Dagblaðið - 01.08.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1981.
Og allir verða hvfldinni fegnir...
—mesta umferðarhelgin er gengin í garð
Þá er hún komin, verzlunarmanna-
helgin. í gærdag var allt á fullu í
Reykjavík en i dag er líklega ailt á
fullu á landsbyggðinni. Blaðamaður
og ljósmyndari DB lögðu I stuttan
leiðangur í gærdag til að kanna
stemmninguna.
Á Reykjavíkurflugvelli voru vélar
sífellt að koma og fara og var reynt
að hagræöa fluginu þannig aö engin
örtröð myndaðist á vellinum. Þaðan
voru farnar 32 ferðir í gær til allra
staða á landinu.
Við Reykjavíkurhöfn var margra
metra bílalest en það voru þeir sem
ætluðu með Akraborginni. Akra-
borgin var ekki komin er við vorum
þarna á ferð en greinilegt var að
fólkið vildi tryggja sér far.
I „Rikinu” var ekki eins mikið að
gera og oft á þessum degi. Einhver
sagði okkur að fólk væri orðið svo
forsjált að það væri fyrir löngu búið
að birgja sig upp af áfengi.
Á Umferðarmiðstöðinni var
örtröðin ekki byrjuð en afgreiöslu-
stúlkur þar sögðu að um kl. 18 yrði
,,allt brjálað” eins og þær orðuðu
það. Þá var ekki síður mikið að gera
hjá verzlunum, bensínstöðvum og á
öðrum slikum stöðum. Sjálfsagt
verða allir hvíldinni fegnir um helg-
ina og svo er bara að vona að allir
skemmti sér vel. Að minnsta kosti var
það ekki kvíðið, fólkið sem DB-menn
hittu í gær, og spjall við fer hér á
eftir.
-ELA
F/
i J
ELÍN ALBERTSDÓTTIR
ÍÉk
LJOSMYNDIR
SIGURDUR ÞORRI
SIGURDSSON
IT
Þær stöllur Helga Lilja og Kristín voru hressar i bragði enda á leið á dansieik annað-
hvort i Húnaveri eða Miðgarði.
FORUM FYRST TIL
GRUNDARFJARDAR
r
—segir Sveinn
Sæmundsson
„Ég er á leið til Egilsstaða þar sem ég
ætla að vera í sumarbústað mínum,”
sagði Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða þar sem við hittum hann
á Reykjavíkurflugvelli. Sveinn fer svo
oft sem hann getur til Egilsstaða, en er
hann ekki að flýja veðrið? „Nei, það er
alltaf gott veður á Egilsstöðum og
þegar það er gott þá er það gott. Þarna
er alveg frábært að vera,” sagði
Sveinn.
Þá sagði hann að 32 ferðir væru
farnar frá vellinum i gærdag, þar af 25
með Flugleiðum, 6 með Arnarflugi og 1
með Flugfélagi Norðurlands. Sveinn
sagði að ekkert stopp væri á vellinum
og þyrfti fólk yfirleitt ekkert að bíða.
„Við reynum að láta þetta ganga
þannig að hér myndist ekki örtröð,”
sagði hann. ,,Með Sveini í förinni var
eiginkona hans, María Jónsdóttir, en
þau hyggjast vera á Egilsstöðum til Sveinn Sæmundsson og kona hans, Maria Jónsdóttir, voru á leið til Egils-
þriðjudags. -ELA staða.
A Egilsstöðum er f rábært
aðvera
—og síðan í Miðgarð eða Húnaver
„Við erum að fara til Grundar-
fjarðar f heimsókn. Ætli maður skreppi
svo ekki yfir í Miðgarð eða Húnaver
eða eitthvað annað,” sögðu þær Helga
Lilja Pálsdóttir og Kristín Þórarins-
dóttir þar sem þær sátu við gosdrykkja-
þamb í afgreiðslunni á Reykjavíkur-
flugvelli. Þær voru að blða eftir að vél-
in færi.
„Annars er bara að leggja af stað og
sjá svo til hvernig allt verður. Við
ætlum að tjalda I Grundarfirði og svo
vonar maður bara að góða veðrið
haldist,” sögðu þær stöllur. -ELA
Þeir voru aö koma úr Flatey þar sem nóg var aö gera 1 fiskvinnunni.
Til Reykjavíkur
úr vinnu f Flatey
„Við erum að koma úr Flatey,”
sagði Konráð Jónsson úr Garðabæ.
Hann sagðist vera að koma 1 bæinn til
að hvíla sig frá störfum en i Flatey
hefur hann unnið í sumar I fiskvinnu.
,,Ég hef engan áhuga á að fara neitt,
ætla bara að taka það rólega,” sagði
Konráð.
Tveir vinnufélagar hans voru með í
ferðinni, þeir Matthías Matthíasson,
sem var að koma í bæinn til að heim-
sækja dóttur sina á sjúkrahús, og
mágur hans, Kjartan Gunnarsson. Þeir
sögðu að það gæti nú vel verið að ball-
ferð fylgdi með í ferðinni en vildu þó
ekki fullyrða neitt um það. - ELA
í Ámes og kannski lengra
,,Ég er að fara í Árnes. Ein? Nei,
vinir mlnir eru farnir á undan og ég
hitti þá þar,” sagði Guðrún Ólafsdóttir
þar sem hún sat með allt sitt hafurtask
fyrir utan Umferðarmiðstöðina. ,,Ég
fór í Árnes I fyrra líka og það var ofsa-
lega gaman og margt fólk.
Það getur llka vel verið að við förum
eitthvað lengra þvi vinir mínir eru með
bil,” sagði Guðrún sem er úr Sand-
gerði. Þar hefur hún starfað sem verk-
stjóri I vinnuskólanum sem var slitið
fyrir stuttu. Núna var það bara helgin
sem hugsað var um, ekki hvað tæki við
áeftir.
-ELA
Við erum hljómsveit
in Tappi tíkarrass
,,Við ætlum í Þjórsárdalinn og tjalda
þar. Hvað við ætlum að gera?
Skemmta okkur. Hvernig? Þetta
verður sko rokna suð. Við ætlum að
elta stelpur eða annars, þær elta
okkur," sögðu þrír hressir gæjar, þeir
Hermann Gislason, Magnús Erlingsson
og isleifur Leifsson 16 og 17 ára.
— Þið eruð ekkert með áfengi,
strákar, er það?
,,Við tölum nú ekkert um það sko.
Við förum í Árnes á ball og segjum nú
ekkert meira.
— En komizt þið inn?
„Heyrðu, við erum hljómsveitin
Tappi tíkarrass?”
Fleiri móðganir komu ekki frá blaða-
manni, hvernig ætti hann llka að
þekkja svona hljómsveitarstráka?
-ELA
Þetta er hljómsveitin Tappi tikarrass sem ætlar að skemmta gestum f Árnesi ásamt
hljómsveitinni Chaplin.
Hún Guórún ætlaði aó hitta vini sina sem komnir voru á undan henni f Árnes og
kannski ætluðu þau eitthvað lengra.
„Fórum i Bifröst i fyrra en förum I
Flókalund núna,” sögðu hjónin Elin
Jónasdóttir og Guðmundur Sigurðsson
þar sem þau biðu eftir Akraborginnl.
Verðum
viku
íFlókalundi
„Við erum að fara í Flókalund og
ætlum að vera þar I viku okkur til
hressingar,” sögðu hjónin Elín Jónas-
dóttir og Guðmundur Sigurðsson. Þar
höfðu þau fengið starfsmannabústað.
Þau hjón voru meðal fjölmargra sem
biðu um þrjúleytið í gær eftir að Akra-
borgin kæmi en hún átti að fara aftur
kl. 4. „Þetta verður nú engin skemmti-
ferð heldur ætlum við bara að hvíla
okkur,” sögðu þau.
„Við fórum í fyrra í Bifröst og þar
var indælt að vera. Við ætlum að reyna
þennan stað núna. Ætli við séum ekki
að þreifa fyrir okkur hvar bezt er að
vera. Svo finnst okkur bara að við
eigum inni gott veður og um leið geta
aðrir fengið að njóta þess,” sögðu
þessi hressu hjón.
- ELA