Dagblaðið - 01.08.1981, Blaðsíða 4
Soda Stream hefur veríö kynnt vtös vegar um landið undanfarna daga. Þessi mynd var tekin niðrí f Austurstrsti á þríöjudag.
Þá færði verzlunin Vfðir kynninguna út f góða veðríð f göngugötunni. DB-mynd Einar.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR I. ÁGÚST 1981.
Það er girnilegt og gott nýja fslenzka grænmetið.
Nýtt íslenzkt
grænmeti
tómatarnir
aftur hærri
í verði
Nýtt Islenzkt grænmeti streymir nú
á markað. Tómatar og agúrkur eru
komin fyrir nokkru en nú er að
koma blómkál, rófur, hvitkál,
paprika og gulrætur. Þær gulrætur
sem nú fást eru að vísu ennþá úr
gróðurhúsum en væntanlegar eru úti-
ræktaðar gulrætur. Sellerí og púrrur
koma einnig á markað fljótlega.
Kllóið af blómkáli kostar nú í
heildsölu 35 krónur, rófurnar 11
krónur kilóiö, hvftkálið 14 krónur og
paprikan 40 krónur. Gulræturnar
kosta siöan 8 krónur búntið og er i
þvi 270 til 300 grömm. Tómatarnir
eru aftur komnir upp i 30 krónur
kilóið en gúrkurnar eru enn á sama
lága verðinu, 18 krónur kilóiö. Búast
má við að kálmetið eigi eftir aö
lækka verulega í verði á næstunni
þegar framboðið eykst.
Hér er gefið upp heildsöluverð þvi
smásöluverð er mjög misjafnt.
Áiagning á tómata og gúrkur hefur
verið frjáls en er núna miðaö við 38%
hámark. Er það á allt grænmeti.
Margar verzlanir kjósa hins vegar að
nýta sér álagninguna ekki að fullu.
En miðað við að hún sé fullnýtt ætti
blómkáliö aö kosta 48,30, rófurnar
15,18, hvitkálið 19,32, gulræturnar
11,04, tómatarnir 41,40, gúrkurnar
24,84 og paprikan 55,20 krónur.
Ekki var enn vitað hvert yrði verðið á
sellerii og púrrum.
- DS
Meira af örbylgjuofnum:
Hægt að fá of na sem
einnig grilla matinn
Ég skrifaði grein um daginn hér á
siðuna um örbylgjuofna. Fór ég þá í
5 verzlanir sem seldu slika ofna og
sagði frá verði á hverjum stað. Nú
hafa tveir verzlunarmenn til viðbótar
haft samband við mig vegna þess að
þeir voru ekki teknir með. En eins og
allir geta ímyndað sér er ekki nokkur
einasti vegur að fara í allar þær verzi-
anir á iandinu sem selja slfk tæki.
En til þess að gera þessum tveim,
sem í mig hringdu, jafnt undir höfði
og hinum má geta þess að Georg
Ámundason hf. varð fyrstur til að
flytja inn slíka ofna og er þvi brauð-
ryðjandi á þessu sviði. Þar var okkur
sagt að reynslan af ofnunum hefði
verið mjög góð og væri til dæmis sér-
lega sniðugt fyrir þá mörgu sem eiga
lyklabörn að eiga slíka ofna. Þegar
börnin koma heim geta þau sett eitt-
hvað i ofninn og eiga ekki á hættu að
brenna sig. Ofninn fer ekki f gang
nema lokaður. Georg Ámundason
er að sögn Dóru Snorradóttur sem
þar vinnur eini aðilinn sem flytur inn
ofna þar sem geislagjafinn sjálfur
snýst en ekki diskurinn sem maturinn
er settur á. Sagði hún þetta sniðugt
þvi þá þyrfti ekki að snúa stórum
stykkjum eins og lærum. Dóra sagði
það ekki alveg rétt að engin skorpa
myndaðist á kjöti i örbylgjuofnum.
Hún væri að vísu ekki eins ríkuleg og
i venjulegum ofnum en skorpa á lær-
um eða öðrum stórum stykkjum væri
góð.
Hjá Karnabæ eru auk venjulegu
örbylgjuofnanna til tvær gerðir ofna
sem grilla matinn einnig þannig að
góð skorpa næst fram. Þeir kosta
5700 og 5790 krónur. Húðin verður
ekki eins þykk og í venjulegum
bakaraofni. en húð engu að síður, og
virtist vera sem margir teldu hana
alveg ómissandi. - DS
Ástæða til að vara við tízkuefni:
UTURINN HVERF
UR í SKELLUM
— í stað þess að dof na jafnt
,,Já, það er rétt, hingaö hefur
borizt mikiö af kvörtunum vegna
þessara efna,” sagði Guðsteinn Guð-
mundsson starfsmaður Neytenda-
samtakanna. Efnin sem við hann var
rætt um eru tfzkuefni, einkum notuð
f buxur, pils og jakka.
Er þetta örþunnt bómuilarefni í
litum sem kallaðir eru fade-out á
ensku. Er ætlunin að liturinn lýsist
smám saman í þvotti. En sú hefur
hins vegar ekki orðið raunin.
„Fólk kemur hingað með hvít-
skellóttar flikur sem það segist hafa
þvegið i höndunum upp úr köldu
vatni. Við höfum reynt að fá verzlan-
irnar til að bæta þetta en ekki haft
árangur sem erfiði. í aðeins einu til-
felli hefur verzlunin fengizt til að
borga litun á flíkinni,” sagði Guð-
steinn.
Hann taldi fulla ástæöu til þess að
vara fólk við að kaupa flikur úr þessu
efni nema að vandlega athuguðu
máli. Bezt væri að fá skriflega yfir-
lýsingu um það í verzluninni á
hvernig þvotti hún tæki ábyrgð.
Síðan ætti eingöngu aö nota þá
þvottaaðferö 1 vitna viðurvist og þá
væri grundvöllur til að kvarta rnun
betri ef liturinn hyrfi.
- DS
,,Ég veit til þess að t.d. i Dan-
mörku eru svona gosdrykkjavélar
sérlega vinsælar meðai ellilffeyris-
þega. sem vilja gjarnan eiga gosdrykk
til þess að bjóða barnabörnunum upp
á þegar þau koma í heimsókn. Ellilíf-
eyrisþegar eiga oft f erfiðleikum með
að burðast með þungar gosdrykkja-
flöskur til og frá verzlunum,” sagði
Árni Ferdinandsson hjá Sól hf. í sam-
tali við Neytendasíðuna. — Sól er
þessa dagana að setja á markaðinn
nýtt gosdrykkjagerðartæki til þess að
nota i heimahúsum, svokallað Soda
Stream.
Einföld í notkun
Tæki þetta er einfalt i notkun, í því
er kolsýruhleðsla sem dugar i allt að
hundrað „skot”. Hvað það dugar í
margar gosdrykkjaflöskur fer eftir
því hve mörg „skot” eru notuð á
hverja flösku. Mörgum þykir gott að
hafa mikla kolsýru í gosdrykkjum
sínum og þurfa því að nota tvö
„skot” í hverja flösku. Aðrir kjósa
minni kolsýru.
Fyrir utan vélina sjálfa og kolsýru-
hleðsluna fylgja fjórir litrar af bragð-
efnum og sex gosdrykkjaflöskur með
loftþéttum töppum. Flöskur þessar
eru hannaðar sérstaklega fyrir Soda
Stream og eiga að þola mikinn þrýst-
ing. — Bragðefnin sem fylgja eru
appelsin, kóla, límonaði og tónic;
vatn, en að sjálfsögðu er einnig hægt
að fá hreint sódavatn úr Soda Stream
vélinni. — Kolsýruhleðslan er pökk-
uð i lofttæmdan plastpoka með
áprentuðum leiðbeiningum. Árni tók
fram að þessi loftdregni poki væri
eins konar trygging fyrir þvi að neyt-
endur fengju ekki f hendur leka kol-
sýruhleðslu. Ef loft er í pokanum
bendir það til þess að kolsýrubrúsinn
leki. — Þegar kolsýran er búin úr
brúsanum er honum skilað inn I ein-
hverja af þeim verzlunum sem hafa
Soda Stream á boðstólum og nýr
brúsi fenginn fyrir 20 kr. Ekki er um
að ræða aö fyllt sé á gamla brúsann.
Greinargóður leiðarvísir á íslenzku
fylgir með Soda Stream vélinni og að
auki árs ábyrgðarskírteini. Vélin, ein
kolsýruhleðsla, sex flöskur og tappar
kosta 895 kr. og bragðefnin 30,35 kr.
hver lítrafaska, sem blanda má allt
að einn á móti 7. Hægt er að fá
„skammtara” á bragðefnaflöskurnar
og kosta 11,70. Aukaflöskur er hægt
að fá og kostar sex flösku pakki 6,65
kr. — Árni Ferdinandsson sagði að
verð á gosdrykkjaflösku úr Soda
Stream væri um þriðjungur af verði á
venjulegum gosdrykk.
- A.Bj.
HANDHÆG VÉL TIL G0S-
DRYKKJAGERÐAR HEIMAVIÐ ™