Dagblaðið - 10.07.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1981.
„ . M,— ,
Ollum tilboðum ígerð sumarhúsa BSRB hafnað:
VERÐUR HÆSTA „TIL-
BOÐINU” TEKID?
Viðræður haf nar við umboðsaðila danskra húseininga
Viðræður standa nú yfir á milli
BSRB og Hosby-húsa sf. á Akureyri
um gerð 30 sumarhúsa fyrir banda-
lagið. Alls bárust tilboð frá 21 fyrir-
tæki í þetta verk, þar á meðal fiá
Hosby-húsum sf. sem hefur umboð
fyrir danskar húseiningar, en þeim
var öllum hafnað. Athygli hefur því
vakið að BSRB skuli nú taka upp við-
ræður við umboðsaðila dönsku hús-
eininganna, sérstaklega þar sem
tilboð þeirra var allmiklu hærra en
tilboð stærstu fslenzku fyrirtækj-
anna.
Þessi ákvörðun var tekin að vand-
lega athuguðu máli, eftir að bygging-
amefnd og sérfræðingar hennar
höfðu fjaUað um hvernig sumarhús
hentuðu okkur bezt, sagði Kristján
Thorlacius formaður BSRB í samtaU
við Dagblaðið.
Kristján sagði að BSRB hefði
óskað eftir tilboðum í sumarhús af
öllum stærðum og gerðum og það
hefði verið þungt á metunum að
dönsku húsin væru mjög vönduð og
að hægt væri að nota þau jafnt að
sumri sem vetri. Einangrun væri
mjög góð í þessum húsum, t.a.m.
þrefalt gler i öllum gluggum, en
stærð húsanna væri 63,8 fermetrar.
— Það er ómögulegt að bera þessi til-
boð saman með tilliti til verðs, sagði
Kristján er hann var spurður að því
hvort upphaflegt tilboð Hosby-húsa
hefði verið miklu hærra en tilboð is-
lenzku keppinautanna. Sagði
Kristján að þar spilaði inn i að húsin
væru mjög ólík að stærð og gerð og
t.a.m. væri einangrunin í dönsku
húseiningunum mun betri en i þeim
islenzku. Ekki hafði Kristján heldur
upplýsingar á reiðum höndum um
hvað hver fermetri kostaði i hinum
ýmsuhúsum.
Þau sumarhús sem BSRB ætlar nú
að láta reisa verða á Eiðum á Austur-
landi og í landi Stóru-Skóga í ná-
grenni Munaðarness, en þá jörð
keypti BSRB árið 1978. 15 hús verða
á hvorum stað og verða húsin (
Stóru-Skógum tengd aðstöðunni í
Munaðarnesi, en þar á BSRB fjöl-
mörg sumarhús, m.a. 13 sumarhús
frá Húsasmiðjunni og 45 norsk hús.
að sögn Kristjáns mun byggingar-
nefndin hafa haft reynsluna af þess-
um húsum að leiðarljósi er hún fjall-
aði um val á framtíðarhúsum fyrir
bandalagið. -ESE.
Engin kvörtun borízt
vegna okkar húsa
á bænum Núpi INNANHÚSSSJÓNVARP
— eftireldsvoða jr r
BSRB á nú fjölmörg sumarhús i Munaðarnesi, þar sem myndin er tekin, en á þeim sjást hús frá Húsasmiðjunni. Nú stendur
til að reisa fjölda húsa bæði á Eiðum og i landi Stóru-Skóga i nágrenni Munaðarness. tslenzkir framleiðendur sumarhúsa
una þvi illa að BSRB standi i samningum við erlendan framleiðanda og segjast bjóða mun ódýrari vöru.
„Vinna flutt úr landi
fyrír milljónir króna”
—segir Heiðar Elimarsson hjá Þaki hf.
, ,Það er ekki hægt að þegja yfir máli
sem þessu því að þarna er verið að
fiytja vinnu úr landi fyrir milljónir
króna, algjörlega að ástæðulausu,
sagði Heiðar Elimarsson hjá Þaki hf.,
en það fyrirtæki gerði tvö tilboð í gerð
sumarhúsa fyrir BSRB og voru þau
bæöi miklu lægri en tilboö umboðs-
aðila dönsku húseininganna sem BSRB
hefur nú hafið viðræður við.
Heiðar sagði að munurinn á hærra
tilboði Þaks hf. og tilboði Hosby-húsa
Miklar
sf. væri um 44%, íslenzka fyrirtækinu í
vil. ,,Við gerðum tilboö í gerð 25 húsa,
samtals 5.531.000 krónur, en tilboð
Hosby-húsa er 7.986.000 krónur fyrir
sambærileg hús. Þetta þýðir að dönsku
húsin kosta um 100.000 krónum meira
hvert en okkar hús og ég get fullyrt að
við treystum okkur til að gera anzi
mikið til viðbótar fyrir þessa upp-
hæð,”sagði Heiðar.
Heiðar tók það fram að 1 útboðs-
gögnum hefði hvergi verið minnzt á að
nota ætti sumarhúsin allt árið eða að
þau ættu að vera sérstaklega ein-
angruð. Það væri þvi léleg röksemd að
hafna íslenzku húsunum á þeim for-
sendum því að þau væru flest mjög vel
einangruð og t.a.m. væru húsin frá
Þaki hf. betur einangruð en mörg ein-
býlishús.
,,Það virðist sem stefnan sé að flytja
þessa vinnu úr landi og jafnvel velja
eitthvað sem ekki hentar íslenzkum að-
stæöum. BSRB er t.a.m. meö fjölda
norskra húsa í Munaðarnesi sem
hvorki halda vatni né vindum og hafa
þau reynzt ákaflega illa svo að ekki sé
meira sagt,” sagði Heiðar Elimarsson
aðlokum.
- ESE
—segirSnorri
Halldórssoní
Húsasmiðjunni
Ég vil ekki tjá mig um þetta mál
strax, sagði Snorri Halldórsson í Húsa-
smiðjunni hf. er DB hafði samband við
hann vegna „sumarbústaðamálsins”,
en Húsasmiðjan hf. var eitt þeirra fjöl-
mörgu íslenzku fyrirtækja sem smíðað
hafa sumarhús undanfarin ár og gerðu
tilboð í verkið.
Snorri sagði þó að þau sumarhús sem
Húsasmiðjan hf. hefði boðizt til að
reisa væru 45 Termetrar að stærð og
væru þau miklu vandaöri en venjuleg
sumarhús. Þetta væru sams konar hús
✓ '
Segi
ekkert
— segirfram-
kvæmdastjóri
Hosbyhúsasf.
Ég vil ekkert láta hafa eftir mér
um þetta mál að svo komnu,
sagði Þorkell Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Hosby-húsa sf. á
Akureyri, er DB hafði samband
við hann vegna viðræðna Hosby-
húsaog BSRB.
Þorkell sagði málið á við-
ræðustigi en það myndi væntan-
lega skýrast næstu daga. Ekki
vildi Þorkell heldur greina frá
upphaflegu tilboði fyrirtækisins.
-ESE
A KLEPPSSPITALA
Eldur kom upp á bænum Núpi undir
EyjafjöUum um hádegisbiUÖ i fyrra-
dag. Mikill eldur var í húsinu og uröu
töluverðar skemmdir á innbúi. Lög-
reglunni á HvolsvelU var tilkynnt um
eldinn um kl. 13 og var hún komin á
staðinn skömmu siðar. Vel gekk að
ráða niðurlögum eldsins en húsiö er
óíbúðarhæft. TaUð er að kviknað hafi í
út frá eldavél.
-ELA.
Innanhússsjónvarpskerfi spretta nú
upp sem gorkúlur víðs vegar um bæinn
og á þetta bæði við um fjölbýlishús og
stofnanir. Nú siðast var sett innanhúss-
sjónvarp á Kleppsspítala, sem væntan-
lega mun koma vistmönnum og starfs-
mönnum til góða í framtiðinni.
Sigriður Pálsdóttir, formaður starfs-
mannaráðs Kleppsspitalans, sagði í
samtaU við Dagbiaðið aö spitaUnn
heföi átt þetta kerfi lengi eða allt frá
því um 1970 er spítalanum voru gefin
þessi tæki. Sigriður sagði aö það væru
fyrst og fremst sjúkUngarnir sem nytu
góðs af þessu en kerfið hefði verið sett
upp með fullu samþykki yfirstjórnar
spitalans.
og BSRB ætti f Munaðarnesi en þó með
betri einangrun. Þau hús hafa reynzt
mjög vel að sðgn Snorra og engin
kvörtun borizt vegna þeirra, hvorki frá
BSRB eða öðrum.
-ESE.
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
lre>juií«lu 14
HAFNARSTRJETI
Geríö langa buxnaferð
stutta. Byrjið í Partner-
búðinni.
Póstsendum
Radial-dekk á flostar U gundir hila.
Mjög hagstætt u-rð. Eiguni fyrir-
liggjandi hin vinsælu kanadisku
radial-dekk á flcstar gerðir bila.
Kostir: slitþol 50—100% meira en
vcnjulcgra dekkja, betra grip’léttir
bilana i stýri, eru ótrúlega mjúk.
Ómar og Jón unnu Borgarfjarðar-
„ralUð" á kanadiskum radial-dekkj-
uin frá okkur og þökkuðu þeim
meðal annars sigurinn. Krlendis
eru yfir 90% bila á radial-
dekkjum.
Gúmmivinnustofa
Skipholti 35. Sitni 31055.
-ESE