Dagblaðið - 26.08.1981, Page 5

Dagblaðið - 26.08.1981, Page 5
DAGBLADID. MIDVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981. 5 Unglingsstúlka mikið slösuð eftir umferðarslys: DRÓST 30 METRA MEÐ JEPPABIFREIÐ 14 ára gömul stúlka slasaðist mikið er hún varð fyrir jeppabifreið úr Reykjavik á móts við bæinn Drangshlíð undir Eyjafjöllum sl. föstudagskvöld. Var hún flutt á Borgarspítalann í Reykjavík og kom í ljós að hún hafði lærbrotnað, mjaðmagrindarbrotnað og skaddazt innvortis, m.a. á nýrum og milta. Aðdragandi slyssins var sá að stúlkan var farþegi á dráttarvél. Er drátfarvélin kom að hliði stöðvaðist hún og hugðist stúlkan opna hliðið. Stúlkan gekk meðfram dráttarvélinni og fór síðan inn á veginn en í sama mund kom jeppinn aðvífandi. Lenti stúlkan á jeppanum, dróst með honum um 30 metra vegalengd og varð undir öðru framhjólinu. Ökumaður jeppans varð ekki var við stúlkuna fyrr en um seinan þar sem hún var í hvarfi við dráttarvélina. Stúlkan er úr allri lífshættu. Hún er úr Reykjavík. en var í sveit á bænum Drangshlíð. -KMU. Kennarar Kennara vantar við Grunnskólann Raufarhöfn. Nánari uppl. veitir Jón Magnússon skólastjóri í síma 96- 51164. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 Rennt fyrir lax í Blikdalsá á Kjalarnesi á laugardaginn. Blikdalsá á Kjalarnesi: DB-mynd: Gunnar Bender. Rokið stöðv- aði veiðarnar Það varð lítið úr veiði hjá þeim sem renndu fyrir lax í Blikdalsá á Kjalarnesi í óveðrinu um helgina. Blikadalsá rennur í sjó fram hjá Bakka á Kjalarnesi og ef nafnið hljómar ókunnuglega gæti það verið vegna þess að til skamms tíma var áin kölÍuðÁrtúnsá. Þar hafa margar tilraunir verið gerðar með ræktun og þúsundum seiða sleppt í ána. En hún mun vera of köld fyrir laxinn og hann gengur því ekki stíft í hana — enda lætur skepnan sú ekki bjóða sér hvað sem er. Á laugardaginn renndu tíðinda- VEKHVON t menn DB í Blikdalsá til að vita hvort þar væri nokkuð lif að finna en í henni eru sagðir margir góðir veiðistaðir. En þegar vindur er slíkur, að færið fýkur jafnan aftur upp á bakkann, eins og var orðið um há- degið, er lítið annað að gera en að draga inn og halda heim á leið. Áður en það var, höfðum við þó náð á land tveimur löxum, 15 punda og 7 punda. Einhver lax mun því vera í ánni en ekki gengur hann í torfum. Ein stöng er leyfð í ánni og kostar 300 krónur á þessum tíma árs. Veiðileyfi selur Stangaveiðifélag Reykjavíkur. -GB. Belgar en ekki Frakkar á trukknum „Þetta voru Belgíumenn en ekki Frakkar,” sagði íslenzkur leið- sögumaður útlendra ferðamanna sem hafði samband við Dagblaðið vegna fréttar um ferðalag útlendinga um há- lendið á stórum trukk af MAN-gerð. ,,Ég varð var við Belgana í Land- mannalaugum og Herðubreiðarlind- um. Mér sýndust þetta vera túristar i efnaðra lagi og veit ekki til að gerð hafi verið athugasemd við ferðalag þeirra.” Leiðsögumaðurinn sagðist hafa sent samgönguráðuneytinu númer trukksins og jeppanna tveggja, sem voru í samfloti við hann. Trukkurinn bar númerið 11S 157, Range Roverinn var númer 894 D6 og Datsuninn númer CXD 441. Ákveðinn starfsmaður samgönguráðuneytisins safnar og fylgist með að þeir fylgi lögum og upplýsingum um hópferðir útlendinga reglum sem gilda á tslandi. -ARH. ÚTBOÐ Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboði i að byggja kyndi- stöðvarhús á Patreksfirði. Útboðsgögn fást keypt á tæknideild Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1 ísafirði, sími 94-3211, og kosta þau kr. 150,00. Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 10. sept. nk. kl. 14. Orkubú Vestfjarða, tæknideild 1 Með varúð al m um vegi landsins æÆ fara. _ * UMFERbAR SVFR Vakin er athygli á nýju veiðisvæði, sem er Staðará á Snæfel/snesi fyrir landi Staðastaðar, en þar verður veitt á 4 stangir samtímis og mega tveir vera saman um stöng. Lax- og sjóbirtingsveiði. Verð veiðileyfis kr. 250. Frá Akranesi er um 2ja klst. akstur að Staðará. Athugið að enn eru nokkrar stangir lausar á Lýsuvatnasvæðinu sem er i næsta nágrenni við Staðará. Gisting að Hótel Búðum, á félags- heimilinu að Lýsuhóli eða að Görðum. Tjaldstæði fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar á skrifstofu SVFR, Austurveri, sími 86050, eða 83425. Stangaveiðifólag Reykjavikur. aÓNSKÓLI SIGURSVEIN6 D. KRISTINSSQNAR | Hollusundi 7 Reykjavik Innritun og greiðsla námsgjalda fyrir haustönn verður í dag, miðvikudaginn 26., á morgun, fimmtudaginn 27., og á föstudaginn, 28. ágúst, kl. 16 til 19 í Hellusundi 7. Nemendur sem sóttu um framhaldsskólavist á síðastliðnu vori eru sérstaklega áminntir um að staðfesta umsóknir sínar með greiðslu náms- gjalda, þar sem skólinn er fullsetinn nú þegar. Upplýsingar um stundaskrárgerð og fleira verða veittar við innritun. Ekki verður svarað í síma meðan á innritun stendur. Skólastjóri.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.