Vísbending


Vísbending - 22.02.1984, Qupperneq 1

Vísbending - 22.02.1984, Qupperneq 1
VÍSBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI QG EFNAHAGSMÁL_ 8.2 22. FEBRÚAR 1984 Bandaríkjadollari Eru breytingar á gengi helstu gjaldmiðla í vændum? Áframhaldandi lækkun dollaragengis? Gengi dollarans hefur nú farið lækk- andi síðustu vikurnar frá því sem það var hæst I janúar s.l. Samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka ís- lands var gengi dollarans gagnvart þýska markinu DM 2,8434 þann 10. janúar s.l. í síðustu viku lækkaði gengið úr 2,73-2,74 DM/$ ( um 2,67-2,68 DM/$ og hafði því lækkað um 4—6% frá því sem það var hæst í janúar. Gengi dollarans gagnvart jap- anska yeninu hefur breyst mun minna og hefur að mestu leyti haldist á bilinu 232-234 yen/$ frá áramót- um. Sú spurning er þó brennandi hvort sú lækkun á gengi dollarans sem lengi hefur verið spáð sé nú í vændum eða hvort áframhaldandi hækkun á dollaragenginu fylgi í kjölfar þessara lækkunar eins og margra fyrri á síðustu misserum. Flestir hagfræðingar munu hafa fengið sig fullsadda af því að spá fyrir um dollaragengi í bráð. En þeim vex þó ásmegin sem telja að vaxandi misvægi í bandarísku efnahagslífi hljóti brátt að hafa áhrif á gengi gjald- miðilsins. Bandarísk efnahagsmál hafa einnig verið til umræðu síðustu daga og vikur vegna ársskýrslu hag- ráðs (U.S. Council of Economic Advisers, CEA), sem lögð var fram nýlega, og vegna umfjöllunar banda- ríska þingsins um fjárlagatillögur forsetans. Hafa bæði Martin Feld- stein, formaður CEA, og Paul Volcker, seðlabankastjóri, verið ómyrkir í máli og lýst þeim vanda sem steðji að bandarísku efnahags- lífi verði ekki bundinn skjótur endir á höllunum tveimur, viðskiptahalla Bandaríkjamanna og hallanum á opinberum rekstri. Vaxandi líkur á gengis- lækkun dollarans 1984 Lækkun dollarans síðustu dagana hefur vakið til umhugsunar um hvort um áframhaldandi og varanlega lækkun verði að ræða. Þótt enn sé Efni: Bandaríkjadollari 1 Yfirlit: Noregur, Danmörk, Luxemburg 3 Lífeyrisskuldbindingar bandarískrafyrirtækja 4 Töflur: Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4 alltof snemmt að dæma um það mun óhætt að segja að vaxandi líkur séu á að gengi dollarans fari lækkandi gagnvart helstu gjaldmiðlum í ár. Hallinn á viðskiptum við útlönd fer sívaxandi og hlýtur senn að leiða til þess að traust manna á gjaldmiðl- Gengi dollarans gagnvart þýsku marki og yeni

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.