Vísbending


Vísbending - 16.11.1983, Side 2

Vísbending - 16.11.1983, Side 2
VÍSBENDING 2 Vinnumarkaður frh. af bls. 1 mælikvarða, þar sem tölur liggja ekki fyrir og framleiðsla á íslandi er að mjög litlu leyti sambærileg við fram- leiðslu iðnríkjanna. Búist er við minnkandi launakostnaði við fram- leiðslu í Bandaríkjunum miðrð við önnur lönd vegna þess að þar hefur verið mjög mikill hagvöxtur í ár (7- 9%) og framleiðni því mikil. Á mynd 2 er hins vegar reynt að gera launakostnaði á íslandi nokkur skil. Bornir eru saman tveir mælikvarðar ásamkeppnisstöðu, raungengi, sem áður hefur verið nefnt, og „kaup- taxtasamanburður". Síðarnefnda stærðin er fengin með því að leið- rétta breytingar meðalgengis krón- unnar með mismuninum á milli breytinga launataxta heima og í við- skiptalöndunum. Þessir tveir mæli- kvarðar á samkeppnishæfni út á við eru raunar um leið aðferðir til að beita við gengisstjórn. Ef gengi væri ein- göngu stjórnað þannig að kaupmátt- arjafnvægi (Purchasing Power Par- ity, einnig þekkt sem PPP) héldist milli landa væri raungengi alltaf óbreytt. Ef gengi væri eingöngu stjórnað þannig að jafnvægi héldist í launakostnaði milli landa (Labour Cost Parity eða LCP) væri „kaup- taxtasamanburðarlínan" alltaf lárétt og bein. Skattamál En samanburður á launataxtabreyt- ingum milli landa er engan veginn fullnægjandi vegna þess að ekki er tekið tillit til framleiðnibreytinga og skatta. Lækkun opinberra gjalda á atvinnurekstur, ekki síst launa- tengdra gjalda, kemur ekki síður til greina til að bæta samkeppnisstöðu þjóðar út á við en lækkun (eða minni hækkun) launataxta eða lækkun gengis. ( „London Business School Outlook" frá október s.l. er t.d. hvatt til að skattar á atvinnurekstur séu lækkaðir til að auka atvinnu jafnvel þótt til þess þurfi að hækka aðra skatta, t.d. virðisaukaskatt. Lækkun pundsins væri þó miklu áhrifameiri til að bæta stöðu bresks útflutningsiðn- aðar. Er gengi krónunnar ofhátt skráð ? Pað er freistandi að halda gengi föstu með beinum ákvörðunum til að draga úr hækkunum innflutnings- verðlags. En gengi gjaldmiðils, sem er verð hans miðað við aðrar myntir, ræðst þegar til lengdar lætur af mis- muninum á milli peningaframboðs heima fyrir og í viðskiptalöndunum. Þegar til lengdar lætur verður ekki ráðið við verðbólgu nema með fullri stjórn á aukningu peningamagns. Lánsþörf hins opinbera er snar þáttur í peningamyndun og því verður að minnka hana. Þessar aðgerðir taka tíma, varla minna en tvö ár, ef vel tekst til. Á meðan þarf að halda raungengi lágu og raunvöxtum háum og gæta strangs aðhalds í þeningamálum. Þess vegna er gert ráð fyrir heldur meiri gengislækkun og meiri launa- hækkunum á næsta ári í verðbólgu- spá Vísbendingar 31. ágúst s.l. heldur en í forsendum fjárlagafrum- varps. í síðustu viku var hreyft við þeim hugmyndum af hálfu Vinnuveit- endasambandsins að fella niður niðurgreiðslur á næsta ári og nota þá fjármuni sem til þeirra voru ætlaðir, um railljarð króna, til láglaunabóta. Þetta er skynsamlegt, þótt verðbólga vaxi smávegis. Verð á landbúnaðar- vörum leiðréttist miðað við aðrar vörur, og fjármunir nýtast betur þeim lægstlaunuðu, sem á þeim þurfa að halda, betur.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.