Dagblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 5
Bænhúsið að Núpsstað. Byggt á 17. öld en endurbyggt fyrir skömmu og er f
umsjá þjóðminjavarðar.
en basaltgangar og basaltlög innan
um. Mynda þau spírur og strýtur sem
bera við loft. Einn klettadrangurinn
heitir Hella. í Krukkspá segir að ein-
hvern tíma muni hann hrynja yfir
Núpsstaðabæinn. Á Núpsstað er
bænhús frá 17. öld, endurbyggt og í
umsjá þjóðminjavarðar. Heimsókn
þangað er vel þess virði.
Á Austur-Síðu, skammt austan við
Foss, neðan þjóðvegar eru Dverg-
hamrar. Tvær klettaborgir mynda
skeifu úr mjög reglulegu og sérkenni-
legu stuplabergi. Dverghamrarnir eru
vel þess virði að skoða.
Þá má í þriðja lagi nefna sérkenni-
legan staö f Klausturtúni, rétt við
byggðina að Kirkjubæjarklaustri.
Þar er lftill pallur myndaður af reglu-
legu stuðlabergi. Engu likara er en
handlagnir menn hafi lagt steinfllsar
á jörðina og búið þannig til pallinn.
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSOIM
Sagan segir að þarna hafi staðið
kirkja tilforna. Hana eiga papar að
hafa byggt. Af því dregur fyrirbærið
nafn: Kirkjugólf. Talið er að
paparnir (kristnir írar) hafi fyrst sest
að á Kirkjubæjarklaustri. Þar var
stofnað nunnuklaustur árið 1186 og
stóð til siðaskipta. Rústir klausturs-
byggingarinnar eru í KirJcjuhólum.
-ARH.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. ÁGUST 1981.
Á Núpsstaö búa tveir bræður, Eiríkur og Eyjólfur, synir Hannesar pósts
Jónssonar. Eiríkur var að vinna viö þakbyggingu á útihúsi þegar hóp frá Ferða-
félagi íslands bar aö garði. Ingvar Teitsson læknir, annar fararstjóranna, sést hér
ibygginn mjög á tali við Eirík.
DB-myndir Atli Rúnar.
Hvaö eráseyðium helgina?
óhætt cr að fullyrða að undirtektir fyrir norðan
hafi verið mjög góðar, enda verkið um margt nýstár-
legt og víöa komið viö í glensinu. Mest er þó baunað
á ferðaskrifstofurekstur og sólarlandaferðir íslend-
inga. Er mál manna að persónur þær sem koma
fram í revíunni séu ekki með öllu ókunnar og
margur hefur séð sjálfan sig á sviðinu.
Þar sem aöeins er um þessar tvær sýningar að
ræða er ástæða til aö hvetja Reykvlkinga til aö láta
tækifærið ekki ganga sér úr greipum. Videoeig-
endum sem ekki vilja missa af Karli og Díönu á
laugardagskvöldið er bent á að ýta á takkann sinn og
njóta skemmtunarinnar á Hótel Sögu. Það ætti
Tónleikar
Sumartónleikar
f Skálholtskirkju
Nú um helgina veröa haldnir þriðju sumartónleik-
arnir í Skálholtskirkju. Þaö eru Camilla Söderberg,
ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Snorri örn Snorrason
sem leika og munu flytja tónlist frá renaissance- og
barokktímanum. Camilla leikur á ýmsar gerðir af
blokkflautum, ólöf Sesslja á Viola da Gamba og
Snorri á lútu. öll eru hljóöfærin eftirlíkingar af
orginal hljóðfærum sem á ver leikið á 16., 17 og 18.
öld. Til gamans má geta þess, aö þetta verður I fyrsta
skipti sem íslendingur leikur á Viola de Gamba hér á
landi. Tónleikarnir verða haldnir laugardag og
sunnudag og hefjast kl. 15. Aðgangur er ókeypis.
Messað verður í Skálholtskirkju sunnudag kl. 17.
enginn að láta ævintýrin á Costa del Losta fram hjá
sér fara. Bragi Skjólberg og starfsfólk hans mun sjá
um að engum leiðist á Hótel Sögu um næstu helgi.
Góöa skemmtun.
Ferðalög
Ferðafólag íslands
Dagsferðir sunnudaginn 9. ágúst:
1. kl. 08: Bláfell (1204 m) við Bláfellsháls. (Leiðin
norður Kjöl). Fararstjóri: Þorsteinn Bjarnar. Verð
kr. 80.
'2. kl. 13 Gengið með fram Hengladalaá. Farar-
stjóri: Ásgeir Pálsson. Verð kr. 40.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bll.
7.-9. ágúst kl. 20: Hveravellir — Oddnýjarhnjúkur
(grasaferð).
■ Útivistarferðir
Föstudag 7. ágúst kl. 20.
Þórsmörk, helgarferö.
Sunnudag 9. ágúst kl. 8.00
Þórsmörk, einsdagsferö.
Kl. 13. Selatangar-Grindavik.
Upplýsingar og farseölar á skrifstofu Lækjargötu
6a, sími 14606.
7. ágúst 3ja daga ferð I Þórsmörk og Veiðivötn.
Upþlýsingar og farseðlar á skrifstofunni Lækjar-
götu6 A..slmi 14606.
Iþróttir
íslandsmótið í
knattspyrnu
Fústudagur 7. ágúst
Akureyrarvöllur
KA — Valur, 1. deild, kl. 20.00.
Akranesvöllur
ÍA — KR, kvennafl., kl. 20.00.
Kaplakrikavöllur
FH - UBK, kvennafl., kl. 20.00
Valsvöllur
Valur — Leiknir, kvennafl., kl. 20.00.
Laugardagur 8. ágúst
Kópavogsvöllur
UBK-KR, l.deild.kl. 16.
Laugardalsvöllur
Vikingur — Þór, 1. deild, kl. 14.
Vestmannaeyjavöllur
ÍBV — FH, 1. deild, kl. 14.
Borgarnesvöllur
Skallagrimur — ÍBK, 2. deild, kl. 14.
Neskaupstaðarvöllur
Þróttur N — Fylkir, 2. deild, kl. 14.
Sandgerðisvöllur
Reynir — Völsungur, 2. deild, kl. 14.
Selfossvöllur
Selfoss — ÍB4,2. deild, kl. 14.
Grindavikurvöllur
Grindavík — Ármann, 3. deild A, kl. 14.
Hveragerðisvöllur
Hveragerði — Óðinn, 3. deild A, kl. 14.
Viðkomustaður f erðamannsins
um helgina:
Bænahúsið
áNúpsstað
—Dverghamrar, kirkjugólf papanna
viðKlaustur
Ferðamenn, sem leggja leið slna 1
þjóðgarðinn að Skaftafelli, eiga þess
kostaðskoðasittafhverju markvert
á leiðinni. Þrjá staði má nefna til
dæmis, alla í Vestur-Skaftafellssýslu.
Fyrst skal telja Núpsstað, austasta
bæ sýslunnar. Þar bjó lengi sá frægi
maður Hannes Jónsson landpóstur,
er annaðist póstflutninga milli Síðu
og Hornafjarðar. Margar sögur fara
af svaðilförum hans í jökulvötnunum
áleiðinni.
Fyrir ofan Núpsstaðabæinn er
hrikalegur hamraveggur úr móbergi
'Varmárvöllur
Afturelding — ÍK, 3. deild A, kl. 14.
Njarðvíkurvöllur
Njarðvík — ÍR, 3. deild B, kl. 14.
Stjömuvöllur
Stjarnan — Leiknir, 3. deild B, kl. 14.
Þorlákshafnarvöllur
iÞórÞ. — Lítlir, 3. dcildB.kl. 14.
Akranesvöllur
; HV — Reynir, He., 3. deild C, kl. 14.
Stykkishólmsvöllur
iSnæfell — Víkingur, Ó., 3. deild C, kl. 14.
Árskógsstrandarvöllur
iReynir, Á. — Tindastóll, 3. deild D, kl. 16.
Ólafsfjarðarvöliur
Leiftur — USAH, 3. deild D, kl. 14.
Seyðisfjarðarvöllur
Huginn — UMFB, 3. deild F, ki. 15.
Vopnafjarðarvöllur
Einherji — Valur, 3. deild F, kl. 14.
Breiðdalsvöliur
Hrafnkell — Sindri, 3. deild G, kl. 14.
Eskifjarðarvöllur
Austri — Súlan, 3. deild G, kl. 14.
Vopnafjarðarvöllur
Einherji — Valur, 5. flokkur E, kl. 16.
Sunnudagur 9. ágúst
Laugardalsvöllur
Fram — ÍA, 1. deild, kl. 19.
Selfossvöllur
Selfoss — Völsungur, 2. flokkur B, kl. 14.
Egilsstaðavöllur
Höttur — Austri, 3. flokkur E, kl. 14.
Hornafjarðarvöllur
Sindri — Einherji, 3. flokkur E, kl. 14.
Seyðisfjarðarvöllur
Huginn — Súlan, 3. flokkur E, kl. 14.
Skil íhelg-
ardagbók
Vegna vinnslutíma helgardag-l
bókar Dagblaðsins skal bent á að|
þeir sem hyggjast koma að efni
hana skulu skila því í siðasta lagi
klukkan fimm á miövikudags-|
eftirmiðdögum. Ekki er tryggt aðl
tilkynningar sem berasl siðar|
komist inn þá vikuna. ’
Varðandi efni I heigardagbók-1
jna skal tekið fram að hún á ein-|
göngu að fjalla um atburði sem I
eru að gerast um helgina. Annaðl
efni fer i fasta dagbók blaðsins.
-ÁT.
Nygginn
lætur sér
segjast
SPENNUM
BELTIN!
UuMferðar
RÁÐ