Vísbending


Vísbending - 14.09.1983, Side 3

Vísbending - 14.09.1983, Side 3
VÍSBENDING 3 anir en sem nemur 80% af verðhækkunum á síðasta tíma- bili eru ekki leyfðar, og ná lögin til allra launþega. Talið er að Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn hafi krafist mjög harðra aðgerða í verðbólgumál- um á næsta ári, en óumflýjan- legt sýnist að verðbólgan nálg- ist 160% í árslok í ár, eins og fyrr segir (sjá mynd). Talið er að markmiðið sé 70% verðbólga í árslok 1984, en ekki munu allir á eitt sáttir um hvort það sé raunhæft markmið í Ijósi þess stjórnarfars sem nú ríkir í Brasi- líu. Búist er við miklum sam- drætti í framleiðslu í ár og næsta ár, en 1984 yrði þá fjórða samdráttarárið í röð. Hallinn á opinberum rekstri eftir skilgreiningu Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins var um 16% af vergri þjóðarframleiðslu, en í þeirri skilgreiningu mun felast öll lánsfjárþörf ríkissjóðs, ríkisfyr- irtækja, og bæjar- og sveitarfé- laga. Þennan halla mun eiga að minnka um þrjá fjórðu í tveimur skrefum í ár og á næsta ári. Af- gangur í vöruskiptum við út- lönd, áætlaður 6,3 milljarðar dollara í ár, mun eiga að hækka í 9 milljarða dollara á næsta ári. Engu að síður mun áætlað að hvorki næsta ár né jafnvel 1985 muni Brasilíumönnum unnt að grynnka á erlendum skuldum; allur afgangur á vöruskiptum rennur til greiðslna á vöxtum af erlendum skuldum. Jafnvel er talið að enn muni þurfa að auka erlendar skuldir um 9 milljarða dollara fyrir árslok 1984, vegna vaxtagreiðslna. rýmun sem varð á raunvirði út- borgunar við vaxandi verðbólgu. Hluta hækkunarinnar miklu frá öðrum ársfjórðungi 1981 til þriðja ársfjórðungs 1982 má hugsan- lega rekja til þessarar ástæðu. Sé þetta rétt, ætti samsvarandi lækk- un að koma fram þegar verðbólga fer lækkandi. Hvað gerist á næstunni? Á minna línuritinu er raunvirði fasteigna sýnt miðað við fast- eignasöluvísitölu Fasteignamats ríkisin„ og byggingarvísitölu. Miklar sveiflur milli ára eru áber- andi. Á einun og hálfum áratug verður auk þess að gera ráð fyrir breytingum sem hafa áhrif á verð á fbúðum til frambúðar. Sem dæmi má nefna nýjungar í bygg- ingartækni, ný byggingarefni, ný viðhorf til húsnæðis varðandi stærð, breyttan efnahag þjóðar- innar að ótalinni breytingunni á lánamarkaði frá almennt neikvæð- um raunvöxtum mestallan síðasta áratug til víðtækrar verðtrygg- ingar fjármagns. Sjálfsagt er því erfitt að bera saman verðlag á íbúðarhúsnæði á sjöunda ára- tugnum og á þeim níunda. Árið 1982 sker sig þó alveg úr. Raunvirði íbúðarhúsnæðis var þá svo hátt að lækkun í kjölfarið gat ekki komið á óvart. Lækkunin kemur vel fram á síðustu ársfjórð- ungunum þremur á stærri mynd- inni. Erfitteraðgerasérgreinfyrir þróun fasteignaverðs á árinu 1984, en afar ólíklegt virðist að raunverð á íbúðum hækki næstu 5 til 6 mánuðina. Áframhaldandi lækkun á raunvirði virðist mun sennilegri á þessu tímabili.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.