Dagblaðið - 24.07.1981, Blaðsíða 8
i() DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ1981.
Útvarp næstuvflni...
ÍÞRÓTTAÞÁTTUR - útvarp á morgun kl. 13,35:
Þaö er fugl? Það er
flugvél? Það er sup■
erman! Nei, það er
svifdrekamaður!
1 íþróttunum verður allt á fullri
ferð um helgina en um það allt saman
ætlar Hermann Gunnarsson að
fræða útvarpshlustendur á morgun.
Verður t.d. umferð í fyrstu og
annarri deild í fótbolta út um allt
land. Einnig spreytir frjálsíþróttafólk
sig af miklum dugnaði. Þá verður
Evrópumeistaramót unglinga í golfi á
Grafarholtsvelli.
Þá má geta þess að íslandsmót
verður í svifdrekaflugi á Þingeyri við
Dýrafjörð. Völdu kapparnir Sanda-
fell, en þar er nógu hátt og gott
uppstreymi, að auki geta þeir keyrt
upp á fjallið.
Vegna mikils áhuga hafði blm.
samband við Kristján Richter í Svif-
drekafélaginu og sagði hann að það
væri heldur meiri vandi að fljúga
svifdreka en menn yfirleitt gera sér
grein fyrir. Þá hafi margir ofurhugar
ætlað sér að fljúga eins og fuglinn
frjals ofan af háum tindum, án
kennslu eða reynslu og eins og gefur
að skiija hafa þar af leiðandi orðið
mörg slysin.
Hins vegar hefur Svifdrekafélag
Reykjavikur lagt byrjendum lið og
reynt að hjálpa þeim sém það vilja.
Einnig voru þeir með námskeið í vor.
Ef maður gefur sig vel að æfingum í
frítímum sínum tekur kennslan um
tvo mánuði en þá ætti kappinn að
vera orðinn fær í flestan sjó, eins og
sagt er. Kennslan felst þá einkum í
því að láta drekann svífa á réttum
hraða, til að varna þvi að maður
steypist ekki niður eða fljúgi of
hratt.
Um fimmtíu drekar eru til á
landinu og um 20 menn eru mjög
virkir í svifdrekafluginu. í Reykjavík
eru um 20—30 drekar og æfa menn
sig uppi á hverjum hól eða fjalli þar
sem uppstreymið er gott. Þeir sem
eiga leið um Krisuvík geta t.d. átt
von á að sja þar fljúgandi menn i
öllum áttum.
Kostnaðurinn við að gerast svif-
drekamaður er um 14.000 krónur og
er þar með talið dreki, vesti sem er
fest við drekann, vindmælir og
hjálmur.
„Heyrðu annars”, sagði Kristján,
,,ef þú virkilega hefur áhuga máttu
gjarnan koma með okkur á æfíngu á
morgun og prófa. Þar með yrðir þú
líka fyrsta konan hér á landi til að
sýna svifdrekafluginu áhuga. Þar að
auki ætla ég að gefa bikar þeirri konu
sem fyrst verður til að fljúga í einn
klukkutíma í loftinu. Hingað til hafa
engar konur á íslandi sýnt þessu
áhuga.”
Tilboðið var vægast sagt mjög
freistandi! Og hver veit. . . ? -LKM.
Tilfinningin að fljúga um loftin blá eins og fuglinn frjáls hlýtur að vera æði sérstök. En vandinn við að fljúga svifdreka er þó
meiri en menn gera sér grein fyrir og þá hafa slysin orðið mörg.
■LKM.
Heidelberg leika „Árstíðirnar”
eftir Antonio Vivaldi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
Tilkynningar. Miðvikudagssyrpa.
— Svavar Gests:
15.10 Miðdegissagan: „Praxis” eftir
Fay Weldon. Dagný Kristjáns-
dóttir les þýðingu sína (18).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Julius
Katchen og Fílharmóníusveit
Lundúna leika Rapsódiu op. 43
■ eftir Sergej Rakhmaninoff um stef
eftir Paganini; Sir Adrian Boult
stj. / Fílharmóníusveitin í Vín
leikur Sinfótjiu nr. 3 í F-dúr op. 90
eftir Johannes Brahms; Sir John
Barbirolli stj.
17.20 Sagan: „Litlu fiskarnir” eftir
Erik Christian Hugaard. Hjalti
Rögnvaldsson les þýðingu Sigríðar
Thorlacíus (5).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi.
I Sumarvökunni é miövikudag kl.
20.00 veröur fjallað um Ólafsvöku,
þjóflhátíðardag Fœreyinga og
verða þá lesin kvœfli og sögur.
20.00 Sumarvaka — á Ólafsvöku,
þjóðhátiðardegi Færeyinga. Lesið
úr „Eyjunum átján”, dagbók
Hannesar skálds Péturssonar úr
Færeyjaferð 1965, — svo og úr frá-
sögn Úlfars Þórðarsonar augn-
læknis um Færeyjadvöl veturinn
1941, skráðri af dr. Gunnari G.
Schram, — einnig kvæði eftir
Jóhannes úr Kötlum, William,
Heinesen, Áslaugu á Heygum og
Guðríði Helmsdal Nielsen. Baldur
Pálmason sá um samantekt.
20.50 íslandsmótið í knattspyrnu —
fyrsla deild. KR — Vestmannae.vj-
ar. Hermann Gunnarsson lýsir
síðari hálfleik frá Laugardalsvelli.
21.50 Fritz Wunderlich syngur.
valsalög með hljómsveitarundir-
leik.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Miðnæturhraðlestin” eftir
Billy Hayes og William Hoffer.
Kristján Viggósson les þýðingu
sína (18).
23.00 Fjórir piltar frá Liverpool.
Þorgeir Ástvaldsson rekur feril
Bítlanna — ,,The Beatles”;
sjöundi þáttur. (Endurtekið frá
fyrra ári).
23 45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
30. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
Guðrún Þórarinsdóttir talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna. Svala
Valdimarsdóttir les þýðingu sína á
„Malenu í umarfríi” eftir Maritu
Lindquist (5).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tón-
leikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Íslensk tónlist. Ragnar Björns-
son leikur Píanósvítu eftir Herbert
H. Ágústsson / Sauiescukvartett-
inn leikur Strengjakvartett eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
11.00 Verslun og viðskipti. Umsjón:
Ingvi Hrafn Jónsson. Rætt við
Björgvin Halldórson og Magnús
Kjartansson um viðskiptahlið
dægurtónlistar, hljómsveitar-
rekstur, hljómplötuútgáfu o.fl.
11.15 Morguntónleikar. Lola
Bobesco og Kammersveitin í
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Út í bláinn. Sigurður
Sigurðarson og Örn Petersen
stjórna þætti um ferðalög og útilíf
innanlands og leika létt lög.
15.10 Miðdegissagan: „Praxis” eftir
Fay Weldon. Dagný Kristjáns-
dóttir les þýðingu sina (19).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Sinfóniu-
hljómsveitin í Chicago leikur
„Meistarasöngvarana frá Ntirn-
berg”, forleik eftir Richard
Wagner; Fritz Reiner stj. / Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna leikur
„Scheherazade”, sinfóniska svítu
op. 35 eftir Rimsky-Korsakoff;
Leopold Stokowski stj.
17.20 Litli barnatíminn. Gréta
Ólafsdóttir stjórnar barnatíma frá
Akureyri. Stjórnandi lýkur lestri
sögunnar um „Smalahundinn á
Læk” eftir Guðbjörgu Ólafs-
dóttur. Einnig les Elín Antons-
dóttir söguna „Hvernig Trítill
komst í stóra húsið” eftir Dick
Laan í þýðingu Hildar Kalman.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Ávettvangi.
20.05 Einsöngur i útvarpssal. Ragn-
heiður Guðmundsdóttir syngur lög
eftir Handel og tvo negrasálma.
Jónas Ingimundarson leikur með á
píanó.
20.25 Alvarlegt en ekki vonlaust.
Leikrit eftir René Tholy. Þýðandi:
Ragna Ragnars. Leikstjóri: Þór-
hallur Sigurðsson. Leikendur:
Róbert Arnfinnsson og Rúrik
Haraldsson.
21.15 Gestir í útvarpssal. Douglas
Cummings og Philip Jenkins leika
saman á selló og pianó Sónötu i C-
dúr op. 65 eftjr Benjamin Briten.
21.35 Náttúra Íslands — 7. þáttur.
Vínviður fyrir vestan — milljón
ára jarðsaga. Umsjón: Ari Trausti
Guðmundsson. Fjallað er um fyrri
hluta íslenskrar jarðsögu, um blá-
grýtismyndunina og aðstæður hér
á landi fyrir milljónum ára.
22.00 Hljómsveit Pauls Weston
leikur lög úr kvikmyndum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Miðnæturhraðlestin” eftir
Billy Hayes og William Hoffer.
Kristján Viggósson les þýðingu
sína (19).
23.00 Næturljóð. Njörður P.
Njarðvik kynnir tónlist.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
31. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
Hannes Hafstein talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Helga J. Halldórssonar frá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna. Svala
Valdimarsdóttir les þýðingu sína á
„Malenu í sumarfrii” eftir Maritu
Lindquist (6).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tón-
leikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Barokktónlist. Kammersveit
Slóvakíu leiku Concerto grosso nr.
5 op. 6 eftir Arcangelo Corelli;
Bohdan Warchal stj./ Johannes-
Ernst Köhler og Gewandhaus-
hljómsveitin í Leipzig leika Orgel-
konsert í F-dúr op. 4 nr. 4 eftir
Georg Friedrich Hándel; Kurt
Thomas stj.
11.00 „Mér eru fornu minnin kær”.
Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli sér um þáttinn.
M.a. þáttur af Pétri hinum sterka
Bjarnasyni, 'ögrettumanni á Kálfa-
strönd við Mývatn, úr sagnaþátt-
um Þjóðólfs sem Hannes Þor-
steinsson ritstýrði. Lesari með
umsjónarmanni: Óttar Einarsson.
11.30 Morguntónleikar. Sinfóníu-
hljómsveit Berlínarútvarpsins
leikur „Stundadansinn” eftir
Amilcare Ponchielli; Robert
Hanell stj. / Hallé-hljómsveitin
leikur „Norska dansa” op. 35 eftir
Edvard Grieg; Sir John Barbirolli
stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45_ Veðurfregnir.
Tilkynningar. Á frivaktinni.
Margrét Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15.10 Miðdegissagan: „Praxis” eftir
Fay Weldon. Dagný Kristjáns-
dóttir les þýðingu sína (20).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Janos
Starker og György Sebök leika
Sellósónötu í D-dúr op. 58 eftir
Felix Mendelssohn / Peter Schreier
syngur „Ástir skáldsins”, laga-
flokk eftir Robert Schumann við
ljóð Heinrichs Heine; Norman
Shetler leikur með á pianó.
17.20 Lagið mitt. Helga Þ. Stephen-
sen kynnir óskalög barna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.40 Ávettvangi.
20.05 Hindurvitni og heyskapur.
Þórarinn Þórarinsson fyrrum
skólastjóri á Eiðum flytur fyrra
erindi sitt.
20.30 Nýtt undir nálinni. Gunnar
Salvarsson kynnir nýjustu popp-
lögin.
21.00 Sitt af hvoru tagi. Þáttur með
blönduðu efni í umsjá Gylfa Gísla-
sonar.
22.00 Hollywood Bowl-hljómsveitin
leikur. lög eftir Frédéric Chopin;
Carmen Dragon stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgúndagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Miðnæturhraðlestin” eftir
Billy Hayes og William Hoffer.
Kristján Viggósson les þýðingu
sina (20).
23.00 Djassþáttur. í umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
Kvöldgestir föstudagsins eftir
fréttir kl. 23.45 verflur Árni Egils-
son bassaleikari og kemur hann
mefl konuna sína líka.
23.45 Fréttir. Kvöldgestir. Jónas
Jónasson ræðir við Árna Egilsson
bassaleikara og konu hans Dorette.
Danslög.
01.00 Dagskrárlok.