Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 30.09.1945, Qupperneq 6

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 30.09.1945, Qupperneq 6
Ivan Dudrik, lieitir hann þessi rússnsski piltur frá Orel-héraðinu. Hann var 15 ára þegar naristar fluttu hann til fangabúðanna í Oswiecim. Hann þoldi ekki meðferðina í fangabúðunum og varð geðveikur. mikill á alla vegu og virðulegur. Sýnt er, að hann kann verk sitt vel, en ef til vill dytti ókunnug- um í hug, að maður sá væri ekki með öllu frábitinn heiimsins lysti- semdum, eins og í Pétursbók scgir. Klukkan þrjú síðdegis hvín í flaUtunni, kaffitími. Allir leggja verkefni og verkfæri til hliðar. „Ffíimínúturnar“ eru aðeins tutt- ugu, um að gera að nota þær vel. Margir fara heim í kaffi eða á matstofu stöðvarinnar, aðeins steir snar frá vinnustaðnum. Kvenfólkið flykkjst inn í kaffisal og hefjast þar fjörugar umræður, ballið í gærkveldi var svo skemmtilegt, Siggi var farinn að "vera með Lóló og draumur voru kjólarnir sem hann Wium fékk um daginn. Karlarnir hafa annan kaffisal. Eru þar oft fjörugar umræður, engu síður en hjá kvenfólkinu, þott áhugamálin séu oftast önnur. Hér eru dægurmálin efst á dag- skrá, prestskosningin, ótíðin, dýr- tíðin o. s. frv. Stundum koma gestir og leggja orð í belg,_eins og t. d. í dag. Virðulegur öldungur, hár vexti, hvítur fyrir hærum og og með eltúskinnsandlit, kemur inn til okkar, tekur ofan hattinn: Góðan daginn, piltar, hér hef ég Passíusálmana handa ykkur. — Eg á þá nú, svarar smiður- inn. En hann slapp ekki svo „billega“ því prédikarinn gerði snöggt gagnáhlaup á smiðinn: Þú getuj: bara keypt þá af mér góði minn og gefið þá einhverjum. — Hefur þú Sölku-Völku, spyr forhert rödd út í horni. — Nei, hún er löngu uppseld, góði minn, því miður. Upphefur maðurinn nú prédikun yfir okkur um Satan, hans véla- brögð og þénara.. Var þetta hinn bezti kaffitími og leið fyrr en varði. Prédikarinn var tilneyddur að hætta og smellti á amen eftir efninu eins og séra SigValdi forð- um. Kvaddi hann okkur með virkt- um, en segir um leið: Hef ég nú ekki sagt ykkur mikið,. piltar mínir? — Jú, við héldum það, en við- búið að eitthvað af sæðinu hafi fallið í grýttan jarðveg. Kaffitímanum er lokið og menn hverfa að störfum s' vum. Bátarn- ir eru að koma að. — Er Týr að fá ’ann, er spurt. — Er Freyja áð fá’ann? Já, allir með mokafla. Jæja, gott að nóg er að gera. Allt 1 einu birtist verkstjórinn og tilkynnir, að unnið verði í kvöld til klukkan 12. Vinnunni er haldið áfram af kappi. Timinn sniglast áfram, en loks er þessi vinnudagur á enda, en srgan endurtekur sig, á morg- un, r.æstu daga, næstu vikur, þý.i nú cr líf og fjer í verinu.

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.