Veðráttan - 02.12.1957, Side 20
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1957
Flestar skýrslur veðurfarsdeildar eru nú unnar í skýrsluvélum. (Sjá ársyfirlit Veðrátt-
unnar 1953, bls. 61). Taldi Hovmöller þá vinnuaðferð mjög hagkvæma og bendir í skýrslu
sinni til Sameinuðu þjóðanna á, að Veðurstofa íslands hafi byrjað á notkun skýrsluvéla á
undan flestum veðurstofum í Evrópu.
Meðan Hovmöller dvaldi hér á landi voru haldnir fundir með fulltrúum frá Fiskideild
Atvinnudeildar Háskólans, Raforkumálastjórn, Skógrækt ríkisins, Búnaðardeild Atvinnu-
deildar Háskólans, Farmanna- og fiskimannasambandi Islands og Landssambandi ís-
lenzkra útvegsmanna og ennfremur frá skrifstofu bæjarverkfræðings Reykjavíkurbæjar.
Á þessum fundum var rætt um það gagn, sem þessar stofnanir kynnu að geta haft af
nánari upplýsingum um veðurfar og víðtækari veðurfarsrannsóknum, og benti Hovmöller
á ýmis atriði, sem reynzt gætu mikilsverð, svo sem athuganir og rannsóknir á veðurfari á
fiskimiðum umhverfis landið.
Hovmöller flutti nokkra fyrirlestra um talnavísindi (statistik), sem notuð eru við nú-
tíma veðurfarsrannsóknir, fyrir veðurfræðinga Veðurstofunnar. Einnig hélt hann fyrir-
lestur á vegum Hins íslenzka náttúrufræðifélags, og var það erindi, sem fjallaði um þróun
loftslagsfræðinnar, siðar flutt I erindaflokki útvarpsins um nútímavísindi, i marz 1958.
JarðeðlisfræðiáriS.
Þ. 1. júlí byrjaði hið svonefnda alþjóðlega jarðeðlisfræðiár, en áformað er, að það
standi yfir til ársloka 1958. Ákveðið var að gera stórfelldar og samstilltar rannsóknir á
hinum ýmsu sviðum jarðeðlisfræðinnar og þá ekki sízt veðurfræðinnar á þessu tímabili.
Mikið undirbúningsstarf hafði verið unnið i þessu skyni á alþjóðavettvangi.
Ýmsar íslenzkar stofnanir tóku að sér að leggja sinn skerf til þessara rannsókna, og
var Veðurstofunni falið eftirfarandi:
1. Að vanda sérstaklega almennar veðurathuganir f jórum sinnum á dag á veðurstöðv-
unum Galtarvita, Raufarhöfn, Hólum í Hornafirði og Keflavíkurflugvelli, háloftaathuganir
á Keflavíkurflugvelli og athuganir á nokkrum íslenzkum skipum.
2. Að gera mælingar á þeirri geislaorku, sem berst til jarðar frá sólinni, og mæla ozon
í loftinu. Geislamælingarnar eru gerðar með Eppley-mæli, sem staðsettur er á byggingu
gamla Reykjavikurvitans á vatnsgeyminum í Reykjavík. Auk þessara mælinga á geisla-
orku var tekið að mæla fjölda sólskinsstunda á Reykhólum, Höskuldarnesi við Raufar-
höfn og Hólum í Hornafirði. Ozon-mælingarnar eru gerðar við Sjómannaskólann í
Reykjavík. Alþjóðaozonnefndin lætur í té tæki til þessara mælinga.
3. Að starfrækja norðurljósamyndavél, sem tekur myndir af himinhvolfinu, þegar
stjörnubjart er. Þessi myndavél er staðsett á Rjúpnahæð við Reykjavík. Auk þessa athuga
veðurathugunarmenn á allmörgum veðurstöðvum norðurljós um leið og þeir gera veður-
athuganir, og senda sérstakar skýrslur um norðurljósaathuganir.
4. Að vanda sérstaklega jarðskjálftamælingar og mæla sifelldar jarðbylgjur (mikró-
seisma) í Reykjavík, Akureyri og Vík í Mýrdal.
5. Að senda ofangreindar athuganir og mælingar til Alþjóðaveðurfræðistofnunarinn-
ar og annarra stofnana, sem hafa tekið að sér að safna slíkum upplýsingum hvaðanæva
að úr heiminum, og sjá um dreifingu þeirra til þeirra aðila, sem vilja nota þær til vís-
indalegra athugana.
Ozon-mælingar.
Um miðjan júli hófust á ný mælingar á ozon (03) í gufuhvolfinu, en þær mælingar
höfðu legið niðri frá júlilokum 1955. Mælt er, hve mikið ozon er í gufuhvolfinu, og er
reiknað, hve þykkt lag það mundi mynda, ef það væri allt komið að yfirborði jarðar við
einnar loftþyngdar (1013.2 mb) þrýsting og 0°C hita og ekki blandað öðrum lofttegundum.
Við mælingamar er notaður litrófs-ljósmælir (spectrophotometer) og borinn saman styrk-
leiki sólarljóss af tveimur mismunandi bylgjulengdum. önnur þeirra absorberast mikið í
ozoni, en hin lítið. Absorbsjónsstuðull ozons við þær bylgjulengdir, sem notaðar eru til
mælinganna og við það hitastig, sem ríkir í háloftunum, þar sem mest er af ozoni, þarf
að vera þekktur, til þess að þessar mælingar séu réttar. Er nú reiknað með öðrum og
væntanlega réttari stuðli, en gert var á árunum 1952—1955. Veldur þetta því, að tölurnar
um ozon-magn eru nú um 35% hærri en þá var, og til að fá raunhæfan samanburð, þá
þarf að bæta 35% við þær tölur um ozon-magn, sem birtar voru í ársyfirlitum Veðrátt-
unnar 1952—1955.
Leiðréttingar.
Febrúar,
Apríl,
Maí,
Júní,
bls. 10. Hallormsstaður: Sólskin þ. 2. 2.3 (23).
bls. 29. Rafmagnsst. And.: Hagi % 100 (98).
bls. 37. Rafmagnsst. Reykjavik: FJöldi daga, snjók. 1 (,,).
bls. 45. Kvígindisdalur: Hagi — (100).
Viðauki.
Janúar, bls. 6. Eyrarbakki: Loftvægi 90.6.
(116)