Dagblaðið - 10.07.1981, Page 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ1981.
10
fijálst, óháð dagblað
Útgefandi: Dagblaðiö hf. s.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson.
Aðstoðarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson.
Skrífstofustjórí rítstjómar. Jóhannes Reykdal.
íþróttir: Haliur Simonarson. Monning: Aðalsteinn IngóHsson. Aðstoðarfróttastjórí: Jónas Haraldsson.
Handrit: Ásgrímur P&lsson. Hönnun: Hilmar Karísson.
Blaðamenn: Anna Bjamason, Atii Rúnar Halldórsson, Atii Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig-
urðsson, Dóra Stefánsdóttir, E!in Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir,
Krístján Már Unnarsson, Sigurður Sverrísson.
Ljósmyndir: BjamleHur Bjamleifsson, Einar Óiason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorri Sigurðsson
og Svoinn Þormóðsson.
Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorieifsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Hali-
dórsson. Dreifingarstjórí: Valgerður H. Svoinsdóttir.
Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsia, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur: Þverholti 11.
Aðaisimi blaðsins er 27022 (10 linur).
Sotning og umbrot Dagblaðið hf., Siðumúla 12.
Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10.
Askriftarverð á mánuði ITr. 80 J)0. Verö í lausasöiu kr. 6,00.
Gengislækkun íágiíst?
Gengislækkun gæti orðið á næst-
unni, hugsanlega upp úr 1. ágúst. Rikis-
stjórnin hefur fengið bréf frá iðnrek-
endum með rökstuddum kröfum um
stuðning við iðnaðinn. Meðal þess, sem
iðnaðurinn biður um, er gengisfelling.
Gengisfelling getur verið nauðsynleg leiðrétting.
Þeir, sem gagnrýna ,,gengisfellingarpólitík”, ættu að
beina spjótum sínum að undirrót gengisfellinga. Árum
saman hefur sama sagan gerzt. Stjórnvöld hafa ekki
haft hemil á verðbólgunni. Hún hefur verið margföld á
við það, sem gerist í helztu viðskiptalöndum okkar.
Við það vex kostnaður við framleiðsluna meira hér en
hjá samkeppnisþjóðunum. Þar sem verðið á útflutn-
ingsmörkuðunum breytist tiltölulega lítið í erlendri
mynt, kallar þessi þróun á síendurteknar gengisfell-
ingar til að rétta hlut útflutningsatvinnuveganna.
Ríkisstjórnin gekkst um síðustu áramót fyrir „fest-
ingu” gengis krónunnar. Sú ráðstöfun leysir í sjálfu sér
engan vanda. Sé gengi haldið föstu, meðan verðbólgan
hér er langt umfram verðbólgu í viðskiptaríkjunum,
verður afleiðingin hallarekstur útflutningsframleiðsl-
unnar og atvinnuleysi.
Hjá þessu var að nokkru komizt vegna hækkunar
Bandaríkjadollars. Krónan hefur lækkað mikið gagn-
vart dollar það, sem af er árinu. „Bati viðskiptakjar-
anna stafar að verulegu leyti af gengisbreytingum að
undanförnu, einkum hækkun Bandaríkjadollars gagn-
vart Evrópumyntum,” segir Þjóðhagsstofnun í yfirliti
um framvindu efnahagsmála.
En þessi hækkun dollars hefur ekki verið einhlít
lausn á vanda útflutningsatvinnugreinanna. Iðnaður-
inn fær ekki hið sama út og sjávarútvegur. Evrópu-
gjaldmiðlarnir hafa lækkað gagnvart dollar. íslenzkur
iðnaður geldur þess á útflutningsmörkuðum sínum.
Hann geldur þess einnig í samkeppni hér heima.
Þetta er sama saga og fyrr. Gengi krónunnar er jafn-
an miðað við þarfir sjávarútvegs. Sjávarútvegur hefur
notið góðs af hækkun dollars. Þegar verðbólga hér er
vfir 40 prósent, er ekki við öðru að búast en að kröfur
comi um gengislækkun.
Gengið er þá í reynd fallið, aðeins eftir að breyta
íinni opinberu skráningu þess.
Iðnaðurinn nýtur auk þess ekki sömu starfsskilyrða
og sjávarútvegur og landbúnaður. Sjálfur grundvöllur
gengisins er skertur með tilfærslum til hinna síðar-
nefndu.
Mismununin í þessu efni kemur fram í mismunandi
launaskatti, aðstöðugjaldi og skattfríðindum í útvegi.
Til að vega upp á móti þessu var síðustu tvö ár lagt svo-
nefnt aðlögunargjald á innfluttar iðnaðarvörur.
Gjaldið féll niður um áramót. Iðnrekendur saka
Tómas Árnason viðskiptaráðherra um að hafa klúðrað
því máli, þannig að aðlögunargjald verði ekki lagt á að
nýju. Undir það er rétt að taka. Starfsskilyrði iðnaðar-
ins hafa enn ekki verið leiðrétt, þótt aðlögunargjaldið
sé dottið upp fyrir. Grundvöllur gengisskráningarinnar
er enn rangur og iðnaðinum i óhag.
Verði aðlögunargjald ekki lagt á, má ekki dragast,
að starfsskilyrði iðnaðarins verði leiðrétt.
Grundvöllur gengisskráningarinnar gæti þá orðið
réttur að því leyti.
Auk þess hefur iðnaðurinn mikið til sins máls, þegar
hann gerir kröfur um gengisfellingu á næstunni, svo að
hann fái sömu kjör og sjávarútvegur.
Eftir þingkosningamar í ísrael:
Heittrúarmenn með
lykilaðstöðu í ísra-
elskum stjómmálum
—Agudat-f lokknrinn setur einungis f ram trúarlegar kröfur
en lætur sig utanríkismál og fjármál ákaf lega litlu varða
Menachem Begin. „Hann hefur já-
kvæða afstöðu til trúarinnar,” segir
rabbi Porush.
Átján rabbíar, sem verja mestum
hluta tima síns við íhuguir helgra
texta og fornra gyðinglegra rita, hafa
öðlazt lykilstöðu i stjórnmálum ísra-
elsríkis.
Þessir rabbiar, sem þekktir eru sem
lögmáls-vitringarnir, móta afstöðu
hinna fjögurra þingmanna hins heit-
trúaða Agudat-flokks sem kosnir
voru á ísraelska þingið, Knesset, í
þingkosningunum í síðustu viku.
Rabbí Menachem Porush, einn
fjögurra þingmanna flokksins, sagði
i samtali við fréttamann Reuters-
fréttastofunnar nú i vikunni: „Eng-
inn getur myndað stjórn án okkar.”
Sú fullyrðing hans verður tæpast
dregin í efa þar sem ljóst virðist að
stóru flokkarnir tveir, Likud-banda-
lagið og Verkamannaflokkurinn, sem
samtals hlutu 97 þingsæti af 120, geta
ekki unnið saman. Til þess er ágrein-
ingur þeirra of mikill eins og Shimon
Peres, formaður Verkamannaflokks-
ins, benti á í vikunni. Af því leiðir að
smáflokkar, eins og Agudat-flokkur-
inn, fá lykilaðstöðu i þinginu og geta
sett sig á talsvert háan hest gagnvart
stóru flokkunum sem eiga allt sitt
undir stuðningi þeirra.
Vitað er að Agudat-flokkurinn
hefur sett fram mjög harðar en jafn-
framt lítið veraldlegar kröfur fyrir
stjórnarþátttöku sinni.
Að því er rabbí Porush segir mun
flokkurinn krefjast þess að þrenn ný
lög fái brautargengi sem skilyrði fyrir
stj órnarþátttökunni.
„í fyrsta lagi viljum við að allir
gyðingar leggi niður vinnu á sabbat-
inum (hvíldardeginum) nema þeir
vinni við varnir landsins eða við að
bjarga lífi manna. Við viljum banna
sölu á kjöti sem ekki er „kosher”
(þ.e. ekki i samræmi við kröfur hins
gyðinglega lögmáls um matarvenjur.
Agudat-flokkurinn krefst þess til
dæmis að sala á svínakjöti verði
bönnuð). í þriðja lagi viljum við nýja
skilgreiningu á þvi hverjir eru gyðing-
ar, skilgreiningu sem útilokar þá sem
teknir hafa verið inn í gyðingasamfé-
lagið af rabbíum sem ekki eru rétttrú-
aðir,” sagði rabbí Porush.
Leiðtogar Agudat-flokksins með Begin forsætisráðherra. „Enginn getur myndað
stjórn án okkar.”
kenna það ekki og starfa innan tak-
marka þess að hugmyndum okkar og
markmiðum,” sagði hann.
Rabbl Porush viðurkennir að
flokki hans hefur orðið meira
ágengt á sfðastliönum fjórum árum í
stjórn Begins heldur en á næstu 29
árum þar á undan frá stofnun fsraels-
ríkis.
„Begin hefur jákvæða afstöðu til
trúarinnar. Við hlökkum til nýs fjög-
urra ára tímabils árangursriks sam-
starfs við hann,” segir hann.
Fyrri kröfur Agudat-flokksins
tefldu rfkisstjórn Begins oft i hina
mestu hættu. Krafa Agudat-flokks-
ins um bann við fóstureyðingum af
félagslegum ástæðum mætti harðri
andstöðu og hafði næstum orðið
stjórn Begins að falli. En Agudat-
flokkurinn fékk sitt fram og aug-
ljóst sýnist að fái flokkurinn aðild að
næstu rikisstjórn Israels eins og allt
bendir til þegar þetta er skrifað þá er
vist að hinn heittrúaði Agudat-flokk-
ur mun ekki láta neins ófreistað til að
fá trúarlegum kröfum sínum fram-
gengt.
Ekki þarf að tjölyrða um það að
þessar kröfur Agudat-flokksins eru
ákaflega umdeildar.
Ráð rabbianna er hulið leyndar-
dómsmóðu. Lögmálsvitringarnir
halda sig vel utan við sviðsljósið og
láta hinum fjórum þingmönnum
flokksins eftir að verja hagsmuni
þeirra.
Rabbí Porush segir að ráðið sé
skipað hinum raunverulegu leið-
togum gyðinga í hverri kynslóð.
„Þeir eru hvorki kosnir né útnefnd-
ir,” segir hann. „Mikilfengleiki
þeirra er öllum augljós þannig að þeir
öðlast sjálfkrafa sæti i ráðinu. Þeir
bera af öðrum dauðlegum mönnum
einsoggull afeiri.”
Rabbíarnir átján eru allir leiðtogar
Jeshivas (skólar í gyðinglegum
fræðum). Þeir eru nánast dýrlingar i
augum þeirra 150 þúsund heitttrúar
gyðinga sem leitast í einu og öllu við
að lifa lift sínu í samræmi við bókstaf
Gamla testamentisins.
Hinir fjórir þingmenn Agudat-
flokksins hafa reynzt klókir stjórn-
málamenn og eru engan veginn van-
metnir af öðrum þingmönnum
Knesset.
„Kröfur þeirra kunna að virðast
heimskulegar en þeir reyna að fá
þeim framgengt eftir mjög skynsam-
legum leiðum,” sagði einn þing-
manna Knesset sem ekki vildi láta
nafns sinsgetið.
Hreyftng þeirra er áhugalitil um
sionismann og lætur sig einnig utan-
ríkis- og fjármál litlu varða. Agudat-
flokkurinn hafnar þeirri skoðun
Þjóðlega trúarflokksins að sionism-
inn sé óaðskiljanlegur hluti gyðing-
dómsins.
„Við erum ekki þjóðernishreyfing.
Við erum þjóð Tórah-hreyfingarinn-
ar (Mósebókanna fimm),” segir
rabbl Porush. Hann bætti því við að
fyrir stofnun ísraelsrfkis árið 1949
hefði flokkur hans staðið gegn Síon-
ista-hreyfingunni.
, ,En þegar ríkið hafði verið stofnað
og viðurkennt af þjóðum heimsins þá
hefði verið fráleitt af okkur að viður-
Josef Burg, leiðtogi Þjóðlega trúar-
flokksins. Flokkur hans telur sfonism-
ann óaðskiljanlegan hluta gyðing-
dómsins.