Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.10.1976, Qupperneq 4
Verðlaunasamkeppni um
varnaðarorð gegn reykingum
Takmark efnir til samkeppni um
stuttar. markvissar málsgreinar
sem séu hæfar sem auglýsinga-
texti eða almenn „vigorð" í barátt-
unni gegn reykingum og tyrir rétti
þeirra sem reykja ekki.
Gæti t d faiist í þeim aðvörun um
skaðsemi reykinga. hvatning til
baráttu gegn reykingum, hvatning
til að hætta að reykja eða byrja ekki
að reykja eða áminning til reyk-
ingamanna um rétt annarra til að
anda að sér lofti, ómegnuðu af
tóbaksreyk.
Hver þátttakandi má senda í
mesta lagi þrjár tillögur. Rétt til
þátttöku hafa allir nemendur á
grunnskólastigi. hvar sem er á
landinu
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
veitir þrenn verðlaun fyrir hnittn-
ustu tillögurnar að mati sérstakrar
dómnefndar.
Verðlaunin eru þessi
1 verðlaun Segulbandstæki
(kassettutæki), Philips Verð kr
27 260.
2 verðlaun Vasatölva, Sinclair
300. Verð kr. 15.100.
3. verðlaun: Utvarpstæki, Philips
Verð kr. 8 910
Tillögur ber að senda til TAK-
MARKS, Suðurgötu 24, Reykjavík
fyrir 15. nóv. n.k. Tillögurnar skal
merkja með dulnefni, en nafn og
heimilisfang sendanda, ásamt
fæðingarári, skóla og bekk, fylgi i
lokuðu umslagi sem merkja skal
með sama dulnefni
Áhrif á ungbörn
Oft hefur verið bent á hættulegar
afleiðingar þess að móðir reyki meðan
hún gengur með barn. En nýjustu
rannsóknir frá Bretlandi og ísrael sýna
að reykingar foreldra í návist barna á
fyrsta ári geta einnig haft mikil áhrif á
heilsu ungbarnanna Konnuð var tíðni
lungnabólgu og lungnakvefs hjá árs-
gomlum börnum Frá heimilum þar
sem hvorugt foreldranna reykti fengu
7,6 af hverjum hundrað börnum þessa
sjúkdóma, ef annað foreldranna reykti
var talan 10,4 en ef báðir foreldrar
reyktu höfðu 15,3 börn af hverjum
hundrað fengið lungnakvef eða
lungnabólgu eða helmingi fleiri en frá
heimilum sem ekki var reykt á
Hvað segir
Ingmar Stenmark?
Hinn kornungi sænski skíðamaður,
Ingmar Stenmark, er meðal frægustu
og fræknustu íþróttamanna sem nú eru
upp: Ingmar vann heimsbikar skíða-
manna í ár og var kjörinn íþróttamaður
ársins á Norðurlöndum
Nýlega birtist viðtal við Ingmar í
félagsblaði hans, „Fjállvinden" um
þjálfun hans o.fl. í því sambandi hefur
blaðið eftir honum eftirfarandi ummæli:
„Það er afskaplega mikilvægt fyrir
þjálfun líkamans að borða rétta fæðu
Ég hef horft upp á, að ungir skíðamenn
lifi aðallega á pylsum og frónskum
kartöflum, en það veitir alveg ófull-
nægjandi næringu Gleymið þessu
ekki í þjálfuninm Að sjálfsögðu reyki
ég alls ekki, og áfengi hef ég aldrei
bragðað."
Ast er...
... aö hætta að reykja
til þess að geta
lifað lengur saman
Hættuvaldur
í umferðinni
Stórreykingamenn eru í helmingi
meiri hættu í umferðinni heldur en aðrir
samkvæmt rannsókn Vermont-háskól-
ans í Burlington í Bandaríkjunum
Ástæðan er sú að svo mikill kol-
sýrlingur er i blóðinu að viðbragðs-
flýtirinn minnkar Auk þessa eru minni
líkur á að stórreykingamenn lifi af um-
ferðarslys, en það stafar af öndunar-
erfiðleikum þeirra
Reykingar eyða
C-vítamíni
Alkunna er að C-vitamín eykur mót-
stöðuafl manna gegn ýmsum sjúk-
dómum og kvillum í víðtækri athugun
sem gerð var í Kanada kom fram að
reykingamenn höfðu 30% minna C-
vítamín í blóðinu en aðrir og hjá þeim
sem reyktu meira en 20 sígarettur á
dag var munurinn enn meiri eða 40%.
Öskubakkinn
safngripur?
Sumir hafa dregið í efa að hægt sé
að breyta lifsvenjum fólks á þann veg
að tóbaksreykingar verði taldar óraun-
hæfar og gamaldags Norskur pró-
fessor, Haakon Natvig, hefur i þessu
sambandi bent á það að fyrir nokkrum
áratugum hafi hrákadallar verið á
öllum vinnustöðum. á skrifstofum, í
verslunum og í skólastofum Nú séu
hrákadallar aðeins á minjasofnum og
það veki almenna athygli ef einhver
hræki úti á götu. Þannig verður einnig
með reykingar, segir prófessorinn
Sennilega verður óskubakkinn orðinn
safngripur um aldamótin!
i.......................:
NOKKUÐ NÝTT?
• Ef þlð, lesendur góðlr, hafið *
; nýjar fréttir af baráttunni gegn ;
t reykingum eða hugmyndir um !
; hvað gera skuli, hringið þá eða ;
; skrifið til Takmarks. ;
:.......................i