Dagblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 3

Dagblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981. 15 Hvað er á seyðium helgina? o Messur \ —smiðshöggið á leikár Alþýðuleikhússins CHOW MEIN VIÐ I AllftAlfirriMM — matseðillmeðháttífimmtíu LftUUM ¥ kUI HH kínverskum réttum á Kimunni Myndlr japönsku ilstakonunnar Tnkco Mori i List- munahúsinu eru bsefll nýst&rlegar og vel gerflar. Hér er eitt verka hennar, gert úr nœlonþróflum. ÁRBÆJARSAFN: Opið til 31. ágúst kl. 13.30—18 alla daga nema mánudaga. Strætisvagn 10 frá Hlemmi gengur að safninu. Sérstakar sýningar: Flugsögusýning & ljósmyndir Péturs A. Ólafssonar. LISTASAFN ÍSLANDS v/Suðurgötu: Jón Stefáns- son og Gunnlaugur Scheving, olíumálverk, teikn- ingar og vatnslitamyndir. Opið 13.30—16 daglega. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ v/Suðurgötu: Opið alla daga kl. 13.30—16. Saga lækninga á íslandi. Boga- salur: Sigurður Þorsteinsson gullsmiður. Opiö fram í september. LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegl 16: Lista- verkagjafir til safnsins frá stofnun þess. 57 mynd- verk eftir 29 höfunda. Opnað á laugardag kl. 14. I Listasafni alþýflu vlð Grens&sveg verflur um helglna opnufl sýnlng & listaverkagjöfum tll safnsins. Hér er verifl afl hengja upp eitt verkifl, altaristöflu Samúels Jónssonar i Sel&rdal. Úr leikritinu Stjórnleysingi ferst af slysförum. Björn Karlsson, Arnar Jónsson, Bjarni Ingvarsson og Þráinn Karlsson eru þarna i hlutverkum sinum. STJÓRNLEYSINGINN FER í Nýtt m&lverk eftir Þorvald Skúlason en yfirllts- sýnlng & verkum hans stendur nú yfir i Norræna húsinu. SAFNAHÚSIÐ, Selfossi : — Magnús Jóhannesson opnar málverkasýningu á laugardaginn og stendur hún til 16. ágúst. Opin daglega kl. 16—22. Þá er komið að því hjá Alþýðuleik- húsinu að reka smiðshöggið á við- burðaríkt leikár. Nú um helgina leggur hópur af stað í leikför með hláturstykkið Stjórnleysingi ferst af slysförum. Fyrsta sýningin verður i Búðardal á sunnudaginn. Förinni lýkur á Akureyri þann 23. þessa mán- aðar. Upp úr því verður tekið til óspilltra málanna við að æfa fyrstu verkefni næsta leikárs. Alþýðuleik- hússmenn segja þvf að þó að endar nái ekki saman 1 fjármálum leikhúss- ins þá nái þeir alltént saman í starf- seminni! Stjórnleysingi ferst af slysförum gekk síðastliðinn vetur í Hafnarbíói við mikinn fögnuð áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda. Verkið er eftir ítalska höfundinn Dario Fo. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi og Lárus Ýmir Óskarsson leikstýrir. í helztu hlut- verkum eru Arnar Jónsson, Elisabet B. Þórisdóttir, Bjarni Ingvarsson og Viðar Eggertsson. Sýnignar á Stjórnleysingjanum verða sem hér segir: Búðardalur sunnudaginn 9. ágúst Patreksfjörður mánudaginn 10. ágúst Þingeyri þriðjudaginn 11. ágúst Flateyrimiðvikudaginn 12. ágúst ísafjörður fímmtudaginn 13. ágúst Bídludalur föstudaginn 14. ágúst Skagaströnd sunnudaginn 16. ágúst Sauðárkrókurmánudaginn 17. ágúst Hofsós þriðjudaginn 18. ágúst Siglufjörður miðvikudaginn 19. ágúst Ólafsfjörður fimmtudaginn 20. ágúst Dalvík föstudaginn 21. ágúst Akureyri laugardaginn 22. og sunnu- daginn23. ágúst. Allar sýningarnar hefjast klukkan 21 nema á Akureyri. Þar byrja þær klukkan hálf níu. -ÁT- Senn líflur afl lokum sýningar Guflmundar Björgvinssonar I Djúpinu. Hér er hann ósamt nokkrum verka sinna. Veitingahús vikunnar: Reykajvík hefur lengi verið í hópi þeirra örfáu höfuðborga heimsins, þar sem ekki var kínverskur mat- staður. En nú hefur verið bætt úr því. Þar sem áður hét Rauða myllan neðarlega við Laugaveg er kominn staðurinn ,,Kirna Kínamatur”, þar sem aðeins er boðið upp á kínverska rétti sem matreiddir eru af ekta Kín- verja. Hann heitir Kári Tran Nghi Chien og fæddist fyrir þrjátíu og þrem árum í Yang Chow í Kína, með öllu grunlaus um að hann ætti eftir að standa í eldamennsku við Lauga- veginn. Hins vegar fluttist hann til Vietnam, kvæntist þar, og kom síðar hingað sem flóttamaður og sópaði gólf á lagernum hjá SÍS, þangað til núverandi eigendur Kirnunnar, Bragi Guðmundsson og Guðrún Gísla- dóttir, fréttu af honum. En þau hafði nefnilega dreymt um að stofna kín- verskan matstað f Reykajvlk næstum alveg frá því þau kynntust fyrir tiu árum og tveim mánuðum, þegar bæði unnu við að útbúa heitan mat fyrir farþega í millilandafluginu. Aðalboðorð kínverskra meistara- kokka er að láta hráefnið njóta sin sem allra bezt og skemma það hvorki með ofsuðu né of miklu kryddi. Matartilbúningurinn er afar ein- faldur. Áöur en matreiðslan hefst hefur Kári skorið smátt alls konar grænmeti, fisk og kjöt. Síðan býr hann hvern rétt til á 3—4 mínútum úr þeim hráefnum sem gesturinn óskar, steikir 1 olfu og bætir við kjúklinga- eða grænmetissoði. Hátt í fimmtfu réttir eru á matseðli Kirnunnar, en Kára verður ekki skotaskuld úr því að búa til fleiri ef óskað er, til dæmis þegar Japanir, Formósubúar eða aðrir Asíumenn líta inn og biðja um eitthvað sérstakt. Við fórurri nokkur og smökkuðum á fimm réttum. Það er langskemmti- legast að þeir sem eru saman við borð panti hver sinn rétt og skipti á milli sín, enda eru Kfnverjar frægir fyrir veizlurnar, þar sem réttir eiga að vera jafnmargir gestunum. Okkur bar saman um að maturinn væri mjög góður. Einkenni hans virt- ust okkur vera: léttur og lítið krydd- aður. Kári notar mikið þriðja kryddið til að draga fram bragðið i hráefninu, en mjög lftið sojasósu. Hún er hins vegar borin með, ásamt hrísgrjónum og salati. Það sem við fengum var 1. Vor- rúlla (sem ég mundi kalla vorvefju), fyllt svinakjöti. 2. Kjúklingur, smátt saxaður, soðinn með pilsner og hnet- um, 3. Súrt og sætt lambakjöt, með ananast, papriku, ediki og sykri. 4. Skötuselur f mildu tómatsoði og 5. Smokkfiskur og karfi (sem svo sannarlega er mannamatur!), einnig soðið með tómötum. Verðið á fiskréttunum er kr. 50— 60, á kjötréttunum kr. 70—80, en 'lækkar um tíkall i hádeginu, enda þá færri réttir í boði. Vorvefjan kostar kr. 40. Vínveitingaleyfi hefur Kirnan ekki, en bjór eða te er drukkið með Kári frá Kina við pönnurnar slnar. Hann leggur sál sfna f matreiðsluna og Ijómar upp þegar hann fær gott hráefni, en er niðurbrotinn maður ef gestunum Ifkar ekki maturinn. DB-mynd Einar Ólason. matnum. Þess skal að lokum getið að Kirnan er notalegur staöur, engin músík (guði sé loD, og á kvöldin angar reykelsisilmur af sællegu Búddalfkneski móti gestunum. En um kaffileytið verða þó allar kín- verskar stemmningar að vfkja, þá bakar Guðrún pönnukökur og vöfflur i grlð og erg og býður upp á ósvikið íslenzkt eftirmiðdagskaffi. -IHH Guflsþjónustur i Reykjavikurprófastsdæmi sunnu- daginn 9. &gúst 1981. ÁSPRESTAKALL: Messa í Laugarneskirkju kl. 11. Sönghópur frá Noregi tekur þátt í guðsþjónustunni. Sr. Ámi Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11 árd. Organelikari Guöni Þ. Guðmundsson. Sr. ólafur Skúlason. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Ferming. Fermd verða: Pétur Snæbjörn Johnson og Sonja Ragn- hildur Liff Johnson frá Evanston, Illinois, Banda- rikjunum, p.t. Grenimelur 28, Reykjavik. Dóm- kórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 18.00: Orgeltón- leikar. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel Dóm- kirkjunnar í 30—40 mínútur. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa ld. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriöjud. 11. ágúst kl. 10.30: Fyrir- bænaguðsþjónusta. Beðið fyrir sjúkum. Landspital- inn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Arngrimur Jónsson. KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Altaris- ganga. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organleikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sigurður Haukur Guöjónsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11 í umsjá Ás- safnaðar. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónustan fellur niður vegna safnaðarferðar austur undir Eyjafjöll. Sr. Frank M. Halldórsson. - I.istasötn Sýningar LEIKFÖR UM N0RDURLAND

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.