Vísbending - 05.10.1983, Page 1
VISBENDING & í>
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL \Í7
12.1 5. OKTÓBER 1983
Gjaldeyrismarkaður:
Gengi dollarans og áhrifþess á evrópska peningakerfið (EMS)
Hágengi dollarans hefur dregið
úr spennu innan EMS
Áhrifin af hágengi dollarans eru
meðal annars þau að dregið
hefur úr áhuga spákaupmanna
á þýska markinu. Við þetta
hefur staða marksins veikst
nokkuð, að því talið er, og þess
vegna er sú spenna sem búist
var við að myndaðist milli EMS-
myntanna í sumar og haust
nokkru minni en annars hefði
orðið. Frá því í febrúar 1982 þar
til í mars í ár þurfti þrisvar að
lagfæra viðmiðunargengi EMS.
Síðasta lagfæring var gerð 21.
mars sl. og síðan hefur dollar-
inn hækkað í verði gagnvart
evrópumyntunum, t.d. um 12%
gagnvart franska frankanum.
Fyrir hækkun dollarans hækk-
aði gengi marksins iðulega mv.
hinar EMS-myntirnar, svo að
seðlabankar viðkomandi landa
þurftu að gríþa í taumana. Ef
gengi dollarans tekur að falla
hverfa væntanlega æskileg
aukaáhrif af hágengi dollarans.
Einkum er talið að franski frank-
inn muni eiga í vök að verjast og
þannig dragi úr stöðugleikan-
um innan EMS sem ríkt hefur
undanfarið.
Er lækkun dollaragengis i
vændum í haust?
Langvarandi hækkun dollarans
virðist hafa stöðvast fyrir fáein-
um vikum, nálægt miðjum
ágústmánuði. Margir eru nú
þeirrar skoðunar, að lækkun
dollarans, sem spáð hefur verið
í liðlega tvö ár eða jafnvel leng-
ur, sé nú ef til vill væntanleg
innan fárra vikna eða mánaða.
Menn greinir á um hvenær
lækkun dollarans muni hefjast,
en óttast er að grafi undan
gengi franska frankans er gengi
dollarans tekur að síga; gengi
frankans taki að veikjast þegar
dollaragengið er komið niður í
DM2,60. Fari gengi dollarans
niður fyrir DM2,50 er búist við
spákaupmennsku milli marks
og franka og gæti þá svo farið
að enn þyrfti að lagfæra viðmið-
unargengi EMS á fyrri hluta
næsta árs. Gæti þá farið svo að
fella þyrfti gengi frankans mv.
markið um 5% til 8%, en í
Frakklandi er nú allt traust sett
á aðhaldsaðgerðir Mitterand-
stjórnarinnar sem hófust fyrir
um það bil hálfu ári.
Góður árangur af efnahagsað-
gerðum í Frakklandi
Evrópska myntkerfið hefur
vissan sveigjanleika innbyggð-
an. Með því er engu að síður
mörkuð gengisstefna, sem er
ríkisstjórnum í viðkomandi
löndum mjög til aðhalds. Gengi
hvers gjaldmiðils verður að
haldast innan ákveðinna marka,
og markmið efnahags- og pen-
ingastjórnar í hverju landi verða
að vera samrýmanleg stefnu-
mörkuninni í EMS. Bretar hafa
enn ekki talið sér fært að ganga
í EMS vegna þeirratakmarkana
sem sjálfstæðri stjórn efna-
hagsmála yrðu þá settar.
Aðhaldsaðgerðir Frakka í efna-
hagsmálum, sem hófust fyrir
um það bil hálfu ári, þykja hafa
borið góðan árangur. Vöru-
skiptahalli var minni í ágúst en í
nokkrum mánuði í tvö ár, og
halli á greiðslujöfnuði var
aðeins 2,9 milljarðar franka á
öðrum ársfjórðungi, en 30,2
milljarðar franka á fyrsta árs-
fjórðungi. Hafa spár um gengis-
lækkun frankans verið lagfærð-
ar til samræmis, til dæmis spá
Henley Centers um gengi
frankans. Hefur spáin verið
færð úr 8% gengislækkun
frankans 1984 í 4%gengislækk-
un. Minna hefur þó dregið úr
verðbólgu í Frakklandi en vonir
stóðu til. Nú er spáð um 8%
verðbólgu í árslok í stað 9,6%
verðbólgu í fyrra. Verðbólga í
Frakklandi yrði þá þrisvar sinn-
um meiri en í Þýskalandi og
næstum helmingi meiri en í
Bretlandi.
Önnur hugsanleg áhrif af
lækkun dollarans
Ef gengi dollarans tekur að falla
er búist við að spákaupmenn
snúi sér að „sterku" myntun-
um, þýska markinu og hol-
lensku flórínunni. Þannig skap-
aðist fljótlega spenna milli
myntanna í EMS. Franski frank-
inn er talinn veikastur þeirra,
vegna verðbólgu og viðskipta-
halla eins og rakið hefur verið,
og líran og belgíski frankinn eru
einnig talin í hættu.
Spár frá Chase Econometrics
herma að dollarinn gæti lækkað
í 7,83 franska franka undir lok
ársins og að markið muni þá
hækka í 3,08 franka. Fari svo
yrði frankinn að allægsta móti
gagnvart EMS myntunum, en
þó rétt innan leyfilegra marka.
Sjá töflu með krossgengi á bls. 3
Efnl:
Áhrif dollaragengls á EMS 1
Gjaldeyrisstýrlng 2-3
Jafnvægisgengi dollarans 3
Penlngamál 4
Töflur:
Krossgengi 3
Gengi íslensku krónunnar 4
Gengl helstu gjaldmiðla 4