Dagblaðið - 20.10.1981, Page 6
/ •
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Leikkonan Melina Mercouri hélt upp á 56 ára afmælisdaginn sinn sama dag og hún
var i annað sinn kosin á þing fyrir flokk Andreas Papandreou, Pasok, Sam-hellensku
sósíalistahreyfinguna. Mercury var svift borgarréttindum sinum í Grikklandi fyrir
gagnrýni sina á grisku herforingjastjórnina og var sjö ár i útlegð. Hún náði fyrst
kosningu árið 1977 sem þingmaður fyrir borgina Pireus. Á myndinni sést hún fagna
sigri ásamt stuðningsmönnum sinum og á borðanum að baki þeim stendur: Pasik,
Melina Mercouri, frambjóðandi Sam-hellensku sósíalistahreyfingarinnar i Pireus.
Mercouri hefur nú verið orðuð við ráðherraembætti i hinni nýju ríkisstjórn
Papandreous.
AGREININGUR UM
AÐALRITARA SÞ
— ríki þriðja heimsins vilja hann úr eigin röðum
Mikill undirbúningur er nú í gangi
fyrir tilnefningu nýs aðalritara Samein-
uðu þjóðanna. Kurt Waldheim, 63 ára
Austurrikismaður sem setið hefur í
embættinu í 10 ár hefur boðið sig fram
að nýju til næstu fimm ára. En
aðalkeppinautur hans, utanríkisráð-
hjerra Tanzaníu Salim Ahmed Sahlim,
39 ára gamall, er talinn líklegur til að
verða arftaki hans.
Waldheim nýtur eindregins stuðn-
ings þriggja af fimm fastaríkjum
Öryggisráðsins, Sovétríkjanna, Banda-
ríkjanna og Bretlands, en Frakkland
styður hins vegar Salim. Um afstöðu
Kína er ekki vitað. Öryggisráðið, sem
15 ríki eiga aðild að, mun tilnefna aðal-
ritarann síðar í þessum mánuði eða í
byrjun þess næsta. Tilnefningin verður
að hljóta meirihlutastuðning a.m.k. 9
ríkja í öryggisráðinu. Er búizt við að
margar kosningar þurfi að fara fram
áður en meirihluti fæst. Þegar er vitað
að Salim nýtur stuðnings tveggja þriðju
hluta aðildarríkja Sameinuðu
þjóðanna, sem eru 156 að tölu. Samtök
óháðra ríkja, Einingarbandalag
Afríkuríkja og Arababandalagið hafa
samþykkt stuðningsyfirlýsingar við
hann. Er það honum nokkur styrkur
þótt tilnefningin verði ekki ákveðin á
allsherjarþinginu, heldur í leynilegum
kosningum í öryggisráðinu, en þar
Kurt Waldheim.
hafa fastaríkin neitunarvald. Tanz-
aníumenn grunar að Bretar kunni að
beita þessu valdi gegn tilnefningu Salim
og vitað er að Bandaríkjamönnum
þykir hann róttækur um of.
Þótt formlega sé hér ekki um kosn-
ingu að ræða heldur tilnefningu, hafa
frambjóðendurnir sett á svið vísi að
kosningabaráttu. Waldheim hefur
heimsótt höfuðborgir fastaríkja Öygg-
isráðsins og sótt aðalfundi margra
ríkjabandalaga. En það er óvíst hvort
það dugar honum til tilnefningar, því
ríki þriðja heimsins í Afríku, Asíu og
Suður-Ameríku virðast ætla að sækja
það fast að aðalritarinn verði úr þeirra
eigin röðum og meðal þeirra hefur
Salim yfirburðastuðning.
Salim varð sendiherra Tanzaníu í
Egyptalandi 22 áragamall. Síðan hefur
hann verið sendiherra lands síns í Kína
og á Kúbu og gegnt störfum í Jamaica,
Guyana, Trinidad og viðar. Hann er nú
sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum
og forseti allsherjarþingsins. Salim
þykir líklegur til að innleiða nýja starfs-
hætti sem aðalritari ef hann nær því
embætti. Að hans mati á aðalritarinn
ekki sífellt að vera hlutlaus í þeim
málum sem koma til kasta hans, eins og
verið hefur eitt aðaleinkenni Wald-
heims, heldur á hann að láta í ljós
skoðanir sínar og sýna eigið frum-
kvæði. Hann á ekki að vera eingöngu
framkvæmdastjóri sem framjtvæmir
hugmyndir og samþykktir annarra
heldur leiðandi afl. Salim hefur sagt að
aðalritarinn eigi að einbeita sér að því
að slaka á spennunni milli austurs og
vesturs og milli ríkja þjóða og fátækra,
sem sagt mikilvægustu ágreiningsmál-
unum.
Aðrir sem taldir eru koma til greina,
einkum ef neitunarvaldi verður beitt
gegn Salim, eru Alejandro Orfila frá
Argentínu, Shridath Ramphal frá Guy-
ana og Carlos Ortiz de Rozas frá
Argentínu.
Auk fastaríkjanna fimm eiga nú eft-
irtalin ríki sæti í Öryggisráðinu, en
hvert þeirra er kosið til setu þar til
tveggja ára: Mexíkó, Filippseyjar,
Austur-Þýzkaland, Nígería, Túnis, ír-
land, Japan, Panama, Spánn og
Uganda.
KOSIÐ Á SPÁNI í DAG
Spænska stjórnin fær í dag nokkra
reynslu af því hvort henni hefur tekizt
að skapa sér vinsældir, er tvö af fá-
tækustu héruðum landsins ganga til
kosninga um sjálfstjórn.
Búizt er við því að margir kjósenda
sitji heima í báðum héruðum. í
Galaicia keppa 1000 frambjóðendur
um 71 sæti í fyrstu heimastjórn
héraðsins. Þar hefur demókratískur
miðflokkur verið við stjóm en hefur
litla sigurmöguelika í þessum
kosningum.
í Andalúsíu hafa allir flokkar sjálf-
stjórn á stefnuskrá sinni. Þetta þarf þó
ekki endilega að benda til að allir séu
ánægðir með þessa stefnu og geta
kjósendur lýst óánægju sinni með
stjórnartilfærslu til héraðs með því að
sitja heima og neyta ekki atkvæðis síns.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njóísgötu 49 - Simi 15105
Papandreou brýtur blað í stjórnmálasögu Grikklands:
Fyrsta sósíal-
íska stjómin
— mynduð af hagf ræðiprófessor sem herforingjastjórnin
flæmdiúr.landi
Andreas Papandreou, hinn 62 ára
gamli leiðtogi Sam-hellensku sósíal-
istahreyfingarinnar, hefur nú brotið
blað í stjórnmálasögu Grikklands
með þvi að verða fyrstur til að mynda
sósíalíska stjórn í landinu frá upp-
hafi. Hann stofnaði hreyfinguna
fyrir sjö árum, í kjölfarið á falli her-
foringjastjórnarinnar.
Andreas er sonur George Papand-
reou sem varð forsætisráðherra árið
1964 en var settur af ári siðar vegna
ágreinings við Konstantín þáverandi
Grikkjakonung um yfirráðin yfir
varnarmálum landsins. Áður en kom
til næstu almennu þingkosninga tók
herinn völdin 1 landinu og handtók
flesta andstæðinga sína og þar með
Andreas Papandreou, sem verið
hafði aðstoðarráðherra í stjórn föður
síns. Hann var látinn laus ári síðar og
fékk leyft til að fara til Bandaríkj-
anna, til að taka við stöðu prófessors
í hagfræði við Harvard háskóla, þar
sem hann hafði áður stundað nám.
Papandreou fluttist til Bandarikj-
anna á stríðsárunum og gerðist þar
ríkisborgari. Hann lauk doktorsprófi
í hagfræði árið 1943 og gerðist síðast
háskólakennari, fyrst við Harvard og
síðan við háskólann 1 Minnesota
fram til ársins 1955 er hann var skip-
aður háskólarektor í Kalifomíu. En
fjórum árum síðar fékk hann boð frá
Karamanlis þáverandi forsætisráð-
herra Grikklands um að taka við
stjórn rannsóknarstofnunar í hag-
fræði í Aþenu. Andreas afsalaði sér
þá bandarískum ríkisborgararétti og
rektorsstöðunni og flutti til Grikk-
lands aftur. Hann fygldi í fótspor
föður síns og gerðist virkur í grískum
stjórnmálum. Hann var meðlimur
Frjálslynda miðflokksins, sem faðir
hans stofnaði árið 1961.
Á þeim sjö árum sem Sam-hell-
enska sósíalistahreyfingin hefur
starfað hefur hún stóraukið fylgi sitt
og hefur nú um 47% atkvæða, en
vegna kjördæmaskipulagsins fær
hreyfingin 174 þingmenn af 300 og
þar með yfirburða meirihluta á þingi.
Nýi lýðræðisflokkurinn, sem áður
fór með völd, er talinn fá 111 þing-
sæti og kommúnistaflokkurinn lík-
lega 15 þingsæti. Aðrir flokkar eru
ekki á þingi.
Andreas Papandreou.
Nóbelsverðlaunahafínn íhagfræði:
T0BIN GAGNRYNIR
STEFNU REAGANS
aðferðimar ósamrýmanlegar markmiðunum
James Tobin.
Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði,
James Tobin, spáði þvi í ræðu sem
hann hélt við háskólann í New York,
að bandarískt efnahagslif stefndi í
stöðnun og tímabundna afturför.
Tobin, sem er 63 ára hag-
fræðiprófessor við Yale-háskóla í
Bandaríkjunum, hefur lengi verið
talinn í röð fremstu hagfræðinga i
heiminum. Hann er talsmaður þeirrar
stefnu að auka ríkisútgjöld og ríkisaf-
skipti til að koma í veg fyrir efnahags-
kreppu.
Tobin sagði í ræðu sinni að efna-
hagsstefna Reagans væri endurskipting
á auði, völdum og tækifærum í þágu
þeirra sem auðinn og völdin hafa og
erfingja þeirra. Stefna Reagans myndi
ekki ná því markmiði sem hún stefndi
að, sem er að minnka verðbólguna og
atvinnuleysið á sama tíma og
framleiðslan, fjárfestingar og
framleiðni á hvern einstakling yrði
aukin. Þvert á móti væri efnahagslífið
staðnað og afturför gæti átt sér stað á
næstunni. Ég get ekki séð fram á neinn
efnahagsvöxt eins og til var ætlazt og
ekki helur minnkandi atvinnuleysi,
sagði Tobin.
Tobin tilheyrir þeim hópi hag-
fræðinga sem aðhyllast kenningar J.M.
Keynes og telur að ríkisvaldið eigi að
grípa inn í til að koma á jafnvægi í
efnahagslífinu og forðast atvinnuleysi.
Hann hefur deilt hart á kenningar
Miltons Friedman, sem hlaut nóbels-
verðlaun árið 1976, og framkvæmd
þeirra kenninga um lágmarks ríkisaf-
skipti og aukinn markaðsbúskap bæði í
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Hann hefur verið hag-
fræðiprófessor við Yale i rúm 20 ár og
virkur í mannréttindahreyfingunni i
Bandaríkjunum. Hann var efnahags-
ráðgjafi í tíð Kennedys forseta.
Þessi mynd er ekki eins gömul og ætla mætti við fyrstu sýn, en hún er tekin i Danmörku fyrir nokkrum dögum. Danir
eru heldur ekki svo hrjáðir af orkukreppunni að þeir hafi þurft að gripa til þess ráðs að spenna hesta fyrir plóginn til að halda
landbúnaðinum gangandi. Hér er um að ræða keppni i plægingu sem fram fór á vegum dansks hestamannafélags. Það fylgir
sögunni að þetta sé að verða vinsælt sport meðal hestamanna þar í landi og hafi verið ákveðið að halda keppni um
Danmerkurmeistaratitilinn annað hvert ár i framtíðinni. Skyldi þessi íþrótt geta náð vinsældum meðal hestamanna á
íslandi?