Vísbending


Vísbending - 04.01.1984, Side 2

Vísbending - 04.01.1984, Side 2
VÍSBENDING 2 Áramótagengið: Sterku gjaldmiðlarnir 1983 voru dollari og yen Gengi dollarans í krónum hækkaði um 73% á árinu Gengi dollarans var á gamlársdag 1982kr. 16,65, en kr. 28,71 þann 30. desember s.l. og hækkaði því verð á dollaranum um 72,4% á árinu 1983. Á sama tíma hækkaði meðalgengi krónunnar um nálægt 65%, en gengi dollarans hækkaði mjög gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum á síðasta ári. I meðfylgjandi töflu sést, að samkvæmt gengisskráningu Seðlabankans síðasta virkan dag hvors árs, 1982 og 1983, hækkaði dollarinn um 14,56% gagnvart þýska markinu, 9,07% gagnvart svissneskum frönkum, 17,38% gagnvart dönsku krónunni, 9,34% gagnvart sænsku krónunni, o.s.frv. (næstsíðasti dálkur í efri hluta töflunnar). Gengiyensins hefurþó nokkurn veginn haldið í við dollarann. Breytingará gengi helstu mynta á sfðasta ári eru því einkum fólgnar í hækkun á gengi dollara og yens gagnvart öðrum helstu myntum. Kemur þessi þróun líka fram í skráningu á gengi krónunnar. Frá miðju ári (aftasti dálkur í neðri hluta töflunnar) hefur verð á erlendum gjaldeyri hækkað að meðaltali um 2,27%. Á sama tima hefur verð á dollaranum hækkað um 4,29%, verð á yeni um 7,33%, en verð á þýsku marki lækkað um 2,45% oghollenskaflórínanlækkaðum2,67%. Þessmá geta, að neikvæðu tölurnar i efstu línu í öftustu þremur dálkum töflunnar eru vegna þess að í þeirri línu er skráð gengi dollarans gagnvart pundi (en ekki gengi punds í dollurum). Mínustölurnar sýna því lækkun á verði pundsins í dollurum. Horfur í verðlags- og gengismálum Á síðustu vikum nýiiðins árs varhljótt um spámenn á sviði verðlags- og gengismála hér á landi, og má ef til vill segja, að menn haldi niðri í sér andanum á meðan beðið erátekta. Á spástefnu Stjórnunarfélags íslands, sem haldin vará Hótel Loftleiðum 8. desembers.l., varaðeins lögð fram ein sjálfstæð spá um verðlags- og gengismál, auk spár Þjóðhagsstofnunar sem áður hafði birst að hluta í þjóðhagsáætlun. Varþað spá Þórðar Magnússonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Eimskipafélags íslands, og er spáin notuð sem efnahagslegar forsendur við fjárhagsáætlunargerð fyrirtækisins. Þá má nefna, að í desemberhefti Viðskiptamála, fréttabréfs Verzlunarráðs íslands, erað finna spá um lánskjara- og byggingarvísi- tölu fram til miðs árs 1984. Á litlu myndinni eru til gamans sýndar þær spár sem handbærar eru um breytingar verðlags á nýbyrjuðu ári. Stefna stjórnvalda, eins og hún er sett fram í þjóðhags- áætlun, felurí sérað verðbólgan verði komin undir 10% í lok ársins. í launamálum var upphaflega stefnt að um 6% hækkun launa á árinu, en þau mörk hafa nú verið lækkuð um2% til samræmis við lakari aflahorfur og lægri þjóðartekjurá árinu. Stefnt erað gengisfestu, þ.e. sem stöðugustu gengi gagnvart erlendum gjaldeyri, en tilgreind eru 5% mörk „ til hvorraráttar eftirþvísem nánar verður ákveðið". Þá eráskilinn nokkur sveigjanleiki eftir breytilegu gengi helstu gjaldmiðla erlendis. Forsendur Þórðar Magnússonar vegna fjárhagsáætlana Eimskips, sem vikið varað hérað framan, gera ráð fyrir 22% hækkun byggingarvísitölu frá upphafi til loka ársins. Reiknað ermeð launahækkun íþremuráföngum á árinu, 6% ímars, 5% íjúníog4% íoktóberfhéreraðsjálfsögðu aðeins um reikniforsendurað ræða, en ekki beina spá um líklegustu atburði), alls um 15,8%> hækkun launa á árinu. Þá erreiknað með að gengi dollarans í árslok I ár verði kr. 34 og gengi þýska marksins kr. 13,90. í reikningunum felstaðgengidollaransm.v. DMlækkarúrDM2,66ÍDM 2,44 á árinu. Verð á dollara íkrónum hækkarþá um 20% á árinu, en verð á DM um 30%. Eins og fyrr greinir voru ekki lagðar fram á Spástefnunni aðrar spár en spá Þórðar Magnússonar og spá Þjóðhagsstofnunar, sem að nokkru hafði birst fyrr. Spá Verzlunarráðs íslands nær sem fyrrsegir til miðs árs og aðeins til lánskjara- og byggingarvísitölu. Lánskjara- vísitala var í desember s.l. 836, en er áætluð 950 í júní I reikningum Verzlunarráðsins og erhækkunin 14% eða 30% miðað við heilt ár. Áætlað gildi byggingarvísitölu í maí (þ.e. mælt í apríl) er2490. Hækkunin nóvember '83 til apríl '84 er 9% eða 23-24 % miðað við heilt ár. Gjaldeyrisstýring, framhald skráö gengi allan lánstímann er ekki þekktfyrirfram. (grein Oxelheims er lagt til aö miðað sé við einhvers konar jafnvægis- gengi til gengisuppfærslu, og bendir höfundurinn á þrjár leiðir sem helst koma til greina við að reikna jafn- vægisgengið. Aðrar leiðir eru þó auðvitað hugsanlegar. Þær aðferðir sem Oxelheim nefnir eru (i) að miða við gengi sem reiknað er eftir kaup- máttarjafnvægi (Purchasing Power Parity, PPP), (ii) að miða við gengi sem reiknað er eftir vaxtajafnvægi (Interest Rate Parity), og (iii) eftir Fishers-reglunni, en hún er nokkurs konar kaupmáttarjafnaðarregla á fjár- magnsmarkaði (sjá Vísbendingu, 2.1,27. júlf s.l., bls. 3). Kaupmáttarjöfnuður í kenningunni um kaupmáttarjöfnuð felst að mismikil verðbólga milli landa ráði mestu um breytingar á gengi gjaldmiðla landanna, þegar lengra er litið. Reglan á því helst við, þegar litið er á breytingar gengis yfir nokkurra ára skeið, en er síður gagnleg til að skýra skammtímabreytingar. Væri reglunni beitt til að reikna nokkurs konar „bókhaldsgengi" yrði litið á frávik frá því gengi sem tilviljunar- kennd eða háð áhrifum stjórnvalda og að þau jöfnuðust út að fullu með tímanum. Þannig mætti líta á vísitölu kaupmáttarjafnaðar (sem einnig er kunn sem vísitala raungengis) sem mælikvarða á það, hvort erlendar eignir og skuldir séu vanmetnar eða ofmetnar í reikningum fyrirtækja. Tæknilega séð er sá vandi tengdur

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.