Dagblaðið - 31.10.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1981.
Jóhann Hjartarson varð öruggur
sigurvegari á Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur sem lauk á miðvikudag,
hlaut 8 1/2 v. af 11 mögulegum. Bar-
áttan í A-flokki stóð aðallega um 2.
sætið, slíkir voru yfirburðir Jóhanns.
Fyrir síðustu umferð hafði hann
þegar tryggt sér sigurinn, hafði 8 v.,
en næsti maður, Sævar Bjarnason,
var með 6 1/2 v. í síðustu umferð
gerði Jóhann jafntefli við Júlíus Frið-
jónsson og Sævar tryggði sér 2. sætið
með jafntefli við Elvar Guðmunds-
Um tíma leit þó ekki út fyrir að
Jóhanni tækist svo auðveldlega að
sigla burt með sigurinn. í 6. umferð
gerði Sævar Bjarnason sér lítið fyrir
og lagði kappann að velli og hafði þá
aðeins hálfum vinningi minna ásamt
Benedikt Jónassyni. í lok mótsins
misstu þeir tveir hins vegar flugið.
Sævar tapaði fyrir Jóhanni Erni
Sigurjónssyni og Benedikt mátti þola
sitt eina tap á mótinu, í 9. umferð,
gegn Jóni Þorsteinssyni. Jóhann
tefidi aftur á móti af miklu öryggi. {
siðustu fimm skákunum krækti hann
sér í fjóra v. og var vel að sigrinum
kominn.
Lokastaðan í A-flokki varð þessi:
1. Jóhann Hjartarson 8 1/2 v.
2. Sævar Bjarnason 7 v.
3. -4. Jóhann Örn Sigurjónsson og
Jón Þorsteinsson 6 1/2 v.
5. Benedikt Jónasson6 v.
6. -7. Dan Hansson og Júlíus Frið-
jónssonS l/2v.
8.-9. Elvar Guðmundsson og Sveinn
Kristinsson 5 v.
10.-11. Arnór Björnsson og Björn
Jóhannesson 4 v.
12. Björn Sigurjónsson 2 1/2 v.
í B-flokki stóð slagurinn milli
Guðmundar Halldórssonar og
Stefáns G. Þórissonar, sem voru í
nokkrum sérflokki. Guðmundur
hafði betur á endanum, hlaut 8 v. af
10 mögulegum, en Sterfán hlaut 7
vinninga. Tapaði í síðustu umferð.
Jón H. Björnsson og Óttar Felix
Hauksson deildu sigrinum í C-flokki
með 7 1/2 v. af 11 mögulegum. Jóni
var úrskurðað 1. sætið á stigum. í 3.
sæti varð Ágúst Ingimundarson með
JOHANN SIGRAÐI
Á HAUSTMÓH TR
7 v. og 4. Rögnvaldur G. Möller með
6 1/2 v.
Sigurvegari í D-flokki varð Jóhann
H. Ragnarsson með 8 1/2 v., eftir
harða keppni við Stefán Þór Sigur-
jónsson, sem hlaut 8 v. í 3.-4. sæti
urðu Eggert Þorgrtmsson og Tómas
Björnsson með 6 1/2 v.
í E-flokki voru tefldar 11 úmferðir
eftir Monrad-kerfi og sigruðu
Þröstur Þórhallsson og Óskar
Bjarnason (Óskar nr. 1 á stigum).
Georg Páll Skúlason og Davíð Ólafs-
son urðu efstir og jafnir í unglinga-
flokki, 14 ára og yngri, með 7 1/2 v.
af9mögulegum.
Nokkrir „gamlir meistarar” settu
sterkan svip á A-flokkinn að þessu
sinni, menn sem lítið hafa tekið þátt í
mótum hin síðari ár. Nægir að nefna
þá Jón Þorsteinsson, Björn Jóhann-
esson og Svein Kristinsson. Af þeim
þremenningum kom Jón best út.
Hann tefidi af miklum frískleika og
átti margar nýstárlegar hugmyndir.
Jafnvel í elstu afbrigðum skákfræð-
innar tókst honum að feta ótroðnar
slóðir. Ekki hafði hann þó alltaf
árangur sem erfiði, eins og t.d. i eftir-
farandi skák. Andstæðingur hans er
hinn 15 ára gamli Arnór Björnsson,
Norðurlandameistarinn í opnum
fiokki, sem hlaut nú sina eldskírn í A-
flokki. Arnór teflir skákina mjög vel
og gefur Jóni aldrei færi á að rétta úr
kútnum eftir tilraunastarfsemina í
byrjuninni.
HVÍTT: Arnór Björnsson
SVART: Jón Þorsteinsson
PETROVS-VÖRN.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. d4 exd4 4. e5
Re4 5. Dxd4 Rc5?
Ég er hræddur um að Jón hafi
hreinlega gleymt að leika d-peðinu
fram um tvo reiti, sem gefur svörtum
hérumbil alveg jafnt tafl. Textaleik-
urinn finnst ekki í bókunum . . .
6. Bc4 Re6 7. De4 Be7 8. 0-0 c6 9.
Hdl Dc7 10. Bxe6! dxe6 11. Dg4 g6
(?)
Svörtu reitirnir á kóngsvæng verða
nú sem gapandi sár. 11. — 0-0 er
auðvitað svarað með 12. Bh6, en
svartur gat reynt 11. -Kf8, þótt sá
leikur hafi einnig sfna galla.
12. Bg5 Bxg5 13. Dxg5 Rd7 14. Rc3
h6 15. Dh4g5
Annars kemur einfaldlega Re4 —
d6+ með óþægilegum afleiðingum.
16. Rxg5 Dxe5 17. Rge4 Kf8 18. Hd3
f5 19. f4.
19. Dd8 + Kf7 20. Hxd7+ Bxd7
21. Dxd7 +, eða 20. — Kg6 21. Dc7
Dxc7 22. Hxc7 fxe4 23. Rxe4 færir
hvítum vinningsstöðu, en leikur
Arnórs er sist lakari. Hann hefur
skemmtilegt framhald í huga.
19. — Dc7
20. Rc5! Kf7
Ef 20. —Rxc5, þá21. Df6+ og20.
— Db6 er svarað með 21. R3a4 og
vinnur.
21. Rxe6! Db6+ 22. Khl Rf6
Svartur verður mát eftir 22. —
Kxe623. Hel + o.s.frv.
23. Rg5 + Kg6 24. Rf3 Hf8 25. Re5 +
Kh7 26. Hd6 Dxb2 27. Hgl Kg7 28.
Dg3 + Rg4 29. h3 Hf6 30. Hxf6 Kxf6
31. hxg4 fxg4 32. Dh4+ Kf5 33.
Dh5+ Kf6 34. Df7mát.
Að lokum skulum við renna yfir
fjöruga skák sigurvegarans í B-
flokki.
HVÍTT: Guðmundur Halldórsson
SVART: Hrafn Loftsson
SIKILEYJARVÖRN.
1. e4 c5 2. d4 cxd4 3. c3
Þetta bragð er afar sjaldgæft og
því hentugt til þess að koma and-
stæðingnum á óvart. Hins vegar eru
eflaust gildar ástæður fyrir því, hve
það er litið teflt.
3. — dxc3 4. Rxc3 Rc6 5. Rf3 d6 6.
Bc4 e6 7. 0-0 Rf6 8. De2 Be7 9. Hdl
e510.h3 0-011.Be3 a6?!
í mínum kokkabókum stendur 11.
— Be6 með u.þ.b. jöfnu tafli. Texta-
leikurinn veikir peðastöðuna drottn-
ingarmegin.
12. Hacl h6 13. Ra4 Rd7 14. Bd5
Rb4 15. Rc3 Rb6?! 16. Bb3 Rc6 17.
Bxb6 Dxb6 18. Rd5 Dd8 19. De3 Be6
20. Rb6 Bxb3 (?) 21. Dxb3 Hb8 22.
Hd5 Dc7 23. a4?
Nú og í næstu leikjum missir hvítur
af möguleikanum 23. Rxe5! og ef 23.
— dxe5, þá 24. Hd7. Eða 23. — Bd8
24. Rec4, eða 23. — Bg5 24. Hc2
o.s.frv.
23. — Kh8 24. a5 Hbd8! 25. g4!
Hvítur hefur kverkatak í skiptum
fyrir peð. Nú hindrar hann að svartur
nái mótspili með 25. — f5 og hyggur
um leið á sóknaraðgerðir kóngs-
megin. Þar að auki var svartur að
komast í tímahrak . . .
25. —g6 26. De3 Kg7 27. Khl Kh7 28.
h4 Hg8 29. Dd2 Hge8 30. Kg2 Bf8 31.
h5 De7 32. Hd3 De6 33. hxg6 + Dxg6
34. Hhl! Dxg4+ 35. Kfl Bg7 36.
Rd5 Kg8 37. Hgl De6 38. Rd4! Kh7
39. Rf5 Hg8 40. Hdg3 Bh8 41. Hhl
Hxg3
— Svartur gafst upp án þess að bíða
eftir 42. Hxh6+ !
Bridge-
fréttir
Bridgesamband
íslands
Laugardaginn 24. október var árs-
þing BSÍ haldið í Gafl-inn í Hafnar-
firði. Á þinginu voru m.a. samþykkt-
ar breytingar á keppnisreglum fyrir ís-
landsmót. Helzta breytingin er sú að
framvegis verður undankeppnin fyrir
íslandsmótið í tvímenningi opin, þ.e.
spilarar þurfa ekki að uppfylla annað
skilyrði til þátttöku í undankeppninni
en þeir séu félagar í bridgefélagi sem
er aðili að BSÍ.
Annað mikilvægt atriði, sem var
samþykkt á þinginu, er að í stað
venjulegs árgjalds borgi félögin 5
krónur af spilara á hverju spilakvöldi
þeirra til Bridgesambandsins. í þessu
kvöldgjaldi er um leið innifalið gjald
fyrir meistarastig þannig að brons-
stigablokkum verður framvegis dreift
eftir þörfum en þær ekki seldar sér-
staklega. Þar sem þessi tillaga kom
fyrst fram á þinginu en hafði ekki
verið kynnt áður var hún samþykkt
með þeim fyrirvara að aðildarfélög
BSÍ samþykktu hana einnig í póstat-
kvæðagreiðslu fyrir 1. desember. Ef
tillagan nær ekki meirihluta atkvæða
félaganna, verður árgjald innheimt
með venjulegum hætti.
Þó þessi tillaga þýði að árgjaldið
hækki verulega kemur það á móti að
þarna er um beina skattheimtu að
ræða: einungis virkir spilarar greiða
þetta kvöldgjald. En aðalávinningur-
inn af þessari tillögu er sá að tekju-
aukningin myndi gera BSÍ kleift að
hafa skrifstofu sambandsins opna
með föstum starfsmanni og stórbæta
þannig þjónustu við félögin og spil-
ara, bæði í sambandi við áhaldaút-
vegun og félagslegt starf.
Á þinginu var kjörin stjórn fyrir
næsta starfsár. Hún er þannig skipuð:
Forseti: Kristófer Magnússon. í stjórn
til 2 ára: Guðbrandur Magnússon,
Guðjón Guðmundsson og Jakob R.
Möller. í stjórn til 1 árs: Björn
Eysteinsson, Sigrún Pétursdóttir og
Sævar Þorbjörnsson.
Bridgefélag
Selfoss
Bridgefélag Selfoss hélt stórmót í
bridge, Einars Þorfinnssonar mótið,
17. október 1981. 40 pör tóku þátt i
mótinu og voru þau víðs vegar og af
landinu. Spilaður var tvímenningur í
fjórum 10 para riðlum, 2 umferðir.
Tíu stigahæstu pörin úr fyrri um-
ferðinni spiluðu til úrslita um aðal-
verðlaunin og tóku helminginn af
skorinni með sér í úrslitin. Næstu tíu
pör spiluðu í B-riðli og byrjuðu öll á
0. Næstu 10 pör spiluðu á sama hátt i
C-riðli og 10 neðstu pörin í D-riðli.
Heildarverðlaun voru kr. 12.000.00.
Spilastjóri var Sigurjón Tryggvaosn
og þökkum við honum frábæra spila-
stjórn.
Helztu úrslit urðu sem hér segir:
1. Ágúsl HelgRson — Hannes Jónsson
(Verðlaun kr. 4000.00)
2. Óli M. Guðmundss — Sigtr., Sigurðsson
(Kr. 2.500.00)
3. Guðm. P. Amarson — Þórarinn Sigþórss.
(Kr. 1.500.00)
4. GuOm. Hermannsson Þorlákur Jónsson
5. Stefán Pálsson — Ægir Magnússon
6. Jakob R. Möller — Hrólfur Hjaltason
7. Sigfús Þórðarson — Kristmann Guðmunds-
son
8. Jón Baldursson — Valur Sigurðsson
9. Sigurður Sverrisson — Þorgeir Eyjólfsson
10. Sævin Bjamason — Haukur Hannesson
Riðlaverðlaun:
A-riðill:
Óli Már og Sigtryggur kr. 1.000.00
B-riðill
Vilhjálmur Þ. Pálsson—öm Vigfússon kr. 1.000.00
C-riöill:
Gísli Steingrímsson—Sig. Steingr. kr. 1.000.00
D-riðill
Benedikt Olgeirsson—Ól. Bjömsson kr. 1.000.00
Staðan í Höskuldarmótinu eftir 1.
umferð, 15.október 1981:
Sllg
1. Þórður Sigurðsson-Gunnar Þórðarson 193
2. Benedikt Olgeirsson-Ólafur Bjömsson 192
3. Gunnlaugur Sveinsson-Kristján Jónsson 187
4. Sigfús Þórðarson-Kristmann Guðmundsson 186
5. Vilhjálmur Pálsson-öm Vigfússon 185
6. Jón B. Stefánsson-Guðm. Sæmundsson 178
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 29. október lauk tví-
menningskeppninni hjá TBK með sigri
Sigtryggs Sigurðssonar og Sverris Krist-
inssonar. Staða efstu para er þessi:
1. Sigtryggur Sigurðsson-Sverrir Kristinsson 898
2. Gísli H. Hafliðason-Sig. Þorsteinss 890
3. Kristján Jónasson-Guðjón Jóhannsson 888
4. Þórarinn Sigþórsson-Guðm. P. Amarson 874
5. Sigfús Ámason-Jún Páll Sigurjónss. 861
6. Hannes Haraldsson-Haukur Leósson 817
7. -8. Sig. Ámundason-Óskar Friðþjófsson 814
7.-8. Bragi Bjömsson-Þórður Sigfússon 814
Fimmtudaginn 5. nóvember hefst
hraðsveitarkeppni hjá félaginu, spilað
verður 4 kvöld. Þátttakendur hafi sam-
band við Auðun Guðmundsson í síma
19622 eða Sigfús Sigurhjartarson í síma
44988. Spilað er í Domus Medica kl.
19.30. Spilarar, mætið stundvíslega.
Bridgefólag
Breiðholts
Síðastliðinn þriðjudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur og var
spilað í tveimur riðlum, 12 para og 10
para. Úrslit í A-riðlinum urðu þessi:
stig
1.-3. Anton Gunnarsson-Frtðjón 120
1.-3. Jón Þorvaldsson-Guðbjörg Jónsd. 120
1.-3. Gunnar Grétarsson-Stefán Jónasson 120
Meðalskor 108.
Úrslit í B-riðlinum urðu þessi:
Stig
1. Helgi Skúlason-Hjálmar Fomason 142
2. Magnús Ólafsson-Páll Bergsson 139
3. Alll Konrúðsson-Eirlkur Ágústsson 132
Meðalskor 110
Næstkomandi þriðjudag verður líka
spilaður eins kvölds tvímenningur en
10. nóvember hefst barómeter og eru
allir velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Spilað er í húsi Kjöts og Fisks, Selja-
braut 54, kl. 19.30.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriggja kvölda tvímenningur hófst
þriðjudaginn 27. október, með þátt-
töku 16 para. Hægt er að bæta
nokkrum pörum inn næstkomandi
þriðjudag, upp á meðalskor.
Með hæstu skor á fyrsta kvöldi eru:
sllg
1. Bjarni Pétursson, Ragnar Björnsson 278
2. Sigrún Pétursd., Óli Andrcason 249
3. Ása Sveinsdóttir, Hildur Helgadóttir 242
4. Hafþór Helgason, Alois Rasehhofer 235
5. Jón Hermannsson, Ragnar Hansen 225
6. Jón Stefánsson, Eggert Benónýsson 220
7. Magnús Halidórsson, Þorsteinn Laufdal 215
Meðalskor 210
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35.
Vinsamlegast látið skrá þátttöku hjá
keppnisstjóra, Jóni Hermannssyni, i
síma 85535.
Bridgedeild Barðstrend-
ingafélagins
Mánudaginn 26. okt. lauk aðaltví-
menningskeppni félagsins (5 kvöld, 24
pör). Sigurvegarar urðu Málfríður
Lorange og Helgi Einarsson.
Staða 12 efstu para:
stig
1. Málfríður — Helgi 635
2. Þórarinn — Ragnar 609
3. Viöar — Pétur 597
4. Ragnar — Eggert 591
5. Viggó — Jónas 582
6. Ingólfur — Kristján 577
7. Gróa — Valgerður 562
8. Ólafía — Jón 562
9. Sigurjón — Halldór 550
10. Gisli — Jóhannes 547
11. Krístinn — Guðrún 546
12. Arnór — Gunnlaugur 543
Næstkomandi mánudag, 2.
nóvember, hefst 5 kvölda hraðsveita-
keppni. Spilað er i Domus Medica og
hefst keppnin kl. 7.30. Þátttaka til-
kynnist til Helga Einarssonar í síma
71980 (fyrir sunnudagskvöld).
Bridgeklúbbur
Akraness
Fimmtudaginn 22. október var 3.
umferð í barómeterkeppni Bridge-
klúbbs Akraness spiluð í Félagsheimil-
inu Röst. Eftir 96 spil er staðan þessi:
sllg
1. Baldur Ólafsson-Bent Jónsson 137
2. Eiríkur Jónsson-Jón Alfreðsson 129
3. Guðjón Guömundsson-Ólafur G. Ólufsson 126
4. Karl Alfreðsson-Bjami Guðmundsson 105
5. Hörður Pálsson-Vigfús Sigurðson 78
Keppnisstjóri var Björgvin Leifsson
kennari.
Bridgefélag
Akureyrar
Thule-tvímenningi Bridgefélags
Akureyrar iauk sl. þriðjudagskvöld
(20. okt.). Spilað var í þremur 12
para riðlum. Eins og oft áður var
keppni mjög jöfn og úrslit ekki kunn
fyrr en að loknu síðasta spili. Að
þessu sinni sigruðu Pétur Guðjónsson
og Stefán Ragnarsson og hlutu Thule
bikarana eftirsóttu, en Sana hf. gefur
verðlaun til þessarar keppni BA.
Röð efstu manna varð þessi:
Slig
1. Stefán Ragnarsson-Pétur Guðjónsson 389
2. Magnús Aðalbjörnss.-Gunnl. Guðmundsson379
3. Alfreð Pálsson-Angantýr Jóhannsson 374
4. Arnald Reykdal-Gylfi Pálsson 369
5. Páll Pálsson-Frimann Frímannsson 364
6. Örn Einarsson-Jón Sæmundsson 356
7. -8. Soffia Guðmundsd.-Ævar Karlesson 345
7.-8. Bjami Jónasson-Halldór Gestsson 345
Meðalárangur er 330 stig. Albert
Sigurðsson stjórnaði þessari keppni
sem öðrum hjá BA.
Hreyfill — Bæjar-
leiðir - BSR
4. umferð tvímenningskeppni var
spiluð mánudaginn 26. okt. 10 efstu
pör urðu sem hér segir: ■ st|g
1. ' Guðlaugur Nielsen-Sveinn Kristjánsson 717
2. Jón Sigurðsson-Vilhjálmur Guðmundsson 667
3. Guðni Skúlason-Halldór Magnússon 667
4. Flosi Ólafsson-Sveinbjörn Kristinsson 663
5. Eliert Ólafsson-Kristján Jóhannesson 631
6. Guðmundur Ólafss.-Helgi Pálsson 623
7. Jón Magnússon-Skjöldur Eyfjörö 619
8. Daníel Haiidórss.-Cyrus Hjartarson 614
9. Gunnar Oddson-Tómas Sigurðsson 611
10. Ásgrimur Aöalsteinss.-Kristinn Sölvason 606
Næsta umferð verður spiluð í sam-
komusal Hreyfils á mánudaginn
kemur kl. 20.00.
Bridgefélag
Kópavogs
Fimmtudaginn 29. okt. lauk fimm
kvölda tvímenningskeppni félagsins.
Sigurvegarar urðu Aðalsteinn Jörgen-
sen-Stefán Pálsson með 622 stig.
Röð næstu para var þessi:
2. GeorgSverrisson-RúnarMagnússon 604
3. Böðvar Magnússon-Ragnar Björnsson 595
4. Glsli Tryggvason-Tryggvi Gislason 591
5. BJörn Halldórsson-Guðnl Sigurbjarnason 575
6. Hrólfur Hjallason-Þórlr Sigursteinss. 574
7. Haukur Margeirsson-Sverrlr Þórisson 573
Meðalskor 540
Næsta keppni er hraðsveitarkeppni
sem hefst fimmtudaginn 5. nóvember.
Hefst keppni kl. 20 stundvíslega, spilað
er í Hamraborg 11. Þá eru félagar
minntir á aðalfundinn sem verður í dag
kl. 2 e.h. í Hamraborg 11. Spiluð
verður útsláttarkeppni eftir fundinn.