Dagblaðið - 26.08.1981, Side 24
r
frfálst, nháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST1981.
,.Fólk spyr
hvort ég
sé orðinn
öfugur”
— segir Hallgrímur
Marinósson sem
bakkaríHrúta-
fjörðinnfdag
„Það er óhætt að segja að þetta til-
tæki hafi vakið gífurlega athygli,”
sagði Hallgrímur Marinósson, sá sem
bakkar nú umhverfis landið, alls 1560
kílómetra. ,,Ég hef margoft verið
stöðvaður,” sagði hann. „Fólk spyr
mikið um söfnunina sem fer fram með
bakkinu. Nú og svo vilja menn vita um
heilsufarið. Hvernig ég hafi það í
hálsinum, hvort ég sé nokkuð að verða
öfugur og svo framvegis.”
Hallgrímur var á Blönduósi er blaða-
maður DB náði tali af honum í
morgun. Þaðan bakkar hann að Stað í
Hrútafirði í dag. Þarnæsti áfangi er
Borgarnes og til Reykjavíkur kemur
Hallgrímur um fimmleytið á föstudag.
„Ferðin hefur gengið vel til þessa,”
sagði Hallgrímur. ,,Ég held alveg áætl-
ún enda ætlaði ég mér rúman tíma í
upphafi.
Ég varð þó fyrir því óhappi um dag-
inn að bakka útaf á Breiðdalsheiði. Ég
var í mestu makindum að troða mér í
pípu og vissi ekki fyrr til en ég var
kominn út af. Það var dýrmæt reynsla
sem ég fékk við þetta. Alla vega treð ég
mér ekki í pípu á ferð eftir þetta.”
Þá mun Hallgrímur hafa lent í smá-
erfiðleikum er hann bakkaði upp á
jarðfastan stein á veginum á Möðrudal.
Skodabifreiðin sem hann ekur festist á
steininum og tók dálitinn tíma að ná
henni niður. Engar skemmdir urðu á
bílnum. -ÁT-
TT
VIN Q NIN Q jUR
IVÍKU HVERRI
Vinningurvikunnar:
Crown-sett
frá Radíó-
búðinni
Vinningur í þessari viku er
Crown-sett frá Radíóbúðinni,
Skipholti 19, en ekki myndsegul-
band eins og sagt var á bakslðu I
blaðinu í gœr og á mánudag. 1 vik-
unni verður birt, á þessum stað í
blaðinu, spurning tengd smáaug-
lýsingum Dagblaðsins. Nafn hepp-
ins áskrifanda verður slðan birt
daginn eftir I smáauglýsingunum
og gefst honum tcekifceri til að
svara spurningunni. Fylgizt vel
með, áskrifendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegum
hijómflutningstœkjum rikari.
c ískalt
Sevenup.
hressir betur.
Eftirmáli biskupskjörs:
SERA ARNIKÆRIR UR-
SKURD KJÖRNEFNDAR
— mörgum stuðningsmönnum sr. Ólafs heitt í hamsi en fremur ólíklegt talið
að dómsmálaráðherrann taki kærur til greina
,,Ég sætti mig ekki við að
kjörnefnd ógildi atkvæðin þrjú vegna
formsatriði þegar fyrir liggur að þau
bárust fyrir tilsettan tíma. Umslag
með atkvæði Jósafats var stimplað í
ráðuneytinu að mér sjáandi. Mér
finnst röksemdir kjörnefndar ekki
fuilnægjandi og hyggst því kæra úr-
skurð hennar,” sagði sr. Árni Páls-
son í Kópavogi við Dagblaðið í
morgun.
Þrjú atkvæði í biskupskjöri voru
ekki talin í gærmorgun, þar sem
fylgiskjöl vantaði. Stuðningsmenn sr.
Ölafs Skúlasonar telja sig hafa „átt”
tvö atkvæðanna, þannig að heildar-
úrslitin hafi ráðizt á úrskurði kjör-
nefndar en ekki atkvæðagreiðslu
presta og leikmanna. Eitt at-
kvæðanna þriggja átti Jósafat J.
Líndal, sparisjóðsstjóri í Kópavogi.
Sr. Árni Pálsson fór með atkvæði
hans í dómsmálaráðuneytið á tilsett-
um tíma og ætlar nú að kæra til
dómsmálaráðherra meðferð
kjörnefndar á því.
Sr. Árni sagðist í morgun vilja að
atkvæðið yrði talið gilt, Jósafat
teldi sig hafa sent öll plögg með
umslaginu sem hann fékk í hendur:
„Er ekki hugsanleg handvömm
þeirra sem sendu út kjörgögnin?
Umrætt fylgiskjal hafi kannski
aldrei verið sent tU Jósafats? Það er
ekki fullyrðing, heldur spurning, sem
mér finnst kjörnefnd ekki velta fyrir
sér.”
Jósafat Líndal furðaði sig á því, í
samtaU við DB í morgun, að „kjör-
stjórn blaðri í menn hverjir eigi at-
kvæðin sem ekki voru talin með. Það
er ekki látið viðgangast í öðrum
kosningum.”
Ekki er vitað hvort fleiri kærur
kunni að berast vegna biskupskjörs.
Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráðherra mun birta afstöðu sína til
kæruefna i næstu viku, eftir að
kærufrestur er runninn út.
Stuðningsmönnum sr. Ólafs er
mörgum hverjum heitt í hamsi vegna
afstöðu kjörnefndar. Talað er t.d.
um „orðhengUshátt kjörnefndar-
manna”. í röðum Ólafsmanna er
talað um að litlar líkur séu á því að
ráðherra taki kærur til greina. Einnig
hefur DB heyrt það sjónarmið að
endurtaka beri biskupskjörið ef
kærur verða samþykktar. Annars
væri orðið opinbert hvað þeir þrír
kjósa sem um er rætt. Og
bókstafurinn segir kosninguna eiga
að vera leynilega.
-ARH.
Bílskúrinn er nú horfinn — hann stóð þar sem fólkið á myndinni stendur. Blll sem stóð þar I götunni var með splundraða framrúðu og einnig brotnuðu rúður / nœstu
húsum. DB-mynd: Gunnar Örn.
Bílskúr i Hafnarfírði
splundraðist ísprengingu
— orsökin talin leki í gaskút — Engan sakaði
Bílskúr við Bröt'ukinn 8 í Hafnar-
firði sprakk í lof' upp um ellefuleytið í
gærkvöldi. Að.ins er eftir brak og rúst-
ir þar sem b’.skúrinn stóð og flest sem í
honumvp: ónýtt.
Rúð' i brotnuðu i næstu húsum, svo
og rúða í bíl er stóð á götunni nálægt
skúmum. Þá brotnuðu rúður í nálægu
gróðurhúsi. Engan mann sakaði en
eignatjón er víða í grenndinni.
Eigandi bílskúrsins hefur vinnuað-
stöðu til járnsmíða, pípulagna og
fleira í skúrnum. Hafði hann verið að
vinna þar um kvöldið en var farinn af
vettvangi. Annars hefði hann vart verið
til frásagnar af einu eða neinu.
Talið er að gaskútur hafi lekið og
loftið í bílskúrnum verið orðið mettað
gasi. Síðan hefur gasmettaða loftið
komizt í snertingu við olíu, rafmagn
eða glóð og sprenging orðið. Hennar
varð vart í mörg hundruð metra fjar-
lægð en þó fólk væri nærri gluggum í
nálægum húsum hlaut enginn maður
skaða af.
-A.St.
„Ekkert klárt í Fischer-málinu ennþá”
— segir Jóhann Þórir Jónsson, sem falið var að vinna að málinu
„Þaö hefur ekkert gengið ennþá,”
sagði Jóhann Þórir Jónsson er blaða-
maður DB spurði hann í morgun
hvort eitthvað hefði gengið viö að ná
sambandi við Bobby Fischer. Eins og
komið hefur fram i fréttum mun
Fischer hafa haft samband við
Campomanes, varaforseta FIDE, og
lýst því yfir að hann vildi tefla
opinberlega á ný og þá sem heims-
meistari.
Friðrik Ólafsson fól Jóhanni Þori
að vinna að málinu, en sá síðarnefndi
sagði í morgun að ekkert væri klárt i
málinu. Hann kvaðst telja það miður
að fréttir um þetta mál hefðu borizt
héðan til Mexikó þar sem Friönk
Óiafsson hefði orðið fyrir óþægind-
um vegna þessa máls og öruggasta
leiðin til að koma Fischer úr jafnvægi
væri umfjöllun um málið i heims-
pressunni.
Skákáhugamenn hafa yfirleitt
tekiö fréttum um málið með varúð
og jafnvel talað um að hér geti veriö
um að ræða „kosningabombu” hjá
Campomanes sem hyggi á framboð
gegn1 Friðrik Ólafssyni til forseta-
embættis FIDE á næsta ári. -GAJ.