Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1964, Side 11
LANDSBÓKASAFNIÐ 196 2 — 19 6 3
11
geymsluhúsnæði utan safnahússins. Þangað mætti flytja erlendar hækur, sem sjaldan
þarf að grípa til, en verða þó að vera tiltækar á aðgengilegum stað. Með þeim hætli
mætti rýma svo til í gamla húsinu, að starfsemi safnsins gæti farið þar fram enn um
sinn með svipuðum hætti og áður. En þetta þolir enga bið. Þrengslin í húsinu skapa
svo mikla örðugleika, að ekki verður lengur við unað.
* , ,,. Þar sem eg læt nú af forstöðu Landsbókasafnsins vegna aldurs,
Arbokin , ,
verður þetta síðasta Arbók þess frá minni hendi. Þegar eg stoin-
að til útgáfu Árbókarinnar fyrir tuttugu árum, var það að sjálfsögðu ætlun mín, að hún
kæmi út á hverju ári. Einnig gerði eg mér von um, að hún gæti orðið fj ölbreyttari að
efni en raun hefir á orðið, þó að aðalhlutverk hennar væri að birta ýtarlega skrá um
íslenzk rit ársins og stutta greinargerð um starfsemi safnsins. Reyndin varð sú, að
naum fjárframlög til útgáfunnar, einkum á síðari árum, gerðu mér ókleift að fylgja
þeirri stefnu og áætlun, sem sett var í upphafi. Eg vona, að eftirmanni mínum, sem
enn er óskipaður, þegar þetta er ritað, takist að kippa þessu í betra horf, og að fram-
vegis verði unnt að gefa Árbókina út á hverju ári, eins og nafn hennar gefur fyrir-
heit um.
Aðalefni Árbókarinnar hefir jafnan verið skrá um íslenzkan ritauka og erlend rit,
sem varða Island, og hefir Ásgeir Hjartarson bókavörður samið þær skrár að mestu.
Þá hefir fylgt stutt greinargerð um starfsemi safnsins eftir landsbókavörð. Hér fer á
eftir vfirlit um annað efni Árbókarinnar frá byrjun, og sýna ártöl í svigum í hvaða
árgangi hverrar greinar er að leita.
Ásgeir Hjartarson: Skrá um bækur Halldórs Kiljans Laxness (1955—56).
Baldur Andrésson: Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld (að auki skrá um tónverk
hans, 1953—54).
R. Bec/c: Hjörtur Thordarson og bókasafn hans (1948—49). — Sænsk-amerískur
fræðimaður og íslandsvinur (1952).
Benedikl S. Benedikz: Ensk háskólabókasöfn og ísl. fræði (1955—56). — Sami ásamt
Olaji F. Hjartar: Skrá um doktorsritgerðir íslendinga, prentaðar og óprentaðar, 1666
1963 (1962—63).
Björn Sigjússon: Sálmar Kolbeins Grímssonar undir Jökli (1946—47).
Björn K. Þóróljsson: Nokkur orð um íslenzkt skrifletur (1948—49).
Einar Bjarnason: Lýsing og skýring á efni handritsins Lbs. 2574—75, 8 (1950—51).
Finnur Sigmundsson: Minningarorð um Guðmund Finnbogason (1944), Hallgrím
Hallgrímsson (1945), Pál Eggert Ólason (1948—49), Árna Pálsson (1952), Bene-
dikt Sveinsson (1953—54), Guðbrand Jónsson (1953—54), Þórhall Þorgilsson
(1957—58), Þorkel Jóhannesson (1959—61). — Ritskrá Guðmundar Finnbogason-
ar (1944). — Merk gjöf til Landsbókasafnsins (1944). — Nýung í íslenzkri bóka-
gerð (1944). — Höfðingleg gjöf vestan um haf (1945). — ítalskur rithöfundur
kynnir ísl. bókmenntir (1950—51). — Merk minningargjöf (1957—58).
Peter G. Foote: Latnesk þýðing eftir Árna Magnússon (1953—54).