Veðráttan - 02.12.1958, Blaðsíða 25
1958
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
ÁRSSKÝRSLA.
Lög um Veðurstofu Islands.
Hinn 27. marz tóku ný lög (nr. 17/27. marz 1958) um Veðurstofu Islands gildi, og sam-
tímis féllu úr gildi eldri lög um stofnunina (nr. 15/15. júní 1926 og nr. 37/23. júní 1932),
sem voru orðin úrelt að ýmsu leyti. Þótti því tímabært að setja stofnuninni ný heildarlög.
Breytingar á starfsliði og vinnutilhögun.
Reykjavíkurflugvöllur: Katrin Karlsdóttir, aðstoðarmaður, hætti í febrúar, en vann
vegna sumarleyfa mánuðina júní-september. Ottó Tynes tók við af henni, og hóf hann
starf sitt í ársbyrjun. Páll Bergþórsson hafði frí frá störfum í þrjá mánuði og vann þá
á norsku veðurstofunni.
Keflavíkurflugvöllur: Hreinn Erlendsson hætti í april og Jón Fanndal Þórðarson í
júní, en þeir voru báðir aðstoðarmenn. 1 stað þeirra komu Haraldur Sæmundsson, sem
byrjaði í febrúar og Elías Ágústsson, sem byrjaði i marz. Eyjólfur Þorbjörnsson, veður-
fræðinemi, vann aðstoðarstörf í sumarfríum. Ólafur Einar Ólafsson, veðurfræðingur,
fékk fri frá störfum í þrjá mánuði til að ljúka námi, og tók hann embættispróf í veður-
fræði við háskólann í Osló í desember. 1 júnimánuði tóku islenzkir starfsmenn í hálofta-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli að sér varðstjórn við fjórar háloftaathuganir á sólarhring,
en höfðu áður einungis séð um tvær athuganir á dag og Bandarikjamenn um tvær.
Áhaldadeild og veöurfarsdeild: Þórir Sigurðsson, veðurfræðinemi, vann einn mánuð
í áhaldadeild. Veðurfræðinemarnir Eiríkur Sigurðsson og Egill Sigurðsson unnu í báð-
um deildunum um stundarsakir.
Jaröeölisfrœöideild: Dagur Tryggvason vann aðstoðarstörf vegna jarðeðlisfræðiárs-
ins allt árið.
Skrifstofan: Selma Jóhannsdóttir, sem gegnt hafði símavörzlu, hætti í september, en
við tók Edda Eyfeld. Hún hafði unnið á skrifstofunni vegna forfalla frá því í marz.
Veðurstöðvar.
Athugunarmenn og flutningar á atliugunarstööum: Jón Lúðvíksson á Teigarhorni
andaðist 26. september. Hann hafði starfað flestum mönnum lengur að veðurathugun-
um, eins og frá er sagt i ársyfirliti Veðráttunnar 1957, og var mjög samvizkusamur í
starfi sinu. Kristján, sonur hans, heldur veðurathugunum áfram á Teigarhorni.
1 lok júní hætti Jón Þórðarson veðurathugunum og vitavörzlu á Siglunesi, en við tók
Erlendur Magnússon. Athugunarstaðurinn var þá fluttur frá vitanum niður á nesið.
Steinþór Jónsson hóf úrkomumælingar í Stóra-Botni í júlí, en mælingar þar höfðu þá
legið niðri um hrið.
Halldór Víglundsson flutti frá Hornbjargsvita í júlí, og við starfinu þar tók Kjart-
an Jakobsson.
1 ágústmónuði flutti Vilhjálmur Helgason frá Dalatanga, en í stað hans kom Hall-
dór Víglundsson.
Garðar Stefánsson á Egilsstöðum fékk fri frá störfum frá 1. október, og önnuðust
aðrir starfsmenn flugmálastjórnar, lengst af Hrafnkell Sveinsson, athuganir i fjarveru
hans. 1 júlí var athugunarstaðurinn fluttur úr Egilsstaðaþorpi á flugvöllinn.
Sigþrúður Jóhannesdóttir tók til bráðabirgða við veðurathugunum i Vík í nóvember
vegna veikinda Jóns Bjarnasonar.
1 lok ársins hætti Hólmgeir Jensson athugunum á Þórustöðum vegna heilsubilunar.
Hann hafði þá gert veðurathuganir þar og á Flateyri frá árinu 1927 af mikilli kostgæfni.
Jón Jónsson, sem um nokkurra ára skeið hafði annazt úrkomumælingar á Þórustöðum,
tók við athugunarstarfinu.
Guðrún Kristmundsdóttir á Hrauni á Skaga hætti einnig veðurathugunum um ára-
mótin, en við tók sonur hennar, Rögnvaldur Steinsson.
Ný stöö: Athuganir hófust í Gróðrarstöðinni í Vaglaskógi í nóvember. Athugunar-
maður er ísleifur Sumarliðason, skógarvörður. Þar mun verða athugað kl. 8, 14 og 21
og mánaðarskýrsla send Veðurstofunni. Fyrst um sinn er þó ekki kleift að gera full-
komnar athuganir þar á hverjum degi.
(121)