilisdag-
bókin um næstu
Bókin góða bera nafnið „HeimUis-
bókhaldið þitt” og eru einkunnarorð
hennar „Meira fyrir mánaðarlaun-
in”. Þau hafa einnig verið einkunn-
arorð neytendasiðunnar þau þrjú ár
sem hún hefur verið svo að segja dag-
lega í Dagblaðinu. Bókin verður send
til áskrifenda Dagblaðsins þeim að
kostnaðarlausu. Þar aö auki fá kaup-
endur Vikunnar einnig þessa ágætu
bók. Nýtt veggspjald er einnig vænt-
anlegt fyrir júnílok.
Það ætti því ekki að vera neinn
vandi að fylgjast með því í hvað pen-
ingunum er eytt, — eða að spara við
sig á ákveðnum sviðum, í framtið-
inni.
-A.Bj.
mánaðamót
Það hefur víst ekki farið framhjá
lesendum neytendasíöunnar að við
erum „að biða eftir” heimilisdag-
bókinni okkar. Hún sér væntanlega
dagsins ljós fyrir mánaöamótin
júnf/júlí. Þessa dagana er verið að
leggja slðustu hönd á þessa merku
bók.
Sundurliðað
heimilisbókhald
í bókinni eru hentugir dálkar fyrir
dagleg útgjöld heimilisins. Þar er
einnig að finna uppgjörsdálka fyrir
vikuna, mánuðinn, hálft ár og að
sjálfsögðu heiltár.
Hægt er að færa sundurliðað
heimilisbókhald ef fólk vill, t.d. með
þvi að fylgjast náið með hverju er
eytt í „sjoppunni”, eða í lyf, eða á
veitingahúsum, i „rikinu” o.s.frv.
Eða þá í einhverja ákveðna matarteg-
und, eins og t.d. hverju er eytt í
kaffi, te, brauð, eða hvaðeina sem
keypter.
UpplýsingaseöiU
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvers vegna heimilisbókhald?
, ,Kæra neytendasíða!
Ég hef lengi ætlað að senda þér
upplýsingaseöil í heimilisbókhaldinu
og læt nú loksins verða af þvi. Ég hef
haldið bókhald í rúmlega ár,” segir
m.a. í bréfi frá húsmóður sem búsett
er áSuðurlandi.
„Þar sem ég bý úti á landi og fer
ekki í búðir nema þrisvar i mánuði,
kaupi ég fyrir mikið í hvert sinn.
Mjólkina fæ ég senda heim og greiði
mánaöarlega.
Hvernig reiknið þið út meðaltal-
ið?”
Þessi „sveitakona” biður okkur að
birta ekki nafn hennar og virðum við
þaðaðsjálfsögðu.
Meðaltalið reiknum við út á þann
hátt að við deilum með tölu heimilis-
manna í þá upphæð sem farið hefur í
mat og hreinlætisvörur yfir mánuð-
inn. Sú tala er síðan færð í ákveðinn
dálk með samsvarandi tölum frá
öðrum fjölskyldum af sömu stærð.
Loks eru dálkarnir lagðir saman og
deilt (með fjölda seðla frá hverri fjöl-
skyldustærö. Þannig er fundið út
meðaltal hverrar fjölskyldustærðar
fyrir sig.
Þá færum við einnig bókhald fyrir
alla staði sem við fáum upplýsinga-
seðla frá. Við getum tekið dæmi af
t.d. Reykjavík. Meðaltal hverrar fjöl-
Raddir
heytenda
skyldu frá Reykjavik er fært inn í
mánaðardálk. Meðaltalið er síðan
fundið með því að deila með tölu
þeirra sem sendu inn seðla hverju
sinni í samanlagða töluna.
Upplýsingaseölar berast yfirleitt
frá rúmlega þrjátfu stöðum og gefur
þvi auga leið að frá mörgum berast
ekki nema einn eða tveir seðlar. Varla
getur þvi verið um marktækt meðal-
tal að ræða frá þeim stöðum. Þetta
„meðaltal” okkar frá hinúm ýmsu
stöðum er því birt meira til gamans
fyrir þá sem þar búa. Þeir geta þá
borið sig saman við aðra á sama stað
eöa á nálægum stöðum, heldur en að
þar sé um að ræða vísindalega úttekt
á þvi hver framfærsluvisitala er á
stöðunum.
Við' höfum fengið fyrirspurnir um
hvers vegna við erum að „standa i
þessu heimilisbókhaldi”. Þvi er fljót-
svarað. Við teljum að af heimilisbók-
haldinu sé spamaður. Okkur finnst
einnig að hjálpa eigi fólki til þess að
„borða ekki upp” öll launin sin. Við
teljum einnig að með því að gera sér
grein fyrir því hve miklu þarf að eyða
i mat sé frekar hægt að gera áætlanir
fyrir framtíðina. -A.BJ.I
| Hvað kostar heimilishaldið?
I Vinsamlega scndió okkur þennan svarseðil. Þannig cruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamjðlun mcðal almennings um hvert sé mcðaltal hcimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu stærð og ,vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
I tæki.
1 Nafn áskrifanda
l-------------------------------------;-----------
| Heimili_________________________________________
i
i Sími
\-------------------------------------------
l
I Fjöldi heimilisfólks —,—
i
1 Kostnaður í maímánuði 1981
i
i----------------------------
i Matur og hreinlætisvörur kr.--------------------
i Annaö
i
\m
kr_______1
i
Alls kr. , i
IÍKLV i