Dagblaðið - 20.10.1981, Page 28
Fanginn sem strauk af Litla-Hrauni fyrír viku:
HELT TIL KAUPMANNA-
HAFNAR Á LAUGARDAG
UNDIR FÖLSKU NAFNI
—ætlar þaöan til Bandaríkjanna
„Við höfum heyrt um að hann sé
farinn úr landi en ekki fengið það
staðfest,” sagði Þorsteinn Jónsson
hjá dómsmálaráðuneytinu í samtali
við DB í morgun. Eins og DB skýrði
frá í gær hefur fanga af Litla-Hrauni
verið saknað frá því á miðvikudag i
siðustu viku. Maðurinn heitir
Tryggvi Kristjánsson og er 21 árs.
Hann hefur setið inni vegna síbrota
og fíkniefnamisferlis.
Dagblaðið hefur frétt eftir áreiðan-
legum heimildum að Tryggvi hafi
beðið um jarðarfararfrí skömmu
áður en hann strauk en verið neitað
um það. Hann mun í framhaldi af því
hafa ákveðið að strjúka. Reyndi
hann að breyta útliti sínu m.a. með
því að raka af sér skeggið.
Kona frá Stokkseyri mun hafa
tekið hann upp í bíl sinn skammt frá
Stokkseyri og bað Tryggvi um að fá
að sitja í áleiðis til Reykjavíkur.
Tryggvi mun hafa sagt konunni að
hann hafi verið á Eyrarbakka en
breytti því og sagðist koma frá
Stokkseyri.
Eftir heimildum DB fór Tryggvi
þegar og keypti sér far til Kaup-
mannahafnar undir fölsku nafni og
hélt hann þangað sl. laugardags-
morgun. Mun hann hafa tilkynnt fé-
lögum sínum að hann færi þaðan til
Bandaríkjanna og kæmi ekki aftur
heim.
Frímann Sigurðsson yfirfanga-
vörður á Litla-Hrauni, sem veitir
heimilinu forstöðu í fjarveru Helga
Gunnarssonar fangelsisstjóra, sagði í
samtali við DB í morgun að honum
þætti ekki ólíklegt að Tryggvi hefði
farið úr iandi. Sagðist hann þó ekkert
um það vita. Frímann sagði að engar
fréttir hefðu borizt til heimilisins um
ferðir fangans og það væri alfarið í
höndum lögreglunnar að reyna að
hafa uppi á honum.
-ELA.
Öldungadeild Fjölbrautaskólans í
Breiðholti:
Langlundargeð
kennara þrýtur
2. nóvember
Fundur kennara við öldungadeild
Fjölbrautaskólans í Breiðholti for-
dæmdi í gær einhliða ákvarðanir
launamáladeildar fjármálaráðuneyt-
isins varðandi greiðslur fyrir kennslu
i deildinni.
Jafnframt segir í ályktun fund-
arins að kennararnir sjái sér ekki fært
að halda kennslu lengur áfram en til
2. nóvember að óbreyttu og tekið er
frani að kennarar hafi sýnt mikið
langlundargeð I viðræðum um-launa-
grciðslur.
Kennararnir benda á, að fyrir
kennslu i öldungadeildinni sé nú
minna greitt en fyrir kennslu í dag-
skóla. Undirbúningur kennara fyrir
kennslu sé þó hinn sami. Sé þetta
bein aðför að kjörum kennara og að
fullorölnsfræðslu í landinu. Bent er á
í ályktuninni að öll kennsla í öld-
ungadeild FB fari fram á helmingi
styttri tima en i dagskóla, og hún sé
öll uta-idagvinnumarka.
Lögga þegar ég verö stór
Ungir menn láía sig dreyma dagdrauma og ákveðajljótt hvað þeir œtla að verða
þegar þeir verða stórir. Vinsœlustu stórfin eru án efa stórfflugmanna, slökkviliðs-
manna og lögregluþjóna. Ef aö llkum lœtur œtlar þessi ungir maður að verða
lögga. Hann heldur fagmunnlega um stýrið á hjólinu, svo vanir menn á lög-
reglumótorhjólum gœtu verið stoltir af.
DB-mynd Einar Ólason.
Reynir AK18 sökk í mynni Reyðarfjarðar í gærkvöld:
„Margt hjálpaðist að við
aðleggja skipið á hliðina”
—segir Öm Þorbergsson skipstjóri. Ekki liðu nema 10 mínútur þar til báturinn
sökk, enáhöfninbjargaðistgiftusamlega
,,Það var vitlaiist veður þarna i
gærþvöld, gekk á nieð miklum
þviðum sem s.ennilega náðn 10—12
vindstigurn þegæ verst var,” sagðj
Örn Þorbergsson, skipstjóri á Reyni
AK 18, sem fórst undan Vattarnesi í
Reyðarfirði um klukkan 20 í gær-
kvöld.
„Það var haugasjór þarna á smá-
bletti og líkast til höfum við fengið á
okknr brot, þó ekki mjög Stórt, þegar
veðnrhamnrinn bættist vjð þefur það
hjálpað fil yjð að leggja skipið á þlið-
ipa. Við vornm meö fnllfermi af sild
ep það var ekki um það að ræða að
hillur brotnuðn hjá okknr ejps og oft
hefur verið þegar skip hafa sokkið
undir svipuðum kringumstæðum.
Við hallann sem kom á skipið fór
trossan útbyrðis og hjálpaði til við að
ve|ta skipinn- Það er þvj augljóst að
margt hefnr hjálpazt að við að leggja
skipiðáhliðina.’’
Reynir AK 18 var rúmlega 140
rúmlesta skip og keypt frá Akranesi í
snmar tjl Hornafjarðar- Voru eigend-
umir ekki búnir að koma því í verk
að skipta um pafn á skipinu, svo stutt
hafði það verið í eigu þeirra.
Níu manna áhöfn yar á skipinu og
björgnðust allir í gúmbjörgnnarbáta.
„Það vpru þrjú skip þarna skammj
frá okkur og Þingnesjð varð fyrst á
staðjnn- Það hafa vart liðið mikið
meira en 10 minútur frá því skipið fór
á hliðina þar til það sökk en það gekk
klakklaust að koma áhöfninni í bát-
ana.” Þinganesið hélt með áhöfnina
inn til Norðfjarðar og gisti hún þar í
nótt. -SSv.
Srjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKT. 1981.
Tvö skip biðu afgreiðslu
í Grundartangahöfn um
helgina:
„Sláturgerð”
starfsmann-
anna varð
dýrkeypt
— sólarhrings bið skips
kostarJámblendi-
félagið 3000 dollara
',,Það er rétt að hér urðu tafir úm
helgina en að hluta til vegna þess að
löndunarkrani bilaði hjá okkur,” sagöi
Stefán Reynir Kristjánsson, fjármála-
stjóri islenzka járnblendifélagsins, er
Dagblaðið innti hann nánar eftir þeirri
töf sem varð á afgreiðslu tveggja skipa,
Grundarfoss og Fjallfoss, við Grundar-
tangahöfn um helgina.
Yfirvinnubann hefur formlega verið
boðað að Grundartanga frá og með 25.
þessa mánaöar en strax um síðustu
helgi var óeðlilega mannfátt hjá verk-
smiöjunni. Báru starfsmenn fyrir sig
ýmsar annir heima fyrir, til að
mynda sláturgerð ogannað þ'íumlíkt .
Biðin er Járnblendifélaginu dýr því
hver sólarhringur kostar um 3000
dollara. Lætur því nærri að tapið nemi
um 12.000 dollurum þessa einu helgi.
Ein meginástæðan fyrir óánægju
starfsmannanna mun vera sú að þeir
telja sig nú hafa orðið Iakari kjör en
starfsmenn Álversins en í öndverðu
voru kjör þeirra höfð til hliðsjónar er
samið var við starfsmenn Járnblendi-
félagsins. Að sögn Stefáns Reynis hafa
samningaviðræður staöið yfir undan-
fariö.
-SSv.
f5P rr
SZ. Q. GttH £ B
Vinningur vikunnar:
Crown-sett
frá Radíó-
búðinni
Vinningur I þessari viku er
Crown-sett frá Radlóbáðinni,
Skipholti 19. I vikunni verður birt,
á þessum stað I blaðinu, spurning
tengd smáauglýsingum Dag-
blaðsins. Nafn heppins áskrifandg,
verður slðan birt daginn eftir l
smáauglýsingunum og gefst honum
tœkifœri til að svara spurningunni.
Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir
ntestu helgi verður einn ykkar
glcesilegum hljómflutningstcekjum
rikari.
■P*
hressir betur.