Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1958, Blaðsíða 27

Veðráttan - 02.12.1958, Blaðsíða 27
1958 VEÐRÁTTAN Ársyfirlit og rannsakað hve mikið er í úrkomunni af brennisteini (S), klóri (Cl), köfnunarefni (N) i ákveðnum efnasamböndum, natríum (Na), kalíum (K), magníum (Mg) og calcíum (Ca). Ennfremur er athuguð rafleiðini úrkomunnar ■/., sýrustig pH og magn súrra kolsýru- jóna (HC03-). Samtímis var komið fyrir útbúnaði til að dæla mældu magni andrúmslofts gegnum efnablöndu, sem heldur eftir ákveðnum efnum úr loftinu. Við efnarannsókn á blöndunni er síðan ákveðið innihald loftsins af þessum efnum, sem eru S, Cl, NH3-N, Na, K, Mg og Ca. Rannsókn þessi er gerð í náinni samvinnu við veðurfræðistofnun háskólans í Stokk- hólmi og efnafræðistofnun landbúnaðarháskólans í Uppsölum, en þar fer efnagreining- in fram. Starfsmenn Landsímans á Rjúpnahæð annast gæzlu söfnunartækjanna ásamt starfs- mönnum áhaldadeildar Veðurstofunnar. Tækniaðstoð. Samkvæmt tillögu dr. Ángström (sbr. ársyfirlit 1956, bls. 63) veittu Sameinuðu þjóð- irnar Veðurstofunni tækniaðstoð á árinu 1958 í því skyni, að komið yrði upp smíðavinnu- stofu og rannsóknarstofu fyrir áhaldadeild stofnunarinnar. Dvaldi enskur sérfræðingur, G. A. Clift, hér dagana 2.—11. september til að kynna sér aðstæður, gera tillögur um fyrir- komulag og undirbúa nauðsynleg áhaldakaup. Fyrir hendi var fjárveiting frá Samein- uðu þjóðunum til áhaldakaupa, og gert var ráð fyrir frekari fjárveitingu síðar í samræmi við tillögur dr. Ángström. Pöntuð voru ýmis mikilvæg áhöld, að verðmæti rúmlega 4000 dollara, í smíðavinnustofu, en ekki komu þau hingað á árinu. Alþjóðasamstarf. Dagana 24. febrúar til 8. marz var haldin ráðstefna í Genf á vegum Alþjóðaveður- fræðistofnunarinnar og Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Fundarefni var tiihögun á fjar- skiptakerfi til að koma veðurupplýsingum til flugvéla og stöðva á milli á Evrópusvæð- inu. Helztu samþykktir ráðstefnunnar voru þessar: 1. Að breyta fyrirkomulagi til að koma veðurupplýsingum til flugvéla. 2. Að koma upp sérstöku símakerfi fyrir veðurupplýsingar vegna flugs, en símanet það, sem áður flutti mestan hluta veðurupplýsinga um Vestur-Evrópu, skyldi framvegis einungis flytja venjuleg veðurskeyti. 3. Að breyta morse-útvarpi veðurfregna í fjarritaútvarp, og skyldi sú breyting vera komin til framkvæmda eigi síðar en í árslok 1960. 4. Að setja á stofn nefnd til að athuga skipti á veðurfregnum milli Evrópu og Norður- Ameríku og gera tillögur til úrbóta á núverandi ástandi. 5. Þá var samþykkt ályktun um skipulag á söfnun og dreifingu veðurskeyta frá flugvélum. Hlynur Sigtryggsson, deildarstjóri, sat þessa ráðstefnu fyrir hönd Veðurstofunnar, en Póst- og símamálastjórnin sendi einnig fulltrúa á ráðstefnuna. Dagana 19.—25. júní var lialdinn veðurfræðingafundur í Bergen í tilefni af 40 ára afmæli hins svonefnda Bergensskóla. Voru þar flutt mörg erindi um veðurfræðileg við- fangsefni. Fundinn sóttu aðallega veðurfræðingar frá Norðurlöndum og Bandaríkjum N-Ameríku. Veðurstofustjóri sat þennan fund. Mæling á geislavirkum efnum í úrkomu og andrúmslofti. Hinn 6. janúar hófst söfnun úrkomusýnishorna á Reykjavíkurflugvelli fyrir Eðlisfræði- stofnun Háskóla Islands. 1 lok apríl var sérstakur úrkomumælir settur upp á Rjúpnahæð við Reykjavík til þessarar söfnunar, og var starfsemin þá flutt þangað. Mælirinn er tæmd- ur fyrsta dag hvers mánaðar og úrkoman, sem safnazt hefur frá fyrsta degi mánaðarins á undan, send til Eðlisfræðistofnunarinnar, sem mælir hve mikið er í henni af þ-geislandi efnum. Samkomulag hefur orðið um, að niðurstöður mælinganna birtist i Veðráttunni. Verður notuð mælieiningin picocurie, en picocurie er jafnt og 10-12 curie, þ. e. einn billjón- asti hluti úr curie. Curie er það magn geislavirkra efna, sem sendir frá sér 3.7 1010 beta- agnir á sekúndu. 1 október voru sett upp tæki á Rjúpnahæð til athugunar á geislavirkum efnum í and- rúmsloftinu. Mældu loftmagni er dælt í gegnum sérstaka pappírssíu, sem heldur eftir ryk- ögnum úr loftinu, en geislavirk efni í andrúmslofti eru nær eingöngu í rykögnum. Sían (123)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.