Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 02.12.1957, Qupperneq 18

Veðráttan - 02.12.1957, Qupperneq 18
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1957 ÁRSSKÝRSLA. Breytingar á starfsliði og vinnutilhögun. Reykjavíkurflugvöllur: 1 ársbyrjun var heimilað að fjölga aðstoðarmönnum um einn, en áður höfðu unnið þar sex aðstoðarmenn. Einn aðstoðarmaður hætti í árslok 1956 og Ragnheiður Guðmundsdóttir, sem iengi hafði verið fjarverandi vegna veikinda, hætti snemma á árinu. Þrír nýir aðstoðarmenn voru þvi ráðnir, Guðrún Halla Guðmundsdóttir í janúar, Jón Ásbjörnsson í febrúar og Gísli Sigurbjörnsson í apríl. Gísli hafði áður unnið á Keflavíkurflugvelli. Guðjón Ólafsson vann á Reykjavíkurflugvelli í sumarfrium aðstoð- armanna. Tveir loftskeytamenn hættu á árinu. Jón Mýrdal í maí og Matthías Björns- son í ágúst. Keflavíkurflugvöllur: Sigurður Jónasson var ráðinn aðstoðarmaður í stað Gísla Sigur- björnssonar. Veðurfræðinemarnir Eyjólfur Þorbjörnsson og Þór Jakobsson unnu í sumar- frium aðstoðarmanna. Hlynur Sigtryggsson kom frá Svíþjóð í janúar og tók þá aftur við störfum deildarstjóra. VeÖurfarsdeild: Þórir Sigurðsson, veðurfræðinemi, vann 3% mánuð í deildinni. Líney Skúladóttir var ráðin til aðstoðarstarfa í 3 mánuði vegna tækniaðstoðar. JarðeÖlisfrœÖideild: Störf deildarinnar jukust mjög á árinu vegna jarðeðlisfræðiárs- ins. Einn aðstoðarmaður var því ráðinn um stundarsakir, var það Dagur Tryggvason, sem byrjaði í marz. Þorsteinn Sæmundsson, stúdent, vann einnig í deildinni sumarmánuðina. Skrifstofan: Selma Jóhannsdóttir tók við símavörzlu í janúar, og Edda V. Eiríksdóttir var við símavörzlu í fríum og forföllum. Útgáfustarfsemi, útvarp veðurfregna o. fl. Prentuð voru mánaðaryfirlit Veðráttunnar frá apríl 1952 til desember 1954 og ársyfir- lit fyrir árið 1952. Unnin var undirbúningsvinna að útgáfu árganganna 1955—’57. Gefnar voru út jarðskjálftaskýrslur fyrir árið 1956. Einnig voru gefnar út leiðbeiningar um veður- athuganir og skýrslufærslu handa þeim athugunarmönnum, sem ekki senda veðurskeyti. Þ. 1. febrúar hófst útvarp veðurfregna til sjómanna kl. 430 og 1630, og er þá veðurfregn- um til sjómanna útvarpað fjórum sinnum á sólarhring. Útvarpað er á íslenzku og ensku í loftskeytalykli. Byrjað var að gera flugvallarspár fyrir flugvellina á Akureyri og Egilsstöð- um í nóvember. Veðurspár fyrir Austurdjúp voru gerðar frá 8. ágúst til 7. október. I desember var spásvæðinu Suðausturmiðum skipt í tvennt með línu, sem hugsast dreg- in frá Vestra-Horni að 63° N og 13° V. Er eystra svæðið nefnt Austfjarðamið en hitt Suð- austurmið. Veðurstöðvar. Atliugunarmenn: Steinn L Sveinsson, oddviti á Hrauni á Skaga, lézt í desember. Hann hafði gert veðurathuganir frá árinu 1942 og alla tíð verið mjög góður athugunarmaður, einkum voru tíðarfarsyfirlit hans sérlega athyglisverð og vel samin. Guðrún Kristmunds- dóttir, húsfreyja, tók við starfinu að manni sínum látnum. Á þessu ári eru liðin 50 ár síðan Sigurður Kristjánsson, bóndi á Grímsstöðum, tók að gera veðurathuganir, og mun hann hafa starfað manna lengst að reglulegum veðurathug- unum hér á landi. Vitað er um tvo menn aðra, sem gert hafa athuganir með mælitækjum í meira en 40 ár, eru það Árni Thorlacíus i Stykkishólmi, sem athugaði reglulega árin 1845—1889 og Gísli Þorvarðarson í Papey, sem gerði athuganir frá aldamótum til ársins 1948. Næstur þessum mönnum mun Jón Jónsson á Nefbjarnarstöðum koma, en athuganir hans ná yfir tímabilið frá 1907 til 1946. Af núverandi athugunarmönnum eru þeir Jón Lúðvíksson á Teigarhorni, sem hóf at- huganir 1921 og Ólaíur Sveinsson á Lambavatni, sem byrjaði 1922, næstir Sigurði að starfs- aldri. Á þessu ári áttu þeir Hólmgeir Jensson á Þórustöðum, Snæbjörn J. Thoroddsen í Kvígindisdal og Klemenz Kr. Kristjánsson á Sámsstöðum 30 ára starfsafmæli. Veðurstofan kann öllum þessum mönnum þakkir fyrir störf þeirra. Ráðhildur Guðjónsdóttir tók við sjávarhita- og úrkomumælingum í Grindavík í janúar af Gunnari Sigurgeirssyni. Guðni Jónsson hóf athuganir á Horni í Hornafirði í febrúar, en þá höfðu athuganir þar legið niðri í nokkra mánuði. Athuganir í Stóra-Botni féllu niður frá miðjum apríl að telja. Pálína Vigfúsdóttir tók við veðurathugunarstörfum í Flatey af Eyjólfi E. Guðmunds- syni í september. Nýjar stöövar: 1 maí var byrjað að gera athuganir í Heiðmörk, en þar er aðeins gerð ein athugun á dag kl. 8 að morgni. Athugunarmaður er Sigurjón Ólafsson. Árni Árnason hóf sólskinsmælingar á Höskuldarnesi við Raufarhöfn í júní. (114)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.