Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1988, Blaðsíða 33

Veðráttan - 02.12.1988, Blaðsíða 33
1988 VEÐRÁTTAN Ársyfirlit Eftirlitsferðir Eftirtaldar stöðvar voru heimsóttar á árinu: Akranes, Akureyri, Bergstaðir, Birkihlíð, Blönduós, Búðardalur, Búrfell, Dalatangi, Eyrarbakki, Egilsstaðir, Fagurhólsmýri, Garður II, Grímsárvirkjun, Grímsey, Grímsstaðir, Grindavík, Grundartangi, Gufuskálar, Hamraendar í Stafholtstungum, Hamraendar í Miðdölum, Haganes, Heiðarbær, Heiðmörk, Hella, Hjarðarnes, Hólar í Hornafirði, Hraun á Skaga, Húsavík, Hvanneyri, Hveravellir, frafoss, ísa- fjörður, Jaðar, Kalmannstunga, Kambanes, Keflavíkurflugvöllur, Kirkjubæjarklaustur, Korpa, Mánár- bakki, Máskelda, Möðrudalur, Neskaupstaður, Norðurhjáleiga, Raufarhöfn, Reykjahlíð, Reykjanesviti, Rjúpnahæð, Sandhaugar, Sandur, Sauðanes, Sámsstaðir, Siglufjörður, Sigurðarstaðir, Skrauthólar, Stað- arhóll, Stafholtsey, Straumsvík, Strandhöfn, Stykkishólmur, Vatnsskarðshólar, Vestmannaeyjar, Vopna- fjörður, Þorvaldsstaöir, Þórustaðir. Farið var í eftirlitsferðir á nokkrar snjóaathuganastöðvar Veðurstofu íslands á árinu. Ýmsar athuganir Athuganir á skipum: Veðurskeyti voru send frá eftirtöldum skipum: Akranesi, Akurnesingi, Arnarfelli, öskju, Bakkafossi, Bjarna Sæmundssyni, Brúarfossi, Dettifossi, Dröfn, Dísarfelli, Eldvík, Engey, Esju, Eyrarfossi, Fjallfossi, Gnúpi, Goðafossi, Goðanum, Grundarfossi, Hafþóri, Harðbaki, Hauki, Helgafelli, Hofsjökli, Hvalvík, Hvassafelli, Jökulfelli, Jóni Finnssyni, Júlíusi Havsteen, Kaldbaki, Lagarfossi, Lax- fossi, Ljósafossi, Mími, Reykjafossi, Sögu II, Saltnesi, Selfossi, Selnesi, Sigurði, Sigurði Pálmasyni, Skógarfossi, Snorra Sturlusyni, Svani, Sölva Bjarnasyni, Tý, Urriðafossi, Val, Viðey, Víði, Ægi, Álafossi, Árfelli, Árna Friðrikssyni, írafossi, Isafold, ísberg, Isnesi og Óðni. Háloftaathuganir voru gerðar tvisvar á sólarhring á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjöldi athugana var 726, athuganir á vindi voru 725. Jarðskjálftamœlar voru á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Síðumúla, Botni í Reykjafjarðarhreppi, Hrauni á Skaga, Hveravöllum, Grímsey, Akureyri, Leirhöfn, Eyvindará, Miðfelli í Nesjahreppi, Kví- skerjum, Kirkjubæjarklaustri og Saurbæ í Hoitum. Þenslumœlar voru á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Stórólfshvoli, Hellu, Saurbæ í Holtum, Búrfells- virkjun, Gljúfurleit við Þjórsá, Jaðri í Hrunamannahreppi og í Skálholti. Mælar þessir eru steyptir niður í djúpar borholur og eru tengdir við skrifara á yfirborðinu. Tilgangurinn með þeim er að meta hægfara breytingar á spennuástandi jarðskorpunnar á þessu svæði. I sömu borholum eru hitamælar með mæliná- kvæmni 1/1000 C°. Sendibúnaður er á þenslumælastöðvunum og endurvarpsstöð í Bláfjöllum, til að koma mælingum til Reykjavíkur. Útvarp veðurfregna Útvarpstímar veðurfregna voru í árslok sem hér greinir: Kl. 0100, 0430 (á þessum tíma var einnig útvarpað um loftskeytastöðina í Reykjavík á 1650 kílóriðum), 0645 (nema á sunnudögum), 0815, 1010, 1245, 1615, 1845 og 2215. Kl. 0100, 0645, 1010 og 1845 var bæði útvarpað veðurlýsingu frá einstökum veðurstöðvum (kl. 0645 aðeins innlendar stöðvar), almennu yfirliti og veðurspá fyrir landið, miðin og djúpin. Á öðrum tímum var útvarpað almennu yfirliti og veðurspá. Ý msar útvarpsstöðvar fengu oft á dag stutt yfirlit um veðurhorfur. Veðurhorfum á öðrum og þriðja degi var útvarpað í lok veðurfregnatíma kl. 1245, 1615 og 1845. Frá strandarstöðvum Póst- og símamálastofnunar var útvarpað almennu yfirliti, stormaðvörunum og spám fyrir þau spásvæði sem næst eru hverri stöð, sem hér segir: Að næturlagi var útvarpað frá Isafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjum kl. 0133 og 0503, en frá Siglufirði og Hornafirði þrem mínútum síðar í báðum tilvikum. Að degi til var útvarpað frá Neskaupstað kl. 1045 og 2245 og hverju sinni þrem mínútum síðar frá Siglufirði og Hornafirði. Útvarpað var á aðalvinnutíðnum stöðvanna að undangengnu tilkynn- ingakalli á 2182 kílóriðum. (129)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.