Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 07.02.1965, Qupperneq 3
Töframaburinn
Um hádegisbiliS voru þrengsli
mikil á markaðstorginu í Mílanó.
í hinum mikla mannfjölda birtist
allt 1 einu kynlega Mæddur maður.
Börnin stríddu honum á síða fjólu-
bláa frakkanum hans,' sem nærri
dróst við götuna. Og feit kona, sem
stóð og seldi egg tók sig til og fór
að stríða honum líka.
Hinn ókunni lét allar athuga-
semdirnar eins og vind um eyru
þjóta. Kurteislega sneri hann sér
að eggjasölukonunni og spurði um
verðið á eggjunum. Konan setti
upp óhóflega hátt verð fyrir þau.
Nokkrir kaupendur horfðu undr-
andi á hana, en hinn ókunni lét
sem ekkert væri. Hann virtist vera
ánægður með upphæðina.
Svo tók hann eitt egg upp úr
körfu konunnar, horfði á það
stundarkom — og braut það síðan
á körfubrúninni. Allir viðstaddir
ráku upp skellihlátur — en — ó-
trúlegt. — Upp úr egginu hoppaði
gullpeningur og datt niður í hendi
hans. Hann setti hann í vasann.
Keypti annað egg og valdi það með
mikilli aðgætni. Nú fór fólkið að
færa sig nær og áður en langt um
leið hafði myndazt veggur af fólki
umhverfis sölukerlinguna og mann-
inn í síða, fjólubláa frakkanum. Og
alveg rétt. Úr hverju einasta eggi,
sem hann braut kom gullpeningur.
Hvað var þetta eiginlega?
Skyndilega spratt konan á fætur
og breiddi marglita höfuðklútinn
sinn yfir eggjakörfuna og hrópaði,
að hvorki hinn ókunni né nokkur
annar mætti kaupa egg frá henni.
Með græðgi steypti hún sér síðan
yfir körfuna og braut hvert eggið
á fætur öðru, þangað til hún sat
í þeirri stærstu eggjaköku sem um
getur, en ekki einn einasti gullpen-
ingur var sjáanlegur. Örvita af reiði
yfirgaf aumingja konan markaðs-
torgið, en illgirnislegur hlátur
glumdi á eftir henni.
Hinn ókunni elti hana og bað
hana um að koma á skemmtun hjá
sér sama kvöld, þá mundi hann
setja öll eggin hennar saman aftur.
Og þá upplýstist þaö hver maður-
inn var: hipn mikli töframaður
Bellachini.
Það var að sjálfsögðu uppselt á
sýningu hans um kvöldið. Bella-
chini stóð á sviðinu og dró hvert
eggiö á fætur öðru út úr tóminu
og lagði þau öll í körfu, sem hann
síðan rétti eggjasölukerlingunni. Og
að lokum dró hann egg út úr nef-
inu á henni, braut það og gaf
henni gullpeninginn, sem féll út
úr því.
Pípan hans
Sæmundar íróSa
Sæmundur fróði átti pípu eina,
sem hafði þá náttúru, að þegar í
hana var blásið, þá komu einn eða
fleiri púkar til þess, sem í hana
blés, og spuröu, hvað þeir ættu að
gera.
Einu sinni haföi Sæmundur sMl-
ið eftir pípuna í rúminu sínu undir
höfðalaginu, þar sem hann var æ-
tíð vanur að hafa hana á næturn-
ar. Um kvöldið sagði hann þjón-
ustustúlkunni að búa um sig eins
og vant væri, en tók henni vara
fyrir því, ef hún fyndi nokkuð ó-
vanalegt í rúminu, þá mætti hún
ekki snerta það, heldur láta það
vera kyrrt á sínum stað.
Stúlkan fór nú að búa um og
varð heldur en ekki forvitin, þegar
hún sá pípuna. Hún tók hana óð-
ara, skoðaði hana í krók og kring,
og seinast blés hún í hana. Kom þá
undir eins til hennar púki einn og
spurði: Hvað á ég að gera?
Stúlkunni varð bilt við, en lét þó
ekM á því bera.
Svo stóö á að um morguninn
hafði verið slátrað tíu sauðum hjá
Sæmundi, og lágu allar gærurnar
úti. Stúlkan segir þá púkanum að
hann eigi að telja öll hárin á gær-
unum og ef hann verði fljótari að
því en hún að búa um rúmiö, þá
megi hann eiga sig.
PúMnn fór og kepptist við að
telja og stúlkan hraðaði sér að búa
um. Þegar hún var búin átti púk-
inn eftir að telja á einum skæklin-
um og varð hann þá af kaupinu.
Sæmundur spurði svo stúlkuna,
hvort hún hefði fundið nokkuð í
rúminu. Hún sagði frá öllu eins og
var og líkaði honum vel ráðkænska
hennar. ,
Sleðarennsli
Af hverju renna sleðar og skaut-
ar svo létt yfir ísinn? Hafið þið
nokkurntímann brotið heilann um
þaö? Það hafið þið áreiðanlega.
Hér fáið þið svariö: Þrýstingurinn
á yfirborð íssins hefur það í för
með sér að ísinn þiðnar og mynd-
ar því þunna himnu milli íssins og
hlutarins — og þessi þunna himna
hefur sömu áhrif og feiti t.d. sápa.
En um leið og þrýstingurinn
hættir (þegar skautarnir eða sleð-
in þjóta lengra) frýs vatnshimnan
aftur.
GÍTURÞÚ
REIKNAÐ?
Hérna sérðu pabba, mömmu og Pálur
með röð af tölum. Hvert þeixra getur
fengið út töluna 66 með þvl að leggja
saman tvær tölur í sinni röð?
ÓSKASTUND — 2