Dagblaðið - 11.06.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Gaddafi
vill fá
fiiðar-
verðlaunin
Nafn Gaddafi Libýuforseta er oft í
fréttunum, enda er maðurinn fyrir
það gefinn að vera í sviðsljósinu. Nú
siðast komst hann á siður heimspress-
unnar, er hann stakk upp á sjálfum
sér sem næsta nóbelsfriðarverðlauna-
hafa.
„Libýa hefur komið á friði og
öryggi í Chad og verðskuldar friðar-
verðlaunin fyrir,” sagði Gaddafi í
ræðu, sem hann hélt í Ndjamena,
höfuöborg Chad.
Þá sagði Gaddafi að Einingarsam-
tök Afríku ættu að greiða kostnaðinn
við dvöl herliðs Libýu í Chad. Að
síðustu fór Gaddafi fram á það að
Libýa fengi greiddar skaðabætur
vegna innrásarinnar í Chad í desem-
berí fyrra.
Metvinn-
ingur á
spila-
kassa
Vist getur hann Jack Leighton frá
Huntington Beach í Kaliforniu brosað
út að eyrum, Hann hefur nefnilega
unnið stærsta vinning, sem nokkurn
tima hefur unnizt á spilakassa, litla
360.000 Bandarikjadali eða jafnvirði
rúmlega 2,6 milljóna króna. Leight-
on var aö spila i kassa á Flamingo Hilt-
on hótelinu, þegar lukkuhjóUð tók
skyndilega að snúast og peningar
flæddu úr vélinni. Sennilega verður bið
á að einhver fslendingur hrósi álika
happi af viðskiptum sínum við islenzku
spilakassana.
FÓLK
Silvia /eiðbeindi nemendunum við
föndrið....
Drottningin settist
við kennarapúltið
. oglét sig ekki muna um að teikna listaverk á töfluna.
Nemendur grunnskólans I Norrtálje
við Stokkhólm voru himinlifandi yfir
nýja kennaranum sem þeir fengu um
daginn. Engin önnur en SUvia Svla-
drottning kom í skólann og kenndi
börnunum í nokkra tima.
Verið var að vigja hinn nýja skóla,
sem bæði er fyrir fötluð böm og heU-
brigð, og kennsla Silviu var liður í opn-
unarhátiöinni. Drottningin sagði sögur
og teiknaði á töfluna og átti ekki I
neinum vandræðum með að halda at-
hygU nemendanna.
Áður en Silvia sneri aftur heim I höll
sina, spjallaöi hún við krakkana og
gerðu þau viðtöl mikla lukku.
Skemmtu bæði drottingin og börnin sér
hiðbezta.
Merkur hagfræðingur fallinn
í valinn
Hinn þekkti hagfræðiprófessor
Barbara Ward andaðist fyrir
skömmu á heimili sínu i Sussex 1
Bretlandi. Hún var 67 ára gömul.
Barbara Ward var kunn fyrir af-
skipti sín af umhverfisvernd en hún
var framarlega í flokki á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um umhverfis-
mál, sem haldin var I Stokkhólmi.
Þá lét Barbara mjög tU sin taka I
málum er vörðuðu málefni þriðja
heimsins, auk þess sem hún hvatti til
skynsamlegrar notkunar orkulinda
jarðar.
Það var þó á sviði hagfræðinnar
sem Barbara gat sér beztan orðstir.
Hún hlaut viðurkenningar frá fjöl-
mörgum háskólum I Bandaríkjunum
og var m.a. gestaprófessor við Har-
vard háskóla.
Fall löggunnar vakti lukku
Það er ekki alltaf tekið út með sæld-
inni að klæðast lögreglubúningi. Það
fékk lögreglumaðurinn á myndinni að
reyna nýlega. Knattspyrnulið frá Róm
var að etja kappi við nágranna sína, er
áhorfandi nokkur tók sig til og æddi
inn á vöUinn. Svo sem reglur mæla
fyrir um reyndi lögreglumaðurinn að
hafa hendur i hári áhorfandans, en
tókst þó ekki betur tU en svo að hann
rak tána i grassvörðinn og steyptist á
höfuðið. Áhorfendur ráku upp gleðióp
við falUð, afbrotamaðurinn slapp en
lögreglan sat eftir með sárt ennið.
Grieg inn
á hvert
heimili
MikUl áhugi virðist vera á hinni
„týndu” sinfóníu norska tónskálds-
ins Grieg, sem frumflutt var i Bergen
fyrir skömmu. Hljómplötuútgáfu-
fyrirtækið Polygram sem gefur plöt-
una út á Norðurlöndum hefur þegar
ákveðið aö stækka upplag hennar um
5.000 eintök, en upphaflega átti plat-
an að koma út 17.000 eintökum.
Utan Norðurlanda sér brezka fyrir-
tækiö Decca um útgáfu plötunnar og
átti sinfónian að koma út I 50.000
eintökum tU að byrja með. Forráða-
menn þess fyrirtækis hafa einnig
ákveðið að auka upplag sitt, því vist
er að margir vUja hlýða á sinfóniuna.
Nýr ávöxtur frá ísrael:
Eldsúr og
digur
ísraelsmenn hafa hafið framleiðslu
á nýjum súrum ávexti, sem kaUaður
er Pomelo. Pomelo er digur sem fót-
bolti og á bragðið ekki ósvipaður
greip.
Ávöxturinn er ákaflega vítaminrík-
ur og þykir fyrirtaks forréttur eða
ábætir. Hann er borinn fram í heUu
lagi, gjarnan skreyttur með öðrum
minni ávöxtum, og þegar hann er
snæddur, er hann skorinn í báta. í
Noregi er Pomelo þegar kominn á
markaðinn og verða því nýjunga-
gjarnir sælkerar að elta ávöxtinn
þangað, því ekki er Pomelo á boð-
stólum héráFróni.
Klippti fólk og
snyrti í 350
tíma samfleytt
Hvfldu þig, hvUd er góð, eru orð sem
vissulega eiga við um rakarann Pierre
Oritz frá Huntington Beach í Kali-
forniu. Oritz þessi setti um daginn nýtt
met I að klippa fólk og snyrta. í 350
klukkustundir stóð Oritz við stól sinn
og bætti þar með gamla metið um tæpa
niu tíma. Það var sett I Dover á Eng-
landi og var 341 klukkustund og 58
sekúndur. Lögum samkvæmt mátti
Oritz sofa tvær klukkustundir á sólar-
hring, en eflaust hefur hann sofið mun
lengur, þegar töminni lauk.