Dagblaðið - 20.10.1981, Side 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1981.
J
| 75.
skoðanakönnun Dagblaðsins: Hvaða stjómmálamenn finnst þér vera merkastir hér á landi um
þessar mundir? Raða þeim í 1., 2. og 3. sæti
Gunnar Thoroddsen talinn
merkasti stjómmálamaðurinn
Olaf ur Jóhannesson í öðru sæti
Stjórnmálamonnirnir fengu „atkvæði"
sem hér segir í 1., 2. og 3. sæti í könnun-
inni:
M.sæti Í2.sæti Í3. sbbíí aKs
Gunnar Thoroddun 160 49 9 218
Ötafur Jóhannesson 82 44 16 142
Svavar Gastsson 15 19 20 54
Steingrímur Hermannsson 5 24 11 40
Albert Guðmundsson 12 8 8 28
Geir Hallgrimsson 9 9 10 28
Hjörieifur Guttormsson 4 6 13 23
Vilmundur Gyifason 1 9 7 17
Ragnar Amalds 2 5 8 15
Kjartan Jóhannsson 6 3 4 13
Friðjón Þórðarson 1 4 3 8
Matthías Bjamason 1 2 4 7
Pðlmi Jónsson 0 4 3 7
Aðrir fengu atkvæði sem hér segir alls:
5 „atkvæði" fengu: Halldór Ásgrimsson, Sverrir Hermannsson og Tómas
Árnason.
4 atkvæði fengu: Benedikt Gröndal og Magnús H. Magnússon.
3 alkvæði fengu: Gylfi Þ. Gíslason og Jón Baldvin Hannibalsson.
2 atkvæði fengu: Eggert Haukdal, Friðrik Sophusson, Guðrún Helgadóttir,
Hannibal Valdimarsson, Jón Helgason, Jón Sólnes, Karvel Pálmason, Lúðvík
Jósepsson, Ólafur G. Einarsson Stefán Valgeirsson.
I- atkvæði fengu: Árni Gunnarsson, Birgir Ísl. Gunnarsson, Eðvarð Sigurðs-
son, Ellert B. Schram, Halldór E. Sigurðsson, Heigi Seljan, Ingvar Gíslason,
Jóhanna Sigurðardóttir, Lárus Jónsson, Magnús Jónsson, Magnús Torfi Ólafs-
son, Markúrs Örn Antonsson, Matthias Á. Mathiesen, Ólafur Ragnar Grímsson,
Ragnhildur Helgadóttir, Steinþór Gestsson.
nema Gunnar”
Landsmenn telja Gunnar Thorodd-
sen forsætisráðherra merkasta stjórn-
málamanninn um þessar mundir, sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem Dag-
blaðið hefurgert.
600 manna úrtak var spurt ; Hvaða
stjórnmálamenn finnst þér vera merk-
astir hér á landi um þessar mundir?
Fólk var beðið að raða þeim I 1., 2. og
3. sæti. Úrtakið var hið sama og i þeim
skoðanakönnunum, sem DB hefur birt
úrslit úr siðustu vikur.
Gunnar Thoroddsen hlaut iangflest
atkvæðin i fyrsta sætið, eða 160. Það
eru 26,7% af úrtakinu. Hann hlaut auk
þess 49 atkvæði i annað sæti og 9 í
þriðja sætið. Þannig nefndu alls 218
eöa 36,3% Gunnar i eitthvert þessara
þriggjasæta.
í öðru sæti varð Ólafur Jóhannesson
utanríkisráðherra. Hann hlaut 82 at-
kvæði i fyrsta sætið og 44 i annaö sæti,
eða alls 126 í tvö fyrstu sætin. Auk þess
nefndu 16 Ólaf í þriðja sætið. Hann
fékk því samanlagt 142 atkvæöi, sem
eru 23,6% af úrtakinu.
Geir varfl sjötti
Talsvert langt bil var i þriðja mann.
Það sæti hlaut í könnuninni Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubandalags-
ins. Hann nefndu 54 alls i eitthvert
þessara þriggja sæta, eða 9 prósent.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, varð
fjórði. Hann nefndu alls 40 eða 6,7% í
eitthvert þessara þriggja sæta.
Tuttugu og átta eða 4,7% nefndu
Albert Guðmundsson alþingismann og
jafnmargir nefndu Geif Hallgrímsson,
formann Sjálfstæðisflokksins, í eitt-
hvert þessara þriggja sæta. Tólf nefndu
Albert í fyrsta sætið en níu Geir, svo
að rétt er, að Albert teljist hafa orðið
5. í röðinni i könnun þessari en Geir
6.
7. varð Hjörleifur Guttormsson ráö-
herra með 23 atkvæði. Vilmundur
Gylfason alþingismaður varð 8 með 17
atkvæöi og Ragnar Arnalds 9. með
15. Síðan komu Kjartan Jóhannsson
formaður Alþýðuflokksins, með 13,
Friðjón Þórðarson ráðherra með 8 og
Pálmi Jónsson ráðherra og Matthías
Bjarnason alþingismaður með 7 hvor.
Úrslitin eru annars birt í meðfylgj-
andi töflu.
Ólafur Jóh. varð
efstur fyrir tveim árum
Dagblaðið gerði svipaða könnun
fyrir réttum tveimur árum. Þá var að
vísu aðeins beðið um nafn eins manns
og spurt: Hvaða stjórnmálamaður
finnst þér bezt til forystu fallinn?
Ólafur Jóhannesson hlaut þá langmest-
an stuðning. Hann nefndu 79 af 300
manna úrtaki eða 26,3%. Geir Hall-
grímsson varð þá í öðru sæti með 34
atkvæði eða 11,3%. Albert Guð-
mundsson varð þriðji með 20 atkvæði,
Lúðvík Jósepsson 4. með 13, Gunnar
Thoroddsen varð 5. með 7, Svavar
Gestsson og Steingrímur Hermannsson
fengu 6 hvor. Benedikt Gröndal og
Vilmundur Gylfason fengu 5 hvor og
aðrirminna. -HH.
„Litlausir,
„Gunnar ber höfuð og herðar yfir
þetta lið,” sagði karl í Grundarfirði
þegar hann svaraði spurningunni í
skoðanakönnuninni. „Þeir eru allir lit-
lausir, nema Gunnar,” sagði karl í
Grindavík. „Þótt ég sé ópólitískur og
fylgi engum flokki, tel ég Gunnar
Thoroddsen langmerkastan,” sagði
karl í Norðurlandskjördæmi vestra.
„Gunnar hefur staðið sig fjári vel,”
sagði kona á Hvolsvelli. „Gunnar Thor
hefur bjargað þessu við,” sagði karl á
ísafirði.
„Ólafur Jóh. hefur sýnt röggsemi,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu.
„Ólafur Jóh. er alltaf jafn-,,spes”,”
sagði karl á Reykjavíkursvæðinu. ,,Ég
tek ekkert tillit til flokka, og þá verður
þetta einn úr hverjum flokki, Gunnar,
Ólafur og Hjörleifur,” sagði karl á
Vesturlandi. „Ólafur Jóh. er án
umhugsunar efstur á blaði hjá mér,”
sagði kona á Austurlandi.
„Allir látnir"
Margir sögðu hins vegar, að nú
skord leiðtoga. „Ég veit ekki til, að
neinir stjórnmálamenn séu merkir,”
sagði kona í Búðardal. „Enginn þeirra
er neitt sérstakur,” sagði karl í
Bolungarvík. „Þeir eru fáir merkir,
fljótt á litið,” sagði kona á ísafirði.
„Enginn í augnablikinu. Þeir eru allir
látnir, þeir merku,” sagði kona á
Laugarvatni. „Engir skörungar, síðan
Ólafur Thors leið,” sagði karl i Kefla-
vík. „Allt bölvaðar loftbólur,” sagði
kona úti á landi. „Þeir eru lélegir
miðað við aldamótakynslóðina,” sagði
kona á Reykjavíkursvæðinu. ,,Þeir eru
allir látnir, sem eitthvað var varið í,”
sagði kona í Kópavogi.
-HH.
Merkasti stjórnmálamaðurinn um þessar mundir er Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra, samkvæmt skoðanakönnun Dagblaðsins. Sá sem næstur kemst Gunnari er
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra. DB-mynd Gunnar Örn.
Nokkuð saumað að Landhelgisgæzlunni íf járlagafrumvarpinu:
ÞRJÚ VARÐSKIP REKIN í
10 MÁNUÐI, Ein í SEX
— Fokkervélin og
tvær þyrlureinnig
írekstri
-
Fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár
gerir ráð fyrir að heildarfjárveiting til
Landhelgizgæzlunnar verði
54.691.100 krónur og hækkar fjár-
veitingin um 13.502.300 krónur. Er
það tæplega 33% hækkun milli ára
sem er ívið minna en „reiknitala”
frumvarpsins milli ára..
Af þessu verður ekki annað ráðið
en enn eigi að draga úr landhelgis-
gæzlu, ekki sízt þar sem í launalið,
sem hækkar um 6.174.500 og verður
25.610.000, er gert ráð fyrir að fjölg-
að verði í yfirstjórn um tvo menn. Á
að ráða i stöðu birgðavarðar og stöðu
iðnaðarmanns. Skýrir þetta 150.500
kr. af hækkun launaliðar sem að
öðru leyti hækkar innan almennra
launahækkana.
Fjárlagafrumvarpið 1982 gerir ráð
fyrir rekstri fjögurra skipa, samtais i
36 mánuði. Eru það Ægir, Óðinn og
Týr í 10 mánuði hvert skip og Þór í 6
mánuði.
Hjá fluggæzlu er gert ráð fyrir
rekstri þriggja flugvéla; Fokkervél-
inni TF-SYN og þyrlunum TF-Rán,
sem sinna skal gæzlu- og björgunar-
störfum, og TF-GRÓ sem sinnir
ýmsum verkum frá varðskipum eða
landi eftir aðstæðum.
Á næsta ári er ekki króna áætluð í
gjaldfærðan stofnkostnað sem þýðir
að vart er gert ráð fyrir tækjakaupum
af neinutagi. 1981 nam fjárveitingá
þessum lið 132.500 krónum.
Hins vegar er gert ráð fyrir yfir-
færslu fráGæzlunni til B-hluta, þ.e. I
Landhelgissjóð, samtals 5.448.000
kr., og er þar reiknað með 1.005.200
kr. hækkun. Þá er einnig áætlað að
sértekjur hækki um 27.000 krónur og
verði 87.000 krónur. -A.St.
Hin nýja Hughes-þyrla Landhelgis-
gæzlunnar kom nýlega tll landsins.
Myndin var tekin af henni f kassa i
skýli Gæzlunnar á dögunum.
DB-mynd Kristján Örn.