Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Issue
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 03.10.1965, Page 9

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 03.10.1965, Page 9
RÖDD SAAAVIZKUNNAR Framhald af bls. 246. sama. Hversvegna þá að vera að gera sér rellu út af því ? Ofnar til að brenna fólk eru gerðir með svipuðum hætti og múrbrennsluofnar. Tæknifræð- ingurinn er ekki að hugsa um hvernig hluturinn verði not- aður. Verk hans er að ann- ast hina tæknilegu hlið. Og eftir að hafa athugað málið tekur tæknifræðingurinn til starfa og gleðst yfir þvl að gerð hans af hlutnum er, auk þess að vera einfaldari og hagkvæmari, einnig afkasta- meiri. Afkastameiri til hvers? Að brenna múrsteina? Það kemur honum ekki við. Hans verk er tæknilegt, líkt og á öðrum framleiðslusviðum. Hvernig er hægt að kalla hann morðingja? Það eru mennirn- ir sem gáfu fyrirmæli um að skjóta sem eru morðingjarn- ir. Og þeim hefur verið refs- að. Jú, satt er það, menriimir sem framkvæmdu fyrirmælin og studdu á gikkinn eru líka sekir. Með öðrum orðum, mennirnir við stjórntækin, þeir sem settu vélina af stað, eru glæpamennirnir. Og hvað snertir hina ýmsu hluta vél- arinnar — hin velsmurðu tann'hjól og gíra, sem unnu vel og hljóðlega — þá voru þeir eins og hver önnur tæki. Og eftir á að hyggja, hvaða gagn er í því að vera að brjóta heilann um vélar sem eru ekki Iengur til? Og hvað það snertir, hvernig getur maðurinn sem þrýsti á gikk- inn verið sekur? Þegar allt kemur til alls var hann að- eins að framkvæma fyrirmæli. Hafði hann ekki svarið stjórn- arvöldunum hollustu? Fyi'ir um það bil ári fékk ég bréf frá stúlku við fram- haldsnám sem var að rann- saka bókmenntir á árum síð- ustu heimsstyrjaldarinnar. Hún vildi fá svar við því hvað hefði knúð hermennina áfram til að berjast. Hún hafði al- izt upp eftir styrjöldina. Og verk hennar var þannig að hún vildi fá nákvæmt og ef unnt væri fáort svar. 1 henn- ar augum var þetta svona ein- falt. Heimur okkar tíma er full- ur af sprengiefni eins og at- omsprengjum og vetnis- isprengjum. En hann er einnig hlaðinn öðru mjög voldugu sprengiefni: öllu því sem er innibyrgt I hjörtum fólksins. Það kann að vera að nöfn þeirra sem ofsóttir voru og myrtir hafi gieymzt, rústirn- ar vikið fyrir grænum gróðri, nýjum borgum, nýjum þjóð- vegum. Og morðingjarnir? þeir eyða elliárunum í friði og ró með fjölskyldum sínum, öruggir í vissunni um að þeim verður ekki refsað, hönd rétt- vísinnar nær ekki til þeirra. Vist eru réttarhöld öðru hvoru til að fullnægja öllu velsæmi. En hvers vegna á að vera að róta upp í því sem heyrir for- tíðinni til? Og hversvegna skyldu sjálfar bókmenntirnar láta hafa sig til slíks? Á okkar öld, tuttugustu öld- inni, máttugri öld, hefur hraði lífsins aukizt. Andleg nær- ing? 1 nútíma þjóðfélagi er allt miðað við höfðatölu, fram- leiðsla á bílum, ísskápum, þvottavélum, koli og stáli. Því meira sem framleitt er á hvern mann, því betur verður séð fyrir þörfum manna. En maðurinn þarfnast fleira en efnislegra hluta; hann hefur andlegar þarfir. Að lo'knu dagsverki vill fólk gjarna sjá gamanleik, horfa á sjónvarp, lesa um skemmtilega viðburði að léttar sögur. Og það er enginn hörgull á rithöfundum sem vilja fullnægja þeim þörf- um. Þeim gengur gott til. Þeir vilja að fólk sé hamingjusamt, eins og söguhetjurnar í bók- um þeirrla. Og þeir komast ekki hjá því að hagnast ofur- lítið á því að fá fólk til að gteyma f stað þess að hugsa. Gleyma því að það voi-u hend- ur mannsins er settu eyði- leggingartækin af stað, I stað þess að hugsa um að slíkt gæti gerzt á ný í sannarlega skelfilegum mælikvarða, þeg- ar tekið er tillit til tæknimátt- arins. Ein af hinum margháttuðu skyldum sem taka upp tíma mannsins og hugsanir er mik- ilvægust: sú að vera maður, í fyllstu merkingu þess orðs. Og eitt af verkefnum bók- menntanna ætti að vera að minna hann stöðugt á þetta, daglega. Því bókmenntir ættu einnig að vera eamvizka sam- tíðarinnar. RlMUKORN Fimmta ríma — nýlanghenda — svikin. Ný á hinini lýsir Lúna löngum vetrarskuggum eyðir. Meðan hún er að mjólkakúna margt í huga konan leiðir: Sýnist mér að sé úr hófi sóað ijósmat himinkerfa ef þeir fleygja ævinlega öllum tunglum þeim sem hverfa. Alltaf finnst mér það óspil- N semi. þó af þeim fari mesta Ijósiö. Væru mér gefin gömlu tunglin gæti ég notað þau i fjósið. Sagnir Stefáns í Stykkishóími: Tvíburarnir Það skeði endur fyrir löngu að danskur skipstjóri, sem Förland hér, sigldi skipi sínu ár eftir ár til eins stærsta kaupstaðar á landinu. Sem að líkum lætur átti Förland hét, sigldi skipi sínu kaupstaðnum og einn bezti vinur hans var hinn æruverði prestur staðarins, og þar var skipstjórinn tíðum meðan hann beið losunar á skipi sínu. Presturinn hafði stórt bú og margt vinnuhjúa. Einn var sá maður sem prestur bar öll sín mál undir, sveitar- og bæjarhöfðinginn sem Jón hét. Nú skeður það, að vinnukona sem hjá presti var verður ó- frísk, og elur tvíbura, og um svipað leyti spyrjast þær fréttir að sjóhetjan Förland hefur farizt í hafinu með manni og mús. Griðkona prestsins lýsir Förland föður að börnum sínum, og var eng- inn til að andmæla því. Nokkru síðar kastar hryssa sem prestur á og eignast mjög fallegt folald. Presti þótti afkvæmi hryss- unnar mjög fagurt eg gerir vini sínu Jóni boð um að koma. Jón lét ekki standa á sér. Prestur sýnir honum folaldið. Jón hringgengur folaldið og grandskoðar það, en loks staðnæmist gamli maðurinn og segir við prest: — Víst er um það, fögur er skepnan hvar sem á hana er litið. Þagnar hann svo um stund, gýtur augunum á prest og segir: — Þau hefðu nú orðið tvö hefði hann Förland átt þau. Þegar atvinnuleysið bregzt Það skeði á þeim géðu gömlu tímum þegar Suður- nesjamenn sóttu gull til Aust- fjarða, að austfirzkir útgerð- armenn fjölmenntu þegar strandferðaskipið kom með Suðurnesjasjómenn, var þá mikið rætt um kaup á verð- andi vertíð. Einn útgerðarmaður sem mætti þar hafði hugsað sér að krækja í ódýran háseta og fór því að útskýra fyrir þeim sjógarpi er hann hafði tekið tali, af hvaða ástæðum ekki væri hægt að borga hátt kaup og komst þannig að orði: — Þegar aflaleysið bregzt og þegar atvinnuleysið bregzt sér hver maður að ekkl er hægt að borga hátt kaup. EYFIRZK HÚSMÓÐIR Framhald af 247. síðu. Námafjall er raunar ekk- ert fjall, aðeins Tágur háls, gróðurvana með öllu, en við fætur manns krauma og bulla hverirnir niðri í jörðinni, svo bezt er að fara að öllu með gát. Allgott útsýni er þarna, einkum mikil fjallasýn, meðal annars sést „Kerling" Eyfirð- inga. Þá sést og vel austur um Hólsfjöll, ajlt til Gríms- staða. Ekki fýsti okkur að hafa þarna mjög langa við- dvöl því brennisteinsfýlu hina verstu lagði af hverunum. Næsti viðkomustaður er Reykjahlíð, þar er tekið ben- zin og nú er ferðin hafin heim á leið. Veðrið er alltaf jafn yndislegt og hvergi sér ský á lofti. Við komum við í Vagla- skógi, svona rétt til að sýna börnunum hvernig raunveru- legur skógur lítur út. Þarna er strjálingur af fólki og eru nokkrir af tjaldbúum að sækja vatn I ána til að elda kvöldmatinn. Aðrir bográ úti fyrir tjöldum sínum, vafa- laust við einhverja matseld. Ég minnist þess, er ég síðast kom í Vaglaskóg fyrir rétt- um 11 árum. Þá var nú veðr- ið samt öðruvísi, nefnilega hellirigning. Sólin er senn að ganga undir og kvöldsett orð- ið. Börnin eru þreytt eftir langan og tilbreytingaríkan dag — og heima bíða kýrnar þess að verða mjólkaðar og líklega orðnar talsvert hissa. T?r skóginum er ekið heim í einum áfanga. Yngsta barnið, þriggja ára telpa, fær sér blund á leiðiani og rumskar efeki fyrr en ekið er í hlað heima. Og reyndar er nú mjög gott að vera komin heim aftur. Við kveðjum nú bílstjórann og þökkum honum ágæta leiðsögu þennan 6- gleymanlega dag, sem raun- ar liktist helzt fallegum draumi, og hverfum síðan til kúnna og veruleikans. Kristin Guðmundsdóttir Gilsá, Evjafirði. Sunnud. 3. okt. 1965. 21. tbí. 5. árg. tllgefandi: Þjóðviljinn Ritstj.: Jón Bjarnason Prentsmiðja Þjóðviljans. SUNNUDAGUR — 246

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.