Dagblaðið - 10.07.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ1981.
5
ER KISTA ÓLAFAR RÍKU
4 SKARÐIFUNDIN?
Skarð:
Séð undir gólf Skarðskirkju. Efst á
myndinni er altarið og neðst tveir menn
að störfum við uppgröft.
Sama ættin
hef ur búið
þar í nær
átta aldir
— Ólöf ríka kom af stað
styrjöld milli Dana
og Englendinga eftir
víg manns hennar
Á þvl fomfræga höfuðbóli Skarði á
Skarðsströnd hefur sama ættin búið lengur
en á nokkru öðru býli á landinu eða á
niundu öld. Þar bjó fyrst Húnbogi Þorgils-
son, sem talinn er hafa verið bróðir Ara
fróða. Kristinn Jónsson, sem nú býr á
Skarði, er26. ættliðurinn frá Húnboga.
Einn þekktasti afkomandi Húnboga sem
bjó á Skarði er án efa Ölöf rika, dóttir
Lofts Guttormssonar á Skarði. Maður
hennar var Björn hirðstjóri Þorleifsson.
„EigiskalgrátaBjörnbónda . . .”
Bjöm hirðstjóri var mikill höfðingi og
sem hirðstjóri átti hann 1 útistöðum við
enska verzlunarmenn og árið 1457 drápu
enskir menn hann er hann var að sinna
embættisskyldum 1 Rifi á SnæfeUsnesi, en
tóku Þorleif son hans tU fanga. Sagt er að
þeir hafi brytjað lík Björns 1 stykki og sent
Ólöfu konu hans. Þegar hún spurði tíðind-
in varð henni að orði sem frægt er: „Eigi
skal gráta Björn bónda, heldur safna liði
og hefna.” Lét Ólöf taka þrjú ensk skip á
ísafiröi og drepa margt manna af þeim 1
hefndarskyni fyrir mann sinn. Einnig tók
hún marga Englendinga til fanga og voru
um skeið um 50 menn í haldi að Skarði og
hafði hún jafnmarga menn til að gæta
þeirra. Heitir þar Mannheimar er fangamir
voru geymdir, en þeir voru látnir gera stétt
mikla úr hellum fyrir framan Skarðskirkju.
Ólöf rika fór síðan á fund Danakonungs
og kærði vig bónda síns. Með þvl er talið
að komið hafi tU 5 ára styrjaldar mUli
Dana og Englendinga og er Ólöf því eini
fslendingurinn sem hrundið hefur af stað
styrjöld milli þjóða.
Við Skarð er hin fræga Skarðsbók
kennd. í Skarðskirkju voru ávallt merkir
gripir og má þar nefna útskorna og málaða
altaristöflu sm talið er að Ólöf hafi gefiö
kirkjunni. Altaristafla þessi var send á
heimssýninguna f París árið 1900.
- JR
Ef myndin prentast vel má greina gyllta þræði i piastöskjunni sem maóurinn heidur á.
DB-myndir Kristján M. Unnarsson.
EUnborg Bogadóttir Magnusen á Skarði ræðir við séra Ingiberg Hannesson um forn-
leifafundinn. Fremst er Kristinn Jónsson, bóndi á Skarði.
—gullþræðir úr f lík f undust er
fornleifafræðingar
byrjuðu að grafa undir kirkjunni
Þeir hófu þegar að grafa undir kirkj-
unni þar sem kistan fannst. Kistan var
mjög fúin enda lfklegt að hún hafi
legið i jörðu f nokkrar aldir. Fljótlega
fundust gullþræðir sem taldir eru úr
flík þess sem í kistunni hvilir. Rennir
það stoðum undir þær getgátur manna
að f kistunni séu líkamsleifar mannveru
sem í lifanda lífi hefur verið vel efnum
búin.
Þorvaldur Brynjólfsson kirkju-
smiður hefur fundið ýmislegt fleira
merkilegt undir Skarðskirkju. Má þar
nefna úthöggvinn stein, rétthyrndan.
Fornleifafræðingarnir litu á hann og
töldu að hér gæti verið um stein að
ræða sem fluttur hefði verið til landsins
fyrr á öldum og hefði jafnvel getað
verið í steinkirkju.
-KMU
Skarðskirkja. Undir suðurvegg kirkjunnar, dökka veggnum, er holan sem grafin var
og kistan fannst i.
Maria Bjarnadóttir, dótturdóttir Krist-
jáns Sveinssonar augnlæknis, dvelst nú f
sumar á Skarði. Hún fyigist þarna með
Guðmundi Óiafssyni safnverði að
störfum þar sem kistan er.
Þorvaldur Brynjólfsson kirkjusmiður,
sem kom niður á kistuna þegar hann var
að grafa fyrir styrktarstoð sem steypa
átti undir suðurhlið Skarðskirkju.
Er kista Ólafar rfku á Skarði fundin?
Sú spuming brennur nú á vörum eftir
að komið var niður á forna kistu undir
altarinu í Skarðskirkju í Dölum á
þriðjudagskvöld.
Þorvaldur Brynjólfsson kirkju-
smiður hefur unnið að endurbótum á
kirkjunni að undanförnu. Hann var að
grafa undir gólfi kirkjunnar fyrir
steypumóti þegar hann kom niður á
forna trékistu.
Heimamönnum kom þegar í hug að
hér væri komin kista Ólafar ríku sem
átti að vera jarðsett undir altari Skarðs-
kirkju. Þjóðminjasafni var gert viðvart
og f gær fóru þrir menn frá safninu að
Skarði til rannsókna á fundinum. Þeir
eru Guðmundur Ólafsson safnvörður,
Barði Valdimarsson fornleifa-
fræðingur og Þorvaldur Friðriksson,
nemi í fornleifafræði.
Guðmundur Ólafsson safnvörður bendir á kistuna. Eins og sjá má á enn efUr að grafa
töiuvert frá henni.
Krístinn Jónsson bóndi Skaröi:
„Ég er hjátrúarfullur og
hræddur við þetta”
— Ólöf gamla gæti gert vart við sig og hrætt ung
börn á bænum
,,Ég er hjátrúarfullur og hræddur
við þetta. Ólöf gamla gæti gert vart
við sig og hrætt ung börn á bænum,”
■sagði Kristinn Jónsson bóndi á
Skarði. „Ég vil helzt ekki láta hreyfa
við þessu. Ég vona að ég ráði því.
Það sem er einu sinni komið ofan i
kirkjugarð á að vera þar. Déskotans
fræðingarnir hafa ekkert leyfi til að
hrófla við gömlu konunni.
Gamlar sögur segja að Ólöf ríka
liggi úndir altari Skarðskirkju. Lik-
lega er eitthvað að marka þessar
sögur því þegar verið var að grafa
þarna, eftir að altarið var tekið
burtu, var komið niður á gamla kistu
úr tré. í kringum hana var hlaðið
grjóti.”
Kristinn sagði að þegar eftir fund-
inn hefði Þjóðminjasafninu verið
gert viðvart. Unnið er að endurbygg-
ingu kirkjunnar að Skarði og hefur
sú viðgerð staðið nokkurn tima.
Stöku sinnum er messað i kirkjunni,
auk ferminga og jarðarfara.
Þess má geta til gamans að þegar
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, var á ferð um Dalasýslu fyrir
skömmu heimsótti hún kirkjuna. Þar
afhenti Pétur Þorsteinsson, sýslu-
maður Dalamanna, forsetanum
fyrsta eintak af ljósprentun Skarðs-
bókar.
Sr. Ingiberg Hannesson, sem
þjónar Skarðskirkju, sýndi forsetan-
um merka altaristöflu kirkjunnar,
svo og predikunarstólinn, en hann er
gamall með fagurlega máluðum
myndum.
-ELA/JH
..........— h
Forntrékista
fannst undir
gólfi
Skarðskirkju: