Vísbending - 17.08.1983, Blaðsíða 4
VÍSBENDING
Samsettu myntirnar SDR og ECU.
Til eru tvær svokallaðar sam-
settar myntir, SDR eða “Special
Drawing Rights" og ECU eða
“European Currency Unit".
SDR á rætur sínar að rekja til
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en
ECU til Efnahagsbandalags Ev-
rópu, EBE.
SDR kom fyrst til sögunnar 1968
og var verðið upphaflega miðað
við gull. Árið 1974 var tekin upp
viðmiðun við mikilvæga gjald-
miðla á alþjóðlegum markaði. Á
árunum 1974 til 1980 var miðað
við 16 gjaldmiðla, en innbyrðis
vægi myntanna var breytt 1978.
Til að stuðla að aukinni út-
breiðslu á SDR og til að auðvelda
mönnum notkunina var í árs-
byrjun 1981 tekin upp viðmiðun
við gjaldmiðla þeirra fimm þjóða,
sem hæst bar f milliríkjavið-
skiptum á árunum 1975-79.
Gengi á SDR tiltekinn dag fæst
með því að taka gengi myntanna
þann dag mv. dollara og marg-
falda með einingunum í dálknum
til hægri og leggja margfeldin
saman. Síðan er hægt að finna
nýjar vogir mv. þetta gengi á
SDR.
Samsetning SDR 1 janúar1981 var sem hér segir:
Mynt Vægi, % í einu SDR er
US$ 42 0.54
DM 19 0.46
Yen 13 34.00
Fr. franki 13 0.74
St. pund 13 0.071
EMS eða European Monetary
System er gjaldeyriskerfi sem
sett var á laggirnar árið 1979
með þátttöku allra Efnahags-
bandalagsríkjanna nema Bret-
lands og Grikklands. Markmiðið
var að stuðla að betra jafnvægi f
gengismálum aðildarríkjanna.
ECU, European Currency Unit,
mynteining EBE-landanna, ef
svo mætti að orði komast, er
samsett úr níu evrópumyntum.
Hvert ríki ákveður gengi gjald-
miðils síns m.v. ECU, og í EMS
gjaldeyriskerfinu verður frávik
hverrar myntar frá því gengi að
vera innan við 2,25% í hvora átt.
Frávik lírunnar má þó nema 6% í
hvora átt. í einu ECU eru 0,828
DM, 1,15 franskir frankar, 0,885
sterlingspund, 0,286 hollenskar
flórínur, 3,66 belgískir frankar,
109 lírur, 0,217 danskar krónur,
0.00759 írsk pund og 0,44 Lux-
emborgarfrankar.
Kosturinn við samsettu mynt-
irnar er að vegna þess að margar
myntir koma við sögu er minni
gengishætta fólgin í því að miða
fjárskuldbindingar við SDR eða
ECU heldur en við eina mynt.
Notkun þeirra í miiliríkjavið-
skiptum hefúr mjög breiðst út á
undanförnum árum.
Gengi íslensku krónunnar.
31.12.82 kr 01.06.83 kr Breyting frá 31.12.82 % 15.08.83 Breyting trá 31.12.82 01.06.83 % %
us$ 16.65 27.24 63.60 28.20 69.36 3.52
UK pund 26.83 43.33 61.47 42.01 56.57 -3.04
Kanada$ 13.51 22.14 63.88 22.84 69.05 3.16
DKR 1.99 3.00 51.08 2.90 45.95 -3.39
NKR 2.36 3.80 61.23 3.76 59.51 -1.07
SKR 2.28 3.60: 58.39 3.57 56.70 -1.07
Finnskt mark 3.15 4.94 57.10 4.90 55.68 -0.90
Fr. franki 2.47 3.58 44.98 3.47 40.39 -3.17
Bel. franki 0.36 0.54 51.11 0.52 46.47 -3.07
Svi. franki 8.34 12.93 55.18 12.99 55.89 0.46
Holl. gyllini 6.34 9.55 50.67 9.32 46.96 -2.46
DEM 7.00 10.74 53.34 10.43. 48.96 -2.84
ítölsk líra 0.01 0.02 48.81 0.02 44.94 -2.60
Aust. sch. 1.00 1.53 53.25 1.48 49.13 -2.69
Port. escudo 0.19 0.27 46.00 0.23 22.43 -16.14
Sp. peseti 0.13 0.19 45.93 0.19 39.67 -4.29
Jap. yen 0.07 0.11 60.66 0.11 61.86 0.75
írskt pund 23.22 33.93 46.09 32.96 41.94 -2.84
SDR 18.36 29.20 58.99 29.49 60.57 0.99