Veðráttan - 01.10.1975, Blaðsíða 1
VEÐRÁTTAX 1975
MÁNAIIARYFIKLIT SAMIfl A VKflURSTOFUNIVI
Október
Mánuöurinn var hagstæður, mildur og viðast veðursæll, en sums staðar var frek-
ar úrkomusamt. Kúm var beitt lengst af og fé ekki hýst.
Þ. 1. var hæg austlæg átt, en snerist til norðausturs og norðurs, er á daginn leið.
Á norðan- og austanverðu landinu var rigning eða súld, og þ. 2. rigndi einnig
vestanlands. Lægðardrag lá þá yfir sunnanverðu landinu og vindur var vestlægur
við suðurströndina. Lægðardragið þokaðist norður og var yfir miðju landinu á mið-
nætti. Vindur var hægur og breytilegur þ. 3. Á Vestfjörðum var þó norðaustanátt og
breiddist hún suðaustur yfir landið og náði yfir allt landið um kvöldið. Víða var
nokkur rigning. Þ. 4. var fyrst hæg norðan- og norðaustanátt og úrkoma norðanlands
og austan. Lægð nálgaðist suðvestan að og fór hún austur eða norðaustur fyrir sunnan
land. Vindur snerist fljótlega til austurs og norðausturs. Varð strekkingur við suður-
ströndina, og víða rigndi. Þ. 5. var norðaustan- og norðanátt með únkomu á norðan-
verðu landinu, en þ. 6. þokaðist hæð austur yfir landið og var vindur hægur og
breytilegur og yfirleitt þurrt veður nema norðaustanlands, en þar var lítils háttar
rigning fyrrihluta dagsins. Þ. 7. gerði suðaustanátt og regnsvæði fór norðaustur yfir
landið. Dagana 1,—7. var frekar kalt í veðri. Þ. 3. var hiti 3% ° undir meðallagi, og var
það kaldasti dagur í mánuðinum miðað við meðallag. Þ. 2. og 4. var 2%—3° kaldara
en í meðalári, þ. 1. og 5. var 2° kaldara og þ. 6. og 7. 1° kaldara en i meðallagi. Suð-
austan- og austanátt með rigningu á sunnanverðu landinu hélst þ. 8. Þ. 9. var vindur
mjög hægur og rigning eða súld með köflum, og þ. 10. var hæg suðlæg og suðaustlæg
átt með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu, en hæg suðvestlæg átt og þurrt
veður norðanlands og austan. Þ. 11. var lægð suðvestur í hafi. Vindur var suðlægur
og suðaustlægur um allt land, og regnsvæði fór norðaustur yfir landið. Eftir það
varð vindur suðvestlægur og vestlægur með skúrum á vestanverðu landinu. Næsta
dag varð vindur aftur hægur suðlægur eða suðaustlægur og rigndi sunnanlands, en
þ. 13. var rigning um allt land. Þá lá lægðardrag norðaustur yfir landið vestanvert,
og á Vestfjörðum var allhvöss norðaustanátt. Lægðardragið þokaðist suðaustur þ. 14.,
og þ. 15. var viðast norðlæg eða norðaustlæg átt, en sunnanlands og austan var lengst
af hægviðri. Víða var rigning þennan dag, en slydda norðanlands og á Vestfjörðum.
Þ. 11. var hlýjast að tiltölu í mánuðinum. Þá var hiti 6° yfir meðallagi, en 4° fyrir
ofan það þ. 10. Þ. 8.-9. og 12.—14. var 2°—3° hlýrra en í meðalári, en þ. 15. og 16.
var 1°— 2%° kaldara en venja er til. Þ. 16. snerist vindur til austurs og suðausturs
með rigningu sunnanlands, en lægð nálgaðist þá suðvestan að. Suðaustanáttin hélst
til þ. 22. með rigningu víða um land, en suma dagana var norðaustanátt á Vestfjörð-
um. Hvasst var við Vestmannaeyjar þ. 17. og 18. Á Norður- og Austurlandi var vindur
mjög hægur þessa daga. Hiti var í meðallagi þ. 17. og 2° fyrir ofan það þ. 18., en
næstu 3 daga var 5° hlýrra en í meðalári. Þ. 22.-24. var hiti 3°—4° yfir meðallagi,
en þ. 25. var hann í meðallagi. Þ. 22. snerist vindur meira til austurs við suðurströnd-
ina og hvessti í Vestmannaeyjum, en víðast hvar var vindur mjög hægur austlægur
eða suðaustlægur. Þ. 23. var austanátt um allt land, hvasst við suðurströndina, og
regnsvæði fór norður yfir landið, en næsta dag var norðaustanátt á norðanverðu landinu
og viða rigning. Þ. 25. var lægð suðaustur af landinu og norðaustanátt um allt land með
rigningu viðast hvar og slyddu sums staðar norðanlands. Lægðin þokaðist norður, og
síðari hluta dagsins var norðanátt og úrkoma norðanlands, en hæg austanátt og rign-
ing syðra. Þ. 26. var austlæg og norðaustlæg átt um allt land, nema norðaustanlands,
en þar var hæg norðanátt. Víða var úrkoma. Næsta dag gekk vindur til suðausturs,
en þá nálgaðist lægð suðvestan að. Hún fór austur fyrir sunnan land þ. 28. og varð
(73)