Dagblaðið - 20.10.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1981.
Veðrið
Norflanáttin fer minnkandi um allt
land, gott veflur vestaniands, hiti um
ofla yfir frostmark. Vonzkuveflur á
norflaustanverflu landinu og snjó-
koma. Hœttir afl snjóa um Norflur-
iand allt austur fyrir Akureyri. Bjart
veflur sunnanlands, frost mest á
Norflausturlandi -3, yflr frostmarki
vestaniands.
Kl. 6 voru í ReykjavBt norflvestan 3,
úrkoma og 1, Gufuskálar norflaustan
1, skýjafl og 1, Galtarviti suflvestan 3,
lóttskýjafl, 1, Akuroyri norflvostan 6,
skýjafl, 0, Raufarhöfn norflnorflvest-
an 8, snjókoma, -3, Dalatangi norfl-
norflvestan 8, snjókoma, -3, Höfn
norflvestan 8, skýjafl, -1, Stórhöffli
norflnorflvestan 9,1 láttskýjafl, 0.
( Þórshöfn slydda, 2, Kaupmanna-
höfn rigning og 8, Osló láttskýjafl, 0,
Stokkhólmur rigning, 6, London
rigning, 8, Hamborg súld, 10, París
rigning, 11, Madrid láttskýjafl, 9,
Lissabon láttskýjafl, 18, New York
láttskýjafl, 16.
Ólafur Kristján Ólafsson, til heimilis
að Langholtsvegi 93, lézt 10. október
1981. Hann var fæddur 5. janúar 1954.
Foreldrar hans voru Sigríður Guð-
mundsdóttir og Ólafur Kr. Helgason.
Ólafur var kvæntur Snjólaugu Sturlu-
dóttur og átti með henni einn son.
Ólafur Kristján tók stúdentspróf og fór
síðan í viðskiptafræði við Háskóla ís-
lands, jafnframt starfaði hann á endur-
skoðunarskrifstofu N. Mancher. Útför
Ólafs fer fram frá Dómkirkjunni í dag,
20. október, kl. 15.15.
Guðrún Jónsdóttir, Stigahlíð 24, lézt 9.
október 1981. Hún fæddist 26. febrúar
1899 að Sleif í Vestur-Landeyjum. For-
eldrar hennar voru hjónin Jón Gislason
og Þórunn Jónsdóttir, var Guðrún ein
af tólf systkinum. Guðrún var gift Jóni
Þorgeirssyni matsveini. Þau eignuðust
þrjú börn. Guðrún verður jarðsungin í
dag frá Fossvogskirkju kl. 13.30.
Blómasúlur
Margar
gerðir
• '
Verðfrá
251.50 til
620.50
^ hf. Siðumúla 31
QnfOfl Simi 39920.
Ingunn Gisladóttir hjúkrunarkona og
kristniboði lézt á Landspitalanum í
Reykjavík, 8. október sl., 64 ára að
aldri. Hún var fædd að Framnesi í
Blönduhlíð, Skagafirði, þ. 20. apríl
1918. Ingunn tók alla tíð mjög virkan
þátt í félagsstarfi KFUM og K og
Kristniboðssambands íslands. Hún fór
til hjúkrunarstarfa og trúboðs í
Eþíópíu, árið 1955, þar sem hún bjó og
starfaði nær samfellt í 14 ár. Eftir
heimkomuna frá Eþíópíu, stundaði
Ingunn hjúkrunarstörf, auk þess sem
hún sinnti kristilegum málefnum hér á
landi og erlendis. Árið 1977 réðist
Ingunn í nýtt starf serrr safnaðarsystir
hjá söfnuði Hallgrímskirkju og sinnti
því nær óslitið til síðasta dags. Ingunn
var búsett að Háaleitisbraut 49. Hún
verður jarðsungin í dag, 20. október,
frá Dómkirkjunni kl. 13.30.
Ólöf Björnsdóttir, Elliheimilinu
Grund, áður Háaleitisbraut 85, lézt
laugardaginn 17. október.
Guðmundur V. Ragnarsson bóndi,
Hrafnabjörgum, Arnarfirði, sem and-
aðist i Borgarspítalanum 9. október sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju,
miðvikudaginn 21. október kl. 13.30.
Elísabeth Pálsdóttir Malmberg, verður
jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði, fimmtudaginn 22. október 1981
kl. 3 síðdegis.
Kristjón í. Kristjánsson, fyrrum bif-
reiðastjóri, Skipholti 24, andaðist á
Sólvangi, Hafnarfirði 18.október.
Svanhildur Þórðardóttir frá Votmúla,
til heimilis að Háaleitisbraut 115,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 21. október kl. 13.30.
Þorsteinn Birgir Egilsson, Búlandi 16,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 21.
október kl. 10.30 frá Fossvogskapellu.
Páll Hallbjörnsson, Leifsgötu 32,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 22.október kl. 13.30.
Magnús Símonarson frá Stóru-Fellsöxl
verður jarðsunginn frá Innra-Hólms
kirkju fimmtudaginn 22. október kl.
14.30.
Kristinn Helgason, sem lézt 13.
október, verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju, föstudaginn 23. október kl.
15.
Anna Lilja Guðmundsdóttir, Borgar-
holtsbraut 72 Kópavogi, andaðist 17.
október. Jarðarförin auglýst síðar.
Sólborg Guðríður Bogadóttir, fyrrver-
andi yfirhjúkrunarkona, lézt á Sjúkra-
húsi Akraness föstudaginn 16. október.
Helgi Þorgilsson frá Þórshamri, Sand-
gerði, Háholti 15 Keflavík, lézt þann
16. október.
Árni Beck, vélstjóri, andaðist í sjúkra-
húsi í Newcastle laugardaginn 17.
október.
Björn Snæbjörnsson, stórkaupmaður,
Barmahlíð 31 Reykjavík, lézt að heim-
ili sínu 17. október.
Knattspyrnudeild
Fylkis
Uppskeruhátíö meistara- og 1. og 2. flokks knatt-
spyrnudeildar Fylkis verður i Rafveituheimilinu
föstudaginn 23. október nk. og hefst kl. 22. Mætum
ÖU.
Bridgedeild
Skagfirðingafólagsins
Bridgedeild Skagfirðingafélagsins hefur vetrarstarf
með því að spila tvímenning í dag kl. 19,30, í
Drangey Síðumúla 35. Gamlir og nýir spilarar
velkomnir.
Félagsvist í
Hallgrímskirkju
Félagsvist í félagsheimili Hallgrímskirkju verður
>*piluð í kvöld ki.20.3020. október til styrktar kirkju-
byggmgarsjóði, spilað er annan hvern þriðjudag á
sama stað og sama tíma.
Kvenfélagið
Seltjörn
heldur fyrsta fund vetrarins í kvöld 20. október kl.
20.30 í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi.
Alheimsbragur kominn
á útvarpsfréttirnar
Ekki veit ég gjörla fyrir hvaða
aldursflokk finnska myndin, sem var
á skjánum í gærkvöldi, var sniðin. Ég
veit hins vegar að ungti’, miðaldra og
gömlu fólki þótti ekki gaman að
henni. Þetta var ósköp falleg mynd,
— en Finnar eru þekktir að öðru en
að búa til skemmtilegar sjónvarps-
kvikmyndir.
En auðvitað á sjónvarpið ekki
alltaf að vera skemmtilegt. Menn
geta bara fengið sig tengda við
eitthvert videóið — og málinu er
bjargað.
Ekki er hægt að sleppa því að
minnast með stolti á hve fréttirnar í
útvarpinu eru orðnar með miklum
alvörusvip. Útvarpið er nú komið
með fréttaritara út um allan heim og
virðast þeir fylgjast vel með öllu sem
er að gerast í kringum þá.
Ekki sakar að margir af þessum
bráðsnjöllu fréttamönnum, eru fyrr-
verandi samstarfsmenn af DB og
Vikunni. Það hlaut líka að vera,
þegar fréttamennskan batnaði
eitthvað að ráði, að það væri
„okkur” á DB og Vikunni á einhvern
hátt að þakka!
Svo er það Morgunvakan hans
Páls Heiðars. Eins og mér hefur allt-
af fundizt Páll Heiðar frábær út-
varpsmaður og þættir hans bera af
öðrum, get ég ekki að því gert en mér
finnst Morgunvakan á rammvitlaus-
um stað í dagskránni. Það væri nærri
skárra að láta hann byrja klukkan
S6X.
' Þá væri hægt að hlusta á þáttinn
yfir rólegum morgunmat í stað þess
að gera það á þeytingi, þegar á að
mæta til vinnu klukkan átta. Vestan-
hafs byrja þeir með sjónvarpsþátt í
morgunsárið, Góðan daginn
Ameríka. Þótti þetta með
eindæmum lélegur timi (held. ég megi
segja að þátturinn byrji klukkan sex),
en gæinn sem stjórnaði þættinum sló
i gegn, og nú er þetta orðinn einn af
alvinsælustu þáttunum þar í landi.
Þátturinn er sýndur um gjörvöll
Bandaríkin, svona fyrir allar aldir.
Fólk drífur sig einfaldlega
eldsnemma á lappir til þess að sjá
þáttinn, þar sem stjórnmálamenn og
alls kyns fólk er dregið fram úr
rúminu með stírurnar í augunum til
viðræðu! Þetta gera menn áður en
haldið er til vinnu.
Ég nefni þetta aðeins hér til að
benda á, að þáttur sem er eldsnemma
morguns á rétt á sér, en það verður
að vera hægt að sinna því að hlusta á
hann.
En svona í leiðinni ætla ég að
kvarta yfir einu atriði í Morgunvöku,
sem mér finnst að betur mætti fara.
Það er þegar verið er að tína fréttir
úr blöðunum. Mér finnst að það
verði að velja fréttir sem eru aðeins í
einu blaðinu, það er „skúbb”
dagsins. Ég tók t.d. eftir því í
morgun, að Tímafrétt dagsins um
fólkið, sem bjargað var úr brennandi
bíl í gær, var skúbb Vísis í gær! Sú
frétt var hins vegar ekki tekin úr því
blaði. Ég hef oft tekið eftir þessu
áður, þó ég muni ekki í augnablikinu
annað dæmi.
Ætli slík upptalning sé ekki hugsuð
þannig í upphafi, þótt ekki sé farið
betur eftir því en gert er.
Páll er líka einum of „tense”
gagnvart Guðrúnu Birgisdóttur. Ef
henni verður á að mismæla sig er
hann kominn alveg eins og gammur
yfir hana!
Stilltu þig, Páll Heiðar.
-A.Bj.
Davíð
hætturvið
Davíð Scheving Thorsteinsson er
fallinn frá hugmyndum um að bjóða
sig fram í varaformannskjöri á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins. Mikil
hreyfing var kringum Davíð um helgina
og hann talinn „heitur” eins og DB
skýrði frá í gær. En endanleg ákvörðun
liggur nú fyrir. -HH.
Eldur
áEinimel
Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt
að Einimel kl. rúmlega 22 í gærkvöldi.
Þar kom í ljós að eldur var i baðher-
bergislofti og hafði kviknað í út frá
rafmagni. Aukalið var kallað á staðinn
og rifið gat á loftið. Fljótlega tókst að
ráða niðurlögum eldsins, en mikill
reykur myndaðist. Talsvert tjón varð á
húsinu. -JH.
Ofvitinn tveggja ára
Fáar sýningar eftir
1 kvöld (20. okt.) verður Ofvltlnn 2ja ára á fjölum
Leikfélags Reykjavikur I Iðnó. Á tveimur árum eru
80 ára er i dag, þriðjudaginn 20. októ-
ber, Guðjóna Guðjónsdóttir, Klepps-
vegi 54 Reykjavík. Eiginmaður hennar
er Jóhann Hjaltason fyrrv. kennari og
eiga þau fjögur börn, þrjá syni og eina
dóttur. Hún tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 16.
sýningar orönar 167 talsins og áhorfendur um 37
þúsuncl. Þessi sýning er því þegar komin í hóp vin-
sælustu sýninga leikhússins frá upphafi.
Vert er að taka fram, að vegna mikilla þrengsla í
húsakynnum Leikfélagsins og sökum þess að
nauðsynlegt er að koma að nýjum verkefnum,
verður ekki unnt að hafa nema örfáar sýningar í
viðbót á OFVITANUM; þannig að fólki er bent á
að missa ekki af þessu síöasta tækifæri að sjá
sýninguna.
Kvenfélag
Bústaðasóknar
heldur námskeið í glermálun ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar hjá Sigríði í sima 32756 og Björgu i
síma 33439.
Síðustu sýningardagar hjá
Veturliða í Gallerí 32
Veturliði Gunnarsson listmálari er þessa dagana
með litla sýningu í Gallerí 32, nýjum sýningasal til
húsa að Hverfisgötu 32, þar sem einnig er rekið
fyrirtækið Rammasmiðjan. „Ákaflega hentugur
salur fyrir litlar sýningar,” sagði listamaðurinn í
samtali við blaðamann DB, „lítið, ódýrt og mjög
centralt.”
Á sýningu Veturliða eru 47 litlar oliukritar-
myndir. Þegar eru 22 þeirra seldar. „Þrátt fyrir að
ég byði hvorki gömlum viðskiptavinum, vinum né
vandamönnum og móðgaði þannig allan hópinn,”
sagði Veturliði. „Sýninguna bar svo brátt að og
hún er svo ódýr í sniðum, að ég sá ekki ástæðu til að
spandera dýrum boðskortum. í febrúar verð ég með
sýningu á Kjarvalsstöðum, og þá mega ýmisr eiga
von a að fá kort í hausinn.”
Sýningu Veturliða að Gallerí 32 lýkur um
helgina. Hún er opin daglega milli klukkan 14 og
22.
Veturliði Gunnarsson i Galleri 32 með eina af myndum sfnum. DB-mynd: Einar.
GENGIÐ
Gengisskráning nr. 199 — 20. október 1981 kl. 09.15. Ferflamanna gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7,662 7,884 8,452
1 Sterlingspund 14,106 14,146 15,560
1 Kanadadoliar 6,383 6,402 7,042
1 Dönsk króna 1,0712 1,0743 1,1817
1 Norsk króna 1,2970 1,3007 1.4307
1 Sœnsk króna 1,3894 1,3934 1,5227
1 Finnsktmark Tj437 1,7487 1,9235
1 Franskur franki 1,Í3737 1,3777 1,5154
1 Belg.franki 0,2056 0,2062 0,2268
1 Svissn. franki 4,1360 4,1479 4,5626
1 Hollenzk florina 3,1245 3,1334 3,4467
1 V.-þýzktmark 3,4490 3,4589 3,8047
1 itöisk Ifra < 0,00649 0,00651 0,00716
1 Austurr. Sch. 0,4924 0,4938 0,5431
1 Portug. Escudo 0,1194 0,1198 0,1317
1 Spánskur peseti 0,0808 0,0810 0,8091
1 Japansktyen 0,03307 0,03316 0,03647
1 (rsktDund 12,225 12,260 13,486
SDR (sérstök dráttarréttlndi) 01/09 8,8695 8,8949
Sfmsvari vagna gangistkránlngar 22190.