Vísbending


Vísbending - 22.08.1984, Qupperneq 3

Vísbending - 22.08.1984, Qupperneq 3
VÍSBENDING 3 Vextir og gengi Gengisstefnan hefur verið treyst með vaxtabreytingunni Spurningu svaraö „ Hvað gæti gerst ef vextir á Bretlandi væru jafnlágir og i Þýskalandi eins og þeir ættu ef til vill að vera með tilliti til innra jafnvægis þjóðarbúsins?“ Eitthvað á þessa leið hljóðaði spurning í lesendabréfi í Financial Times en eins og kunnugt er hækkuðu grunn- vextir á Bretlandi fyrir nokkrum vikum, (sjá Vísbendingu 18. júlí sl.) úr 9,25% í 12%. (Grunnvextir („base rate“) á Bretlandi síðan lækkað aftur í 10,5%). Einn af ritstjórum Financial Times, Samuel Brittan, svaraði spurn- ingunni. „Svarið er í stuttu máli að gagnstætt við það sem margir halda geta stjórn- völd og seðlabankar ekki ráðið raun- vöxtum. Raunvextirráðastáalþjóðleg- um fjármagnsmarkaði. Ef óvissu gætir í stefnumörkun í efnahagsmálum geta stjórnvöld orðið þess valdandi að þar verði raunvextir hærri en annars staðar. Raunvextir geta orðið lágir um hríð ef gengi gjaldmiðilsins er álitið óeðlilega lágt þannig að allar líkur séu á að það fari hækkandi. Slíkt ástand getur þó aldrei orðið varanlegt. Því er ekki annarra úrræða völ - ef frá eru talin harkalegustu gjaldeyrishöft sem að líkindum aldrei er hægt að fram- fylgja - en að sætta sig við þá vexti sem ríkja á alþjóðlegum markaði. Eina aðferðin sem dugar til að lækka vexti er að auka sparnað eða draga úr lántökum. Stjórnvöld geta stuðlað að þessu með stefnu sinni í fjármálum; ekki einungis með því að minnka halla- rekstur ríkissjóðs heldur einnig með því að fella niður ákvæði skattalaga sem hvetja til lántöku, t.d. þau að vaxtagjöld vegna húsnæðislána séu frádráttarbær til tekjuskatts. En Banda- ríkin eru eina ríkið sem er nógu öflugt til að hafa áhrifá alþjóðlega vexti með slíkum ráðstöfunum. “ Svar ritstjórans er talsvert lengra en þetta en því lýkur eitthvað á þessa leið. „Mergurinn málsins er sá að hvorki bréfritarinn né heldur Englandsbanki þekkja þá vexti sem samrýmast innra jafnvægi þjóðarbúsins. Ef markaður- inn gefur þráfaldlega svör sem stang- ast á við þær hugmyndir sem maður hefursjálfur (t.d. um ónýtt framleiðslu- tæki) þá eru það síðarnefndu hug- myndirnarsem kynnu að vera rangar. “ Peningamarkaður, vextir og gengi Það eru ef til vill fæstar þjóðir heims- ins sem geta látið gerigi gjaldmiðilsins síns „fljóta", þ.e. ráðast á frjálsum markaði. í marslok miðuðu 33 þjóðir gjaldmiðil sinn við Bandaríkjadollara, gjaldmiðlar 13 landa voru tengdir frönskum franka og tvær myntir voru tengdar suðurafrísku myntinni. Gjald- miðill eins lands var tengdur hverri eftirfarandi mynta: sterlingspundi, ind- versku myntinni og pesetanum. Að lok- um voru 11 myntir miðaðar við SDR- vog og gjaldmiðlar 28 annarra þjóða voru miðaðir við aðrar gengisvogir (meðal þeirra eru Svíþjóð, Noregur, Finnland og Island). Fyrirkomulag gengismála getur þó engu breytt um það hvað raunverulega ræður gengi. Sé gengi ekki leyft að fljóta er umfram- framboðs tekur að gæta á peninga- markaði leitar þrýstingurinn annað. Fjármagn leitar úr landi vegna þess að hættan á lækkandi gengi eykst og vex þá eftirspurn eftir erlendum vörum og þjónustu ef óheimilt er að kaupa erlend peningaleg verðmæti (eins og hér á landi). Hér er miðað við að raunvextir f heimalandinu séu svipaðir og í grann- löndunum. Ef vextir eru háir heimafyrir dregur aðeins úr þeirri hættu að hátt gengi ýti undir fjárflótta. Og eins og Samuel Brittan bendir á í svari sínu þá geta stjórnvöld með fjármálaaðgerð- um dregið úr spennu á lánsfjármarkaði með því að minnka lánsþörf hins opin- bera og með því að afnema þau ákvæði skattalaga sem gera lántökur hagkvæmari en ella og koma í veg fyrir að almenningur spari eðlilega. Hágengið Hér á landi hefur verð á erlendum gjaldeyri lækkað mikið miðað við inn- lent verðlag síðan um mitt ár í fyrra. Gengi krónunnar er farið að veikjast. Það er hins vegar hornsteinninn í efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar að halda gengi krónunnar föstu - eða sem stöðugustu miðað við tiltekna gengis- körfu. Verulegur árangur í peninga- og ríkisfjármálum síðustu mánuðina hefur rennt stoðum undir stefnu stjórn- valda í efnahagsmálum. Mikil hækkun raunvaxta síðutu tólf mánuðina og frelsi innlánsstofnana til að ákveða vaxtakjörin framvegis gerir það að verkum að hugsanlegt er að halda gengi krónunnar svipuðu á næsta ári. Með þvf móti er ef til vill unnt að bæta hag launþega með aukinni framleiðni án þess að það leiði til umtalsverðrar aukningar á verðbólgu. Og því lengur sem hægt er að halda aftur af verð- bólgu því líklegraverðurað við losnum úr vítahring siðasta áratugs. Erlendar skuldir - erlendar eignir Skuldir landsmanna í útlöndum munu nema um það bil 12-1300 millj- ónum Bandaríkjadollara eða um 7-8 mánaða framleiðslu þjóðarbúsins. Þetta kann að sýnast mikið og einkum setur greiðslubyrðin heilum atvinnu- greinum, opinberum fyrirtækjum og rikissjóði þröngar skorður í rekstri. % Lækkandi raunverð á erlendum gjaldeyri hefur að öðru jöfnu í för með sér veikari stöðu þjóðarbúsins út á við. Háir raun- vextir hafa gagnstæð áhrif. Vegna þess hve hækkun vaxta umfram verðbólgu sið- ustu misserin er mikil er torvelt að meta áhrif hennar. Þar sem raunverð á erlend- um gjaldeyri er ekki lægra en það hefur verið áður kynni hækkun vaxta frá miðju ári I fyrra að nægja til að ná jafnvægi í þjóðarbúskaonum út á við. Ákjósanlegt væri því að skuldir þessar lækkuðu eitthvað með betra árferði og skynsamlegri ráðstöfun fjármuna. Þó má nefna tvær leiðir til lækkunar er- lends skuldahlutfalls aðrar en beinar endurgreiðslur með rekstrarfé. Hugsanlegt er að endurfjármagna erlend lán með innlendu sparifé. Þetta gerist ekki eins og hendi sé veifað. Með vaxtafrelsinu var stigið stórt skref en áframhaldandi afnám hafta á fjár- magnsmarkaði er nauðsynlegt. Með þessu móti lækkar skuldabyrði þjóðar- innar út á við án þess að hert sé um of að rekstri þeirra sem þyngstar erlendar skuldir bera. I öðru lagi mætti gera Islendingum kleift að eignast erlend verðbréf. Bandarísk ríkisskuldabréf þykja nú framh. á bls. 4.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.