Vísbending - 20.07.1983, Síða 2
VÍSBENDING
2
VERÐBÓL GAN:
Fyrstu aögeröir ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum voru
skjótar og ákveðnar. Sem fyrsti
áfangi að því marki að lækka
hraða verðbólgunnar eru þær
lítt umdeilanlegar. En árangur-
inn er undir því kominn hvernig
efnahagsstefnunni sem enn er
í mótun verður framfylgt - við
daglegan rekstur þeningamála
og fjármála, í fjárlagagerðinni í
sumar og haust og í kjarasamn-
ingum eftir áramótin. Enn sem
komið er er allt traust sett á
launastefnuna, en ein sér hefur
launastefna jafnan brugðist í
baráttunni við verðbólgu, hér-
lendis og erlendis þar sem hún
hefur verið reynd. Til að hafa
hemil á verðbólgu þarf þjóðin í
stuttu máli að eyða minnu en
hún aflar. Neysla og fjárfesting
þarf að vera minni en þjóðar-
framleiðsian. Viðskiþtajöfnuður
verður þá jákvæður og erlendar
skuldir aukast ekki. Við þessar
aðstæður lækkar verðbólgan.
Launastefnan er því nauðsyn-
leg en hvergi nærri nægjanleg
til að lækna verðbólgu, enda
eru launin engan veginn eina
orsök verðbólgu.
í launastefnu felst að launataxt-
ar eru lögbundnir og oftast
fylgja verðlagshöft eða verð-
stöðvun á einu eða öðru formi.
Markmiðið er að draga úr verð-
bólgu; rjúfa víxlgang í hækkun-
um verðlags og launataxta,
koma í veg fyrir atvinnuleysi,
lækka verðbólguvæntingu.
Takist að sannfæra fólk um að
verðbólga muni lækka gætu
launakröfur í næstu samning-
um orðið hógværari en ella,
minni launahækkun veldur
minni verðhækkun í kjölfarið,
o.s.frv. En hættan er sú, að lög-
binding launataxta ásamt verð-
lagshöftum nægi ekki til að
sannfæra fólk um að draga
muni úr verðbólgu. Verðbólgan
lækkar ekki varanlega nema
með samdrætti þjóðarútgjalda
þannig að þau verði minni en
þjóðarframleiðsla. Það þarf að
draga úr halla á rekstri ríkis-
sjóðs, draga úr útlánum banka-
kerfisins og opinberra iána-
sjóða, og gæta þess að gjald-
eyriskaup valdi ekki nýmyndun
peninga umfram markmið. í
stuttu máli verður ekki komist
hjá því að fylgjast náið með ný-
myndun peninga eða svoköll-
uðu peningaútstreymi til að
aukning peningamagns í
umferð stríði ekki gegn mark-
miðum um lækkun verðbólgu.
Víða erlendis eru birtar tölur um
breytingar peningamagns viku-
lega svo að unnt sé að bera
saman reynd og markmið.
í 1. tbl. Vísbendingar er að finna
spár um verðbólgu á íslandi út
árið 1983. Aðstæður í efna-
hagsmálum eru um margt
óvenjulegar um þessar mundir
vegna þess að breytingar sem
fram eru að koma bæði í raun-
stærðum og nafnstærðum eru
svo miklar. Nægir að benda á
10-15% samdrátt í sjávarafla,
lækkun á þjóðarútgjöldum um
10-12% og lækkun á árshraða
verðbólgunnar í árslok úr
140% í 30% samkvæmt tölum
Þjóðhagsstofnunar. Vegna
þess að launabreytingar eru
lögbundnar til 31. janúar 1984
með 4% hækkun launataxta 1.
október og stefna ríkisstjórnar-
innar er að halda gengi óbreyttu
út árið 1983, eru þær stærðir
sem mestu ráða um framvindu
framfærslu- og byggingarvísi-
tölu þegar þekktar og þar með
lánskjaravísitalan, þar sem hún
er samsett úr hinum fyrri tveim-
ur. Spár fyrir þessar vísitölur út
árið 1983 eru í meðfylgjandi
töflu.í seinni hluta ágústmánað-
ar birtum við fyrstu spá um
verðbólgu á árinu 1984, - von-
andi í tæka tíð fyrir gerð fjár-
hagsáætlana þess árs hjá flest-
um fyrirtækjum.
Eins og fram kemur í töflunni
verður mikil lækkun á hraða
verðbólgunnar á seinni hluta
ársins. Um leið verður mikil
röskun á tveimur mikilvægum
raunstærðum, raungengi og
kaupmætti. Raungengi gæti
hækkað um 15-18% á síðari
hluta ársins, en kaupmáttur
kauptaxta lækkað verulega á
sama tíma. Auk þess er nokkur
hætta á að aukning peninga-
magns á árinu verði umfram
þau mörk sem samrýmst geta
markmiðum stjórnvalda í verð-
lagsmálum. Þessi atriði gætu
orðið til þess að sá árangur sem
stefnt er að í verðbólgumálum
náist ekki.
Hækkandi raungengi krónunn-
ar merkir að raunvirði erlends
gjaldeyris fer lækkandi, m.ö.o.
innfluttar vörur og þjónusta
verða ódýrari og ódýrari í sam-
anburði við íslenskar vörur og
þjónustu. Raungengi krónunn-
ar mun hækka mjög í sumar og
haust eftir gengisfellinguna í
lok maímánaðar ef gengi er
haldið föstu og stöðugu en
framfærsluvísitalan hækkar um
2-4% á mánuði - mest framan
af en minna á síðustu mánuð-
um ársins. Samkeppnisstaða
innlendra framleiðslugreina
versnar, innflutningseftirspurn
eykst og hætta skapast á enn
auknum halla í viðskiptum við
útlönd. Raunar munu flestir
sammála um að erlendar skuld-
ir megi ekki aukast eins og sakir
standa. En halla í viðskiptum
við útlönd verður að jafna með
nýjum erlendum lánum. Þess
vegna verður í senn að halda
verði á erlendum gjaldeyri háu,
vöxtum háum til að hvetjafrem-
ur til sparnaðar en eyðslu og
draga úr nýmyndun peninga
með því að minnka hallarekstur
ríkissjóðs, draga úr útlánum
innanlands og jafnvel að hægja
á gjaldeyriskaupum t.d. með
því að losa um skilaskyldu út-
flytjenda á gjaldeyri.
f næsta tölublaði Vísbendingar
verður fjallað um gengismál og
rakin þróun raungengis krón-
unnar síðustu árin og fram til
áramóta. Síðar verður vikið að
þeningastefnu og markmiðum
við stjórn peningamála.
Lánskjaravísitala og framfærsluvísitala
12 mánaða breytinga i i S3\ '“***»
frc imfær sluvís tala^ y >*spá '^ni
«*♦ 'y 'lánsh 'jaraví sitala
1982 ytí& 1983
.*•* 1 ~ jl^1
J F M A M J JÁSONDJFMAMJJÁSON D J