Dagblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981.
31
C
Utvarp
Sjónvarp
D
IKÝRHAUSNUM - útvarp kl. 22,35:
Empire State og aspirín,
hamborgarar og gervitennur
— ekki verður ofsagt að allt á sér sína sögu
Venju samkvæmt veröur sín ögnin af
hverju í þættinum í kvöld, óskyld efni
með öllu og sitt úr hverri áttinni.
Röð efnanna á eftir að koma í ljós en
Sigurður Einarsson, umsjónarmaður
þáttarins, kvaðst m.a. mundu spjalla
um sögu hamborgarans, Empire State
bygginguna i New York, aspirin og
gervitennur. Raunar væri nú hægt að
finna nokkuð brosleg tengsl milli þessa
fjögurra fyrirbæra en varla mun það
vera ætlunin. Hvaö sem þvi líður er
hamborgarinn víst upprunninn i Asiu,
á að hafa borizt þaðan til Evrópu og
siðan til Bandaríkjanna, svo ekki
virðast þeir siðarnefndu hafa tilurð
hans á samvizkunni, eins og margir
hafa vafalaust haldið.
Empire State bygginguna kannast
flestir við, enda ein af þessum tilraun-
um mannsins til þess að hefja sig til
himins. Sú skepna sem helzt hefur verið
oröuð við Empire State er annar ná-
frændi okkar, King Kong.
Gervitennur ætti Sigurður Einarsson
að vita vel flest um, því hann er tann-
smiður að atvinnu, og það kann að
vera ástæðan fyrir því að hann hefur
sérstaklega kynnt sér aspirín, hugsan-
lega hefur ekki verið vanþörf á.
-FG.
„ÉG MAN ÞAÐ ENN” — útvarp ífyrramálið kl. 11:
Gunnar M. Magnúss les
kafla úr „Skáldinu á Þröm”
— ævisögu Magnúsar Hj. Magnússonar
f fyrramálið mun Gunnar M.
Magnúss, rithöfundur, lesa kafla úr
bók sinni „Skáldið á Þröm”, sem er
ævisaga Magnúsar Hj. Magnús-
sonar. Það verður í þættinum ,,Ég
man það enn”, i umsjá Skeggja Ás-
bjarnarsonar, kennara.
Gunnar M. Magnúss fæddist 2.12.
1898 á Flateyri við Önundarfjörð.
Hann lauk kennaraprófi 1927 og
kenndi í ein tuttugu ár, að mestu í
Reykjavik. Hann var við framhalds-
nám í Kennaraháskólanum i Kaup-
mannahöfn 1936—37 og hefur lagt
drjúga hönd á plóginn hvað varðar
kennslu yfirleitt og ekki síður
hagsmuni kennara, enda gegndi hann
fjölda trúnaðarstarfa fyrir þá árum
saman. Þess má einnig geta að
Gunnar M. Magnúss var forstðöu-
maður fyrsta námskeiðs fyrir at-
vinnulausa unglinga i Reykjavfk,
1935, en annars er ferill hans of
margþættur til þess að hægt sé að
gera honum nein viðunandi skil i
stuttri yfirlitsgrein.
Þrátt fyrir margvísleg önnur tíma-
frek störf sin, hefur Gunnar M.
Magnúss verið mjög afkastamikill
rithöfundur. Hann hefur skrifað fjöl-
margar bama- og unglingabækur,
smásögur, ein þrjú leikrit, ritgerðir
og stór ritverk ýmiss konar, að
ljóðum hans ógleymdum.
-FG.
FRANZISCA
GUNNARSDOTTIR
Gunnar M. Magnúss, rithöfundur.
UNNUSTA FJ ALLAHERM ANNSINS—útvarp kl. 20,50:
Fjallahermaðurinn Salvatore
—ást hans og af brýði ná út yf ir gröf og dauða
Leikrit vikunnar verður „Unnusta
fjallahermannsins”, eftir Eduardo
Anton. Leikstjóri er Helgi Skúlason en
með aðalhlutverk fara Helga Bach-
mann og Gisli Halldórsson. Þýðandi er
Málfríður Einarsdóttir. Leikritið var
áöur flutt 1962 og er rúmlega klukku-
tima langt.
Eduardo Anton er ítalskur, þekktur
fyrir gamansemi sfna og á hún aö njóta
sín vel 1 þessu leikriti, ekki sízt í lýsing-
um hans á þorpslffinu.
Anita er orðin 25 ára gömul og er
ógift — það er annars ekkert gaman-
mál i ítölsku þorpi. Eins og vænta má
vekur þetta hörmungarástand umtal i
litla samfélaginu hennar en þá ber svo
við að hún kynnist fjallahermanninum
Salvatore.
Hvort fjallahermenn eru eitthvert
sérstakt og hugsanlega sérræktað af-
brigði hermanna fylgir ekki sögunni,
en óneitanlega minnir orðið á fjalla-
geitur (gemsur) og þær kalla ekki allt
ömmu sína, hvað dirfskunni viðvíkur.
Eitthvað hefur Salvatore samt tekið
geiturnar umræddu sér til fyrirmyndar,
því varla er trúlofunin afstaðin, fyrr en
hann vill endilega sýna fram á hugrekki
sitt — og ferst auðvitað, einmitt þegar
allt virðist ætla að enda eins og i
gömlu, góðu ævintýrunum.
Aldrei verður á hljóðvarpið borið,
að ofangreint nálgist að vera orðrétt frá
þeirri ágætu stofnun komið, en eftir-
farandi setningarbútur er það svo
sannarlega: . . . „ást hans — og
afbrýði — nær út yfir gröf og dauða”.
Helgl Skúlason, leilutjóri „Unnustu fjallahermannslns”, eftir Eduardo
Anton.
VIDEO
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Sala — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — bimi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
Sigurður Elnarsson, tannsmiður, um-
sjónarmaður þáttarins: Í kýrhausnum.
Öneitanlega er nú púður i svona
orðalagi. -FG.
Útvarp
Fimmtudagur
11. júnf
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar. Flmmtu-
dagssyrpa — Páll Þorsteinsson og
Þorgeir Ástvaldsson.
15.10 Mlðdeglssagan: „Litla
Skotta”. Jón Oskar les þýðingu
sina á sögu eftir George Sand (17).
15.40 Tónleikar. Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir. \
16.20 Siðdegistónlelkar. Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur „Fjalla-
Eyvind”, forleik eftir Karl O.
Runólfsson, og „Ólaf Liljurós”,
balletttónlist eftir Jórunni Viðar;
Jean-Pierre Jacquillat og Páll P.
Pálsson stj. / John Browning og
Cleveland-hljómsveitin leika
Pianókonsert op. 38 eftir Samuel
Barber; George Szell stj.
17.20 Litll barnatimlnn — Vor i
sveitinnl. Heiðdís Norðfjörð
stjórnar barnatíma á Akureyri.
Börn í Hrafnagilsskóla aðstoða
við gerðþáttarins.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttlr.Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Hall-
dórsson flytur þáttinn.
19:40 Ávettvangl.
20.05 Dómsmál. Björn Helgason
hæstaréttarritari segir frá skaöa-
bótamáli vegna vinnuslyss í bygg-
ingarvinnu.
20.30 Einsöngur í útvarpssal.
Þuriöur Baldursdóttir syngur lög
eftir Robert Schumann og Felix
Mendelssohn. Guðrún A. Krist-
insdóttir leikur með á píanó.
20.50 Unnusta fjallahermannsins.
Leikrit eftir Eduardo Anton. Þýð-
andi: Málfríður Einarsdóttir.
Leikstjóri Helgi Skúlason. Leik-
endur: Helga Bachmann, Gisli
Halldórsson. Helga Valtýsdóttir,
Áróra Halldórsdóttir, Helgi
Skúlason, Þóra Friðriksdóttir,
Guðmundur Pálsson, Jónína
Ólafsdóttir, Katrin Ólafsdóttir og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
(Áður útv. i des. 1962).
22.00 Vlðar Alfreðsson leikur létt
lög.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orö kvölds-
Ins.
22.35 I kýrhausnum. Þáttur i umsjá
Sigurðar Einarssonar.
23.00 KvöldtónleikBr. a. Diverti-
mento í C-dúr eftir Joseph Haydn.
Hljómsveit tónlistarmanna í lág-
sveitum Austurrikis leikur. b. Dúó
i G-dúr fyrir fiðlu og víólu eftir
Franz Anton Hoffmeister. Arthur
Grumiaux og Arrigo Pelliccia
leika. c. Sónata nr. 1 i G-dúr fyrir
strengjasveit eftir Gioacchino
Rossini. Enska kammersveitin
leikur; Pinchas Zukerman stj.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bœtt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Göð þjónusta. — Reynifl viðskiptin.
Vcnllircfa -
AtsirluHliiriiiii
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.
12222
Bjóðum stoltir
PENTAX
MV, MV-1, MX, ME-super
og LX myndavélar
PENTAX linsur, flösh
og fylgihlutir.
Góð greiðslukjör!
Landsins mesta úrval af Ijósmyndavörum
td: 35 geröir myndavéla, 50 gerðir af linsum, 35
gerðir af töskum, 85 gerðir af filterum og um 100
gerðiraf filmum —eitthvað fyrir alla!
Verslið hjá # fagmanninum
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 SIMI 85811