Dagblaðið - 24.07.1981, Side 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1981. 13
Hvað er á seyðium helgína?
Guðsþjónustur sunnudaginn 26. júlí
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Séra Ólafur
Skúlason.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dómkórinn syngur.
Marteinn H. Friðriksson leikur á orgelið. Séra Hjalti
Guömundsson. Kl. 6:00 orgeltónleikar, Marteinn H.
Friðriksson, dómorganisti. Aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
FELLA- og HÓLASÓKN: Ouðsþjónusla í
Safnaðarheimilinu Keilufelli 1, kl. 11 árdegis. Séra
Hreinn Hjartarsson.
HALLGRÍMSKIKRJA: Messa kl. 11, séra Ragnar
Fj. Lárusson. Þriðjudagur 28. júli, Fyrirbænaguðs-
þjónusta, beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10, séra Ragnar Fj.
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11, séra Arngrímur
Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur séra Sigurður
Haukur Guöjónsson. Minnum á fyrirhugaða ferð
aldraðra miðvikudaginn 29. júli. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. (athugið siðasta messa fyrir sumarfri starfs-
fólks kirkjunnar). Þriðjudagur 28. júlí. Bænaguðs-
þjónusta kl. 18:00. sóknarprestur.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Séra Frank M.
Halldórsson.
l.istasötn
Sýningar
I Torfunnl eru sýndar allar lelkmyndir Alþýfluleik-
hússins, utan ein, frá stofnun þess.
LISTMUNAHÚSIÐ, Lækjargötu 2: Taeko Mori
opnar sýningu á listvefnaði, laugardag 25. júlí.
MOKKA-KAFFI Skólavöröustíg: ítalinn Licato
sýnir 12 myndir. Sýningin stendur til 19. ágúst.
RAUÐA HÚSIÐ: Tumi Magnússon opnar sýningu á
teikningum og „objectum”, laugardaginn 25. júli.
Sýningin stendur til 2. ágúst. Opið er daglega frá kl.
15—21.
DJÚPIÐ Hafnarstræti (Hornifl): Guðmundur
Björgvinsson opnar sýningu á tæplega fímmtiu
myndum, laugardaginn 25. júlí. Þar sýnir hann olíu-
litamyndir, prentlitamyndir, myndir gerðar með
tússi og svartkrítarteikningar. Sýningin er opin da^-
lega frá kl. 11—23.30 og lýkur 12. ágús:
SAFNAHÚSIÐ Selfossi: Jónina Björg Gísladóttir
og Ólafur Th. Ólafsson opna samsýningu laugar-
daginn 25. júlí. Jónína sýnir 20 vatnslitamyndir en
Ólafur 25 olíumálverk. Sýningin stendur til 3. ágúst.
NÝSLISTASAFNIÐ: í dag 24. júli lýkur sýningu á
verkum sem unnin eru með gerningum, „innstall-
ation” (uppstillingu), video-list og hljóðverkum.
Fjölmargir listamenn eiga verk á sýningunni. Safnið
er opið 15—22 en gerningar og performance hefjast
kl. 20 eða21.
á laugardag i Listmunahúsinu.
Þrjár skátastúlkur á sfðasta Landsmóti á Ulfljótsvatni. Einhvern tfma var sagt þú ert ekki nema hálfur skáti fyrr en þú hefur
SIGRUN
JÓNSDÓTTIR
r DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Utivera næstu vikumar:
Skátar skemmta sér
á Landsmóti f Kjama-
skógi við Akureyri
—f jölskyldubúðir starf ræktar og heimsóknardagur verður
álaugardageftirviku
Búizt er við um fimmtán hundruð
manns á Landsmót skáta í Kjarna-
skógi skammt frá Akureyri. Mótið
hefst sunnudaginn 26. júlí og lýkur
sunnudaginn 2. ágúS(. Skátar alls
staðar að af landinu eru væntanlegir
á mótið, svo og skátar víða að utan
úr heimi. Meira að segja koma
nokkrir ástralskir skátar.
Tjaldbúðum í Kjarnaskógi verður
skipt í tvennt. Annars vegar verður
skátatjaldbúðin þar sem starfandi
skátar hafast við yfir mótsdagana.
Hins vegar er fjölskyldutjaldbúðin.
Þar geta fjölskyldur skátanna hafst
við í lengri eða skemmri tíma meðan
á mótinu stendur. Þá verður gestum
gefinn kostur á að koma í heimsókn á
mótið á laugardaginn I. ágúst og
fylgjast með störfum og leikjum
skátanna. Þá um kvöldið verður
kynntur aðalvarðeldur mótsins og
mega allir sem áhuga hafa safnast i
kringum hann.
Á skrifstofu Bandalags íslenzkra
skáta fékk DB þær upplýsingar að
langt væri nú um liðið síðan Lands-
mót hafi verið haldið norðan fjalla.
Undanfarin þrjú mót hafa verið
haldin að Úlfljótsvatni. Það eru
Skátafélag Akureyrar og Valkyrjan
sem hafa haft mestan veg og vanda af
undirbúningi mótsins.
Á Landsmótinu i Kjarnaskógi
verður boðið upp á hefðbundna
skátadagskrá með göngu- og fjalla-
ferðum og skoðunarferðum til at-
hyglisverðra staða á Norðurlandi.
Meðal annars verður boðið upp á
ferð til Grimseyjar. Dagskráin miðast
aðallega við aldurinn ellefu til
fimmtán ára. Einnig verður sérstök
dagskrá fyrir eldri skáta. Auk
ferðalaga fara þátttakendurnir í ýmsa
leiki og leysa þrautir, sem þeir geta
haft bæði lærdóm og skemmtan af.
í vetur hefur farið fram mikil
flokkakeppni sem nefnist ,,Á
toppinn 1981”. Flokkarnir fengu stig
fyrir frammistöðuna og keppa 36 þeir
efstu til úrslita á Landsmótinu. Loka-
keppnin verður í gangi alla móts-
dagana og verðlaun afhent
„toppflokknum” í lokin. -ÁT-
BÚN AÐ ARBANKINN, EgllsslöOum: Silfur frá vík-
ingaöld. Tit sýnis í sumar á venjulegum afgrtíma.
GALLERÍ GUÐMUNDAR, Bergstaðastræti 15:
Kristján Guðmundsson, ný málverk, Rudolf
Weissauer, nýgrafik. Opið 14—18 atla virka daga.
Krislján Guðmundsson sýnir ný málverk I Galleri
Guðmundar.
LISTASAFN ÍSLANDS v/Suðurgötu: Jón Stefáns-
son og Gunnlaugur Scheving, olíumáiverk, teikn-
ingar og vatnslitamyndir. Opið 13.30—16 daglega.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ v/Suðurgötu: Opið alla
daga kl. 13.30—16. Saga lækninga á íslandi. Boga-
salur: Sigurður Þorstejnsson guilsmiður. Opið fram
i september.
NORRÆNA HÚSIÐ: Anddyri: íslenskir steinar.
Kjallari: Þorvaldur Skúlason, yfirlitssýning. Opin
14—20alladaga.
TORFAN, veitingahús: Leikmyndir úr Alþýðuleik-
húsinu.
HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar:
Opið þriðjud., fimmtud., laugard. & sunnud. kl.
13.30—16.
I Mokka kaffi sýnir ftall að nafnl Llcato 12 myndir.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR, Skólavörðu-
holti: Opiðaliadagakl. 13.30—16.
KJARVALSSTAÐIR: Vestursalur: Leirlist, gler,
textíll, silfur, guli. Sumarsýning: Steinunn Marteins-
dóttir, Haukur Dór, Jónina Guðnadóttir, Elísabet
Haraldsdóttír, Hulda Jósefsdóttir, Sigríður Jó-
hannsdóttir, Leifur Breiðfjörð, Guðrún Auðuns-
dóttir, Ragna Róbertsdóttir,1 Ásdis Thoroddsen,
Jens Guöjónsson, Guðbrandur Jezorski, Sigrún Ó.
Einarsdóttir. Opið 14—22 alla daga. Kjarvalssalur:
Kjarvalssýning.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Ný sýning á
verkum Ásgríms. Opið þriðjud., fimmtud. & laugar-
dagkl. 13.30-16.
GALLERÍ KIRKJUMUNIR, Klrkjustræti 10: Sig-
rún Jónsdóttir, batík, kirkjumunir. Opið 9—18
virka daga, 9—16 um helgar.
ÁRBÆJARSAFN: Opið til 31. ágúst kl. 13.30—18
alla daga nema mánudaga. Strætisvagn 10 frá
Hlcmmi gengur að safninu. Sérstakar sýningar:
Ftugsögusýning & Ijósmyndir Péturs A. Ólafssonar.
Guðmundur Björgvlnsson opnar sýningu i DJúpinu
laugardaginn 25. júli, og er þetta fjúrða einkasýning
hans.
Listmunahúsið opnafl
eftir miklar breytingar
— fyrst sýnir þar japönsk
vefkona, Taeko Mori
Listmunahúsið Lækjargötu 2 opnar nú aftur eftir að
miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæðinu.
Fyrsta sýningin verður opnuð þar laugardaginn 25.
júli en þar sýnir Taeko Mori sem er japönsk
vefkona. Taeko er fædd í Shizovoka sem er borg
nálægt Tokyo. Hún hélt til Tokyo og var þar við
nám í 4 ár en árið 1974 hélt hún til Parísar og nam i
Beauarts. Þaðan lauk hún brottfararprófi árið 1978.
Taeko bjó í 3 ár í París þar sem hún tók þátt í
mörgum sýningum, einnig hefur hún sýnt í Þýzka-
landi. Þetta er fyrsta sýning hennar hér á landi, en
hún hyggst setjast hér að ásamt eiginmanni sínum
sem er isl., Á sýningu Taeko í Listmunahúsinu
eru 24 verk, þar af 6 myndverk unnin með blandaðri
tækni en hin eru ofin. Sýningin mun standa fram í
miðjan ágúst.
Guðmundur
Björgvinsson
sýnir í Djúpinu
Laugardaginn 25. júlí kl. 2 opnar Guðmundur
Björgvinsson myndlistarsýningu i Djúpinu. Þetta er
fjórða einkasýning hans i Reykjavík, en hann hefur
einnig haldið nokkrar sýningar úti á landi og tekið
þátt í fjölda samsýninga.
Að þessu sinni sýnir Guðmundur íæplega fimmtíu
myndir allt frá nokkuð stórum oliulitamyndum
niður i örsmáar myndir gerðar með prentlitum og
tússi, þær smæstu varla stærri en meðalfrímerki.
Einnig eru þarna mitt á meðal nokkrar svartkritar-
teikningar.
Viðfangsefni myndanna eru óhlutbundin stef við
mannslikamann og umhverfi hans og geta menn eftir
efnum og ástæðum séð það út úr myndunum sem
þeir vilja.
Sýningin er opin daglega kl. 11—23.30 og lýkur
12. ágúst.
Systkini sýna
á Setfossi
Systkinin Jónína Björg Gisladóttir úr Kópavogi og
ólafur Th. Ólafsson frá Selfossi, halda málverka-
sýningu í Safnahúsinu á Selfossi 25. júli til 3. ágúst
nk.
Jónina Björg sýnir 20 vatnslitamyndir og Ólafur
sýnir 25 oliumálverk.
Jónína Björg hefur stundað nám i málaradeild
Myndlistaskólans i Reykjavik undanfarin ár og
ólafur útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og
handíðaskólans vorið 1979.
Ólafur hélt einkasýningu á Selfossi 1979 og tók
þátt í samsýningu á Selfossi haustið 1980.
Jónina Björg sýnir nú i fyrsta sinn.
Sýningin er opin daglega kl. 14—22.
'T' • ’ v .♦
J v/z
1 \S! M1