Dagblaðið - 31.10.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981.
VARIZT ULFISAUÐARGÆRU
—svar við skrif um Samhygðar
Jóhann Guðmundsson skrifar:
Mikill úlfaþytur greip um sig
meðal Samhygðarfélaga, þegar ég um
daginn fór nokkrum orðum um starf-
semi féiagsins.
Mér er borið á brýn þekkingar-
leysi, þrátt fyrir látlausan kynningar-
áróður Samhygðar í blöðum og út-
varpi.
Ég vona að hamingjan veiti Pétri
Valgeirssyni meiri og betri yfirsýn
yfir það sem er að gerast umhverfis
hann, áður en hann opinberar van-
þekkingu sína og yfirlæti á nýjan
leik.
Félagið Samhygð ritaði langt bréf
sem birtist í DB nýlega. Umsjónar-
maður Radda lesenda tjáði mér að
mistökum væri um að kenna að svo
langt bréf hefði birzt.
Varðandi Sunnudagshugvekju
sjónvarpsins, þá sagði séra Emil
Björnsson, fréttastjóri, í símtali við
mig, að aðild Samhygðar hefði verið
mistök.
Setning, sem Samhygð kom fram
með í útvarpi og hljóðar svona: „En
meðan hollusta okkar beinist fyrst
og fremst að þjóðinni, fjölskyldunni,
trúflokknum (kirkjunni) eða ákveðn-
um kynþætti, getum við aldrei
hjálpað meðbræðrum okkar,” hlýtur
einnig að flokkast undir mistök.
Þessi setning afhjúpar starfsemi
Samhygðar. Orðskrúð, sem enginn
skilur, á undan og eftir, breytir engu
þar um.
Mistök þeirra fyrirtækja, sem
kostuðu auglýsingu Samhygðar í
Morgunblaðinu eru augljós, nema
því aðeins að þau gefi yfírlýsingu um
stuðning við þá setningu, sem ég hef
gert að umræðuefni. í henni er vegið
að því, sem okkur öllum er kærast;
þjóð, fjölskyldu og trú.
Trú og hagnýt trú
Ég samgleðst Ólafi Guðmunds-
syni, sem segir: „Trú mín á lífið
Nokkrir Samhygðarfélagar umhverfis styttu Snorra Sturlusonar f Reykholti.
einblina ekki á eigin hagi, skoðanir og trú, en Jóhann Guðmundsson álitur félagið
hefur margfaldazt.” Það er leitt að
þú mátt ekki gleðjast yfir trú þinni
meðal Samhygðarfélaga. Það er
alveg bannað, eins og við vitum
báðir.
í Helgarpósti nýlega segir Ingi-
björg G. Guðmundsdóttir: „Sam-
hygð er ekki trúarbragðalegs né póli-
tiskseðlis.” En.í Morgunblaðsgrein,
sem fjallar um fund Samhygðar í Há-
skólabiói, skrifar Ingibjörg:
,,B. Aiyappa vélaverkfræðingur
frá Bombay á Indlandi talaði um
mikilvægi hagnýtrar trúar i daglegu
lífi og gerði greinarmun á slíkri trú,
ofsatrú og barnalegri trú. Hann sagði
að það væri hagkvæmt að gera
hlutina af trú og sannfæringu og að
Samhygð byði upp á aðferð til þess
að byggja upp þessa hagnýtu trú.”
Sem sagt er bannað að tala um trú
en samtímis eru kenndar aðferðir til
þess að byggja upp hagnýta trú. Lítil
börn hætta þó oftast að bulla þegar
þau vaxa úr grasi.
Greinilegt er að Samhygð treystir á
að fólk láti mata sig á hverju sem er.
Það er vanmat á ungu fólki, menntun
þess, viti og gagnrýni að það gleypi
við þeim kenningavindum, sem svo
rækilega gefa til kynna heilaþvott,
eins og bent hefur verið á, en banni
síðan einstaklingum umræður um trú
sínainnan félagsins.
Kirkjan og aðstreymi
erlendra trúarbragða
Aðstreymi erlendra trúarbragða og
dultrúar, sbr. Samhygð, Innhverfa
ihugun, Ananda Marga, votta
Jehova, Baháía, indverska guðspeki
hvers konar, o.fl., er óhugnanlegt.
Þau hika ekki við að leggja hníf að
brjósti íslenzkrar kirkju. En hún mun
standa af sér kenningar trúarvillu svo
framarlega sem hún reynist trú þeim
Samhygð telur sig hvetja fólk til þess að
vera úlf I sauðargæru.
guði sem kallaði hana til starfa.
íslendingar vænta þess að hún boði
það fagnaðarerindi, að guð er kær-
leikur. Guð einn á allt vald á himni
og jörðu.
Kannski getur Samhygð nokkra
stund búið mönnum tálvonir, en
hversu vel skyldi mönnum duga ham-
ingja Samhygðar í veikindum; þegar
slys verður; við dauðans dyr; við gröf
ástvinar; i hvers konar erfiðleikum og
áföllum?
Það er þá sem hamingjuhjal
Samhygðar verður hjóm. Þá er eina
vonin bæn til Guðs, sem flestir innst
inni trúa á; þess Guðs sem skapaði
okkur, elskar okkur og gaf son sinn
eingetinn til þess að hver sem á
hann trúir glatist ekki, heldur hafi
eilíft ltf. Megi íslenzk þjóð snúa sér
til Hans, fela Honum vegu sína og
engum öðrum. Þá mun henni vel
farnast.
Varizt úlfísauðargæru.
3
Manstu eftir einhverri
stofnun eða verzlun þar sem
þú hefur fengið fyrsta flokks
þjónustu?
Baldur Bjarnason leigubilstjóri: Nei,
ég man ekki eftir neinum stað þar sem
ég hef fengið fyrsta flokks þjónustu.
Sigurður Ólafsson nemi: Já, einu sinni
þegar ég verzlaði hjá málningarvöru-
verzluninni Liturinn i Síðumúla.
Sigriður Vilhjálmsdóttir: Eg hef yfir-
leitt fengið sæmilega þjónustu alis
staðar, en þó er engin sem skarar
framúr.
Sævar Ingimundarson nemi: Já, bezta
þjónustan sem ég hef fengið er hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Þar er
góður matur og þægileg rúm.
Jón Jónsson strætisvagnabílstjóri:
Fyrsta flokks þjónustu hér á landi? Þú
ert aðgrínast.
Helga Liv Óttarsdóttir nerni: Já, einu
sinni í sportvöruverzluninni Vesturröst.
Þar var mjög svo almennileg
afgreiðslukona.