Dagblaðið - 20.10.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1981.
5
„íslenzk stjómvökl geta veht
Amarfíugi leyfí á Frankfurt”
—segir Gunnar Þorvaldsson f ramkvæmdastjóri — „Sama f lugráð og nú situr mælti með leyfi
Iscargo til Amsterdamf lugs—við erum því bjartsýnir á úrslitin”
„Við erum mjög bjartsýnir á að
flugráð mæli með því að Arnarflug
fái leyfi til að fljúga á Frankfurt,”
sagði Gunnar Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs í gær.
Hann bætti við: „Iscargo fékk til
dæmis meðmæli með veitingu leyfis
til flugs til og frá Amsterdam frá
flugráði sem er skipað sömu mönn-
um og þá. Við höfum fulla ástæðu til
bjartsýni um úrslit málsins.”
Bjartsýnir Arnarflugsmenn kynntu
sjónarmið sin fyrir blaðamönnum í
nýjum húsakynnum fyrirtækisins að
Lágmúla 7. Sjöttu hæð hússins
keypti fyrirtækið af Félagi bóka-
gerðarmanna. Hefur hún verið sniðin
að þörfum Arnarflugs á smekklegan
og að því er virðist hagkvæman hátt.
„Með hliðsjón af milliríkjasamn-
ingum teljum við að íslenzk flug-
málayfirvöld geti veitt Arnarflugi hf.
leyfi til Frankfurtflugs,” sagði
Gunnar ennfremur. Hann kvaðst
ekki vita til þess að umræður milli
stjórnvalda landanna um slíkt leyfi
hefðu farið fram. Neikvæð afstaða
þýzkra flugmálayfirvalda lægi
því ekki fyrir ef hún ætti á annað
borð nokkurn rétt á sér. DB sagði i
frétt í gær að samkvæmt sínum
heimildum hefði þessi afstaða komið
fram í óformlegum viðræðum.
„Samstarf eða/og samruni eru
meðal annars inni í myndinni í
viðræðum Arnarflugs hf. og Iscargo
hf. Þessar viðræður ganga hægt.
Þær standa þó enn og ástæða er til að
búast við niðurstöðu fyrr en síðar,”
sagði Gunnar Þorvaldsson.
Þeir Gunnar, Haukur Björnsson
stjórnarformaður, Halldór Sigurðs-
son sölustjóri, sem og Stefán Hall-
dórsson og Magnús Oddsson, hátt-
settir starfsmenn félagsins, höfnuðu
algerlega þeim rökum sem fram hafa
komið af hálfu Flugleiða hf.að leyfi
til handa Arnarflugi tefldu rekstri
Flugleiða í hættu og atvinnuöryggi
margra starfsmanna.
Arnarflugsmenn töldu þvert á móti
að hér væri um að ræða vannýttan
flugmarkað. Biti Flugleiða af kök-
unni minnkaði alls ekki heldur
stækkaði kakan öll og meira yrði tii
skipta fyrir bæði flugfélögin. Lögðu
þeir fram skýrslur og spár máli sínu
til sönnunar.
„Vegna verndunarsjónarmiða
stjórnvalda allt frá sameiningu stóru
flugfélaganna hefur Arnarflugi alltaf
verið þröngur stakkur skorinn,”
sagði Gunnar Þorvaldsson. „Hin
pólitiska ákvörðun um sameininguna
gat ekki til langframa, hvað þá til
eilífðarnóns, þýtt algera einokun á
flugi á fslandi,” sagði Gunnar.
Hann kvað það margra manna mál
að ekki hefði orðið stórbreyting til
batnaðar á rekstrargrundvelli í flugi
með hinni pólitísku aðgerð 1973.
Hún hefði í raun alls ekki sannað
ágæti sitt eða réttmæti. „Eilífðar-
einokun” sé í raun fráleitt ástand.
Helztu þættir í starfsemi Arnar-
flugs hf. eru innanlandsflug, svo-
kallað áhættuflug, svo sem leiguflug
á sumrin, og áætlunarflug erlendis,
sem auki traustleika rekstrarins.
Arnarflug þjónar reglubundið 11
stöðum í innanlandsflugi. „í því er
reynsla góð og vaxandi og bjartsýni
ríkjandi um þapn hluta rekstrarins,”
sagði Gunnar. „Þess ber þó að geta
að öll aðstaða til innanlandsflugs og
búnaður flugvalla hefur gífurleg
áhrif á hagkvæmnina, afkomuna og
þjónustuna almennt.”
„Við höfum verulega gaman af því
að takast á við innanlandsflugið,”
sagði Gunnar. Hjá Arnarflugi vinna
50—90 manns eftir árstíðum og ann-
ríki. í vaxandi mæli er reynt að auka
traust starfsfólks á öruggu og varan-
legustarfi. -BS.
Þjóðlagaflokkurinn Dubliners. Myndin var tekin þegar hann var hér á ferð áríð
1978. Þá skemmtu Dubliners í Laugardalshöll fyrir fullu húsi. DB-mynd.
DUBLINERS HALDA
TVENNA HLJOM-
LEIKA í REYKJAVÍK
írski þjóðlagaflokkurinn Dubliners
er að koma. Hann heldur tvenna
hljómleika í Háskólabíói föstudags-
kvöldið 30. og laugardagskvöldið 31.
október. Það er Þorsteinn Viggósson
sem flytur Dubliners inn. Þorsteinn
stóð einmitt fyrir heimsókn bandaríska
söngflokksins Platters fyrir nokkrum
vikum.
Dubliners eru aldeilis ekki að koma í
fyrsta skipti til íslands. Þeir héldu
hljómleika í Laugardalshöllinni á
Listahátið 1978. Uppselt var á þá
hljómleika. Hátt á fimmta þúsund
manns mættu og skemmtu sér konung-
lega, sungu, klöppuðu og stöppuðu í
takt við írskar kráa- og drykkjuvísur
Dubliners.
Félagarnir í Dubliners koma hingað
til lands 29. október. Kvöldið áður
verða þeir með tónleika í Osló. í
Gautaborg verða þeir sunnudaginn 25.
október, kvöldið eftir i Stokkhólmi og í
Kaupmannahöfn 27. okt.
Nánar verður sagt frá Dubliners í
Dagblaðinu síðar. -AT-
Flytja inn „pípara”
til Akraness
—til að f lýta fyrir tengingu aðveituæða
íbænum
Nú styttist óðum í að Akurnesingar
fái heita vatnið og er aðveituæðin —
hin lengsta á landinu — svo gott sem
tilbúin. Er hún í allt um 75 kílómetrar
að lengd.
Hins vegar er ljóst að ekki nema um
helmingur bæjarbúa verður í stakk
búinn til að taka á móti varmanum
loksins þegar honum verður hleypt á.
Hafa heimamenn verið nokkuð seinir
að taka við sér og eru annirnar slíkar
hjá pípulagningamönnum staðarins að
þeir sjá ekki fram úr verkefnunum
næstu mánuði.
Hefur hitaveitan tekið það til bragðs
að reyna að „flytja inn” pípulagninga-
menn utan frá til þess að reyna að flýta
frekar fyrir framkvæmdum. Munu þeir
starfa á vegum pípulagningameistar-
anna í bænum en hitaveitan mun hins
vegar sjá um uppihald þeirra. Ef að
líkum lætur verður heita vatninu hleypt
á bæinn í lok nóvember.
Myndbandastríðið í Hamraborginni:
„EKKERT NEMA UMSTANG
0G ÚTGJÖLD FYRIR OKKUR”
— segir Sigurður Ólafsson hjá Videosón og telur ónýtt loftnetskerf i
aðalorsökina fyrir óánægju íbúanna
„Ástæðan fyrir því að við gáfumst
upp á viðskiptum við íbúa í Hamra-
borg í Kópavogi var fyrst og fremst
sú að íbúarnir vildu ekki standa
straum af kostnaði við breytingu á
loftnetskerfinu — einkum og sér í
Iagi þeir sem ekki voru hlynntir
videoinu i upphafi. Loftnetskerfið
var svo lélegt í flestum húsanna að
þurft hefði að breyta því að stórum
hluta eða jafnvel skipta alveg um það
til að koma videosendingum óbrengl-
uðum til skila,” sagði Sigurður
Ólafsson hjá Videosón er Dagblaðið
ræddi við hann í gær.
Eftir heimildum sem Dagblaðið
hefur aflað sér brauzt út talsverð
óánægja á meðal hluta ibúa Hamra-
borgar nú fyrir helgina með þá
þjónustu sem Videosón veitti. Höfðu
íbúarnir krafizt þess að afnotagjöldin
yrðu felld niður í einn mánuð sökum
lélegs myndavals og lélegra mynd-
gæða. Féllst Videosón á þær óskir.
Hins vegar sauð endanlega upp úr í
samskiptum aðilanna fyrir helgina og
komu þá menn frá fyrirtækinu og
höðfu á brott með sér tækin sem
notuð voru til útsendinga.
„Það hefur ekkert verið að hafa
upp úr þessu stappi í Hamraborginni
nema umstang og gífurleg útgjöld
fyrir okkur. Við höfum reynt allt sem
í okkar valdi hefur staðið til að koma
útsendingum í lag og gert eins mikið
og hægt var.” Einkum mun óánægj-
an hafa átt sér . -»ð hjá íbúum sem
ekki voru hlynntir videoinu í önd-
verðu og höfðu orðið fyrir truflunum
á útsendingu íslenzka sjónvarpsins
sem forráðamenn Videosón telja
fyrst og fremst stafa af lélegu loft-
netskerfi.
Að sögn Sigurðar hafa tvær aðrar
blokkir eða íbúðasamstæður gengið
úr viðskiptum hjá fyrirtækinu. í öðru
tilfellinu var það eingöngu vegna
vanskila íbúanna sem ekki greiddu
afnotagjöldin sem upp voru sett.
Þetta er aðeins lítið brot af viðskipta-
vinum Videosón og að sögn Sigurðar
vissi hann ekki betur en fólk væri
almennt ánægt með þá þjónustu sem
fyrirtækið veitti. -SSv.
ÆLKERAKRUSIRNAR IT
VINSÆLU FRÁ ULI I
Upplagöar tækrfærísgjafir
GLIT
HÖFÐABAKKA 9 - SIMI 85411
Þórhildur hlaut leikstjórastyrk
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri sjóðnum. Styrkupphæð er kr. 9 Reykjavíkur og Gust hjá Þjóðleik-
hlaut styrk menningarsjóðs Félags þúsund. Þórhildur hefur sett upp á húsinu.
leikstjóra að þessu sinni. Þetta er í þriðja tug sýninga. f fyrra setti hún -JH.
annað sinn sem úthlutað er úr iupp Ótemjuna . hjá Leikfélagi
-SSv.