Vísbending


Vísbending - 24.10.1984, Síða 3

Vísbending - 24.10.1984, Síða 3
VÍSBENDING 3 og gengi gjaldmiðla orðið til þess að fyrirtæki leita tryggingar með þess- um hætti. Sem dæmi má nefna skuldabréfaútboð Svía sem sagt var frá í Vísbendingu 12. septembersl. Svíar þóttu ná afar hagstæðum samningum; vextirnir eru það sem lægraeraf ”prime rate” mínus0,4% eða vöxtum á þriggja mánaða inn- legssnótum (”certificates of de- posits”) plús 0,55%. Sem uppbót fyrir lága vexti fylgir réttur til að innleysa bréfin á genginu 100 að viðbættum vöxtum einu sinni á ári. Fjölmörg önnur dæmi mætti nefna um rétt í skuldabréfaviðskiptum á erlendum markaði. Optionir á innlendum verðbréfa- markaði Eins og fyrr var rakið er ekki unnt að gefa út skuldabréf á íslandi nú með breytilegum vöxtum vegna þess að vaxtaviðmiðunina vantar. Segja má að fyrir 11. ágúst sl. hafi ,,hæstu lögleyfðir vextir“ á verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum að vissu leyti verið breytilegir þótt ekki réðust breytingarnar alltaf af mark- aðsaðstæðum. Seðlabankinn hefur birt þá vexti sem hann telur að svari nú til þeirra vaxta sem áður voru ,,hæstu lögleyfðir vextir" og eru þeir 23% á óverðtryggöum skuldabréf- um, 7% á verðtryggðum skulda- bréfum til tveggja og hálfs árs eða lengri tíma en 6% á verðtryggðum bréfum til skemmri tima. Ekki munu þó hafa verið gefin út skuldabréf með þessari vaxtaviðmiðun eftir 11. ágúst sl. Afar óæskilegt er að útgáfa skuldabréfa með breytilegum vöxt- um skuli hafa stöðvast. Vextir eru háir um þessar mundir og kynnu að fara lækkandi. Skuldarar sætu þá uppi með hærri fjármagnskostnað en nauðsynlegt væri. En einnig gæti svo farið að vextir hækkuðuennum sinn. Með því að kaupa skuldabréf með föstum vöxtum nú yrðu spari- fjáreigendur af ávöxtun sem þeir ella gætu notið. Ein leið til að finna breytilega vexti er að reikna vegið meðaltal af hæstu vöxtum bankanna á hverjum flokki skuldabréfa. Þessir vegnu vextir munu væntanlega breytast eftir markaðsaðstæðum hverju sinni og þannig væri t.d. hægt að reikna mánaðarleg meðaltöl þessara vegnu vaxta. Tíminn frá 11. ágúst sl. er hins vegar svo skammur að ekki er hægt að treysta á þessa skilgrein- ingu til viðmiðunar í verðbréfavið- skiptum. Önnur leið er að miða við LIBOR vexti á einhverjum gjaldmiðli eða SDR-vexti eða ECU-vexti. Þá yrði að hverfa frá verðtryggingu til gengis- tryggingar. Hætt er við að slík vaxtaviðmiðun í innlendum skulda- bréfaviðskiptum yrði þung í vöfum og flókin. Þá er óvíst að hún væri heimil lagalega. Og ekki er einhlítt að breytilegir vextir á einhverjum er- lendum gjaldmiðli yrðu réttlátari við- miðun í íslenskum verðbréfavið- skiptum en fastir vextir og verð- trygging miðuð við lánskjaravísitölu. Vextir á ríkisvíxlum eru ein leið í viðbót en útgáfa þeirra hefur staðið of stutt auk þess sem nokkur vafi leikur á að þar sé um hreina markaðsvexti að ræða. Þennan vanda væri ef til vill unnt að leysa að hluta með því að skuldari, kröfuhafi eða báðir hefðu rétt til að endurskoða vexti bréfsins með vissu millibili. Sem dæmi mætti taka verðtryggt veðskuldabréf til átta ára gefið út í október 1984 með föstum vöxtum og selt á gengi sem miðast við 14% ávöxtunarkröfu. Slíkt bréf gæti falið í sér rétt annars eða beggja aðila til endurskoðunar eftir tilteknum reglum tveimur, fjórum og sex árum eftir útgáfu bréfsins. Semjist ekki um ávöxtun yrði bréfið greitt upp. Æski hvorugur endur- skoðunar framlengist samningurinn óbreyttur. Hafi bæði kröfuhafi og skuldari slíkan rétt jafnast kostn- aðurinn út. Hafi aðeins annar þeirra rétt til endurskoðunar selst bréfið á lægra gengi en ella ef rétturinn er skuldarans en hærra gengi en ella ef rétturinn er kröfuhafans. Raunvextir á innlendum og erlendum lánum Vextir umfram verðbólgu eða raun- vextir á innlendum lánum eru oft reiknaöir sem mismunurinn á nafnvöxtum og verðbólgu. Ef verðbólgan er t.d. 10% og vextir 15% er sagt að raunvextir séu (15- 10 = ) 5%. Þetta er þó ekki alveg nákvæmt því að með frádráttaraðferðinni taþast verðbætur á vexti (eða vextir á verðbætur). Til að reikna rétta vexti um- fram verðbólgu í þessu dæmi þarf að deila 1,10 upp í 1,15: (1,15/1,10) = 1,04545, svo að vextir umfram verðþólgu eru þá4,55% áári. Erfiðara er að reikna raunvexti á er- lendum lánum. Til að bera saman kostnað vegna erlendra lána við inn- lendan lánskostnað verður þó ekki hjá því komist að meta raunvexti á erlendum lánum með einhverjum hætti. í Vís- bendingu hefur sú leið verið farin að reikna svokallaða vísitölu lánskostnaðar vegna erlendra lána, en hún sýnir hvemig erlent lán hækkar umfram hækkun láns- kjaravísitölu vegna áfallinna erlendra vaxta og gengisbóta. Vísitalan er reiknuð á eftirfarandi hátt. Vextir eru lagðir við höfuðstól í erlendri mynt. Síðan ersú fjár- hæð færð upp með hækkun á verði við- komandi gjaldmiðils í krónum á árinu. Að lokum er tekið tillit til hækkunar lánskjaravísitölu. Tökum sem dæmi lán í þýskum mörkum. Höfuðstóll er 100 í ársbyrjun, ársvextir í mörkum 8%. Höfuðstóll í árslok er 108. Verð á þýsku marki í ársbyrjun er kr. 8,00 og kr. 9,00 í árslok. Hækkun lánskjaravísitölu á árinu er þá (108 x (9,00/8,00)/1,15) eða 105,65; vextir umfram hækkun láns- kjaravísitölu eru 5,65%. Þannig er unnt að reikna vexti umfram lánskjaravísitölu á erlendum lánum þegar allar upplýsingar eru þekktar, þ.e. eftirá, og þeir vextir eru sambærilegir við vexti á verðtryggðum innlendum lánum. Á hinn bóginn er erfitt að áætla raunvexti á erlendum lánum fram í tímann eins og þó verður að gera þegar erlend lán eru tekin. Til að reikna vísitölu lánskostnaðar fram í tímann verður að gera ráð fyrir tilteknum breytingum ágengi viðkömandi myntar og breytingum lánskjaravísitölu á sama tíma. Ein leið er að notast við regl- unaumkauþmáttarjöfnuð; en hún segirað gengi gjaldmiðla breytist til aö halda kauþmætti óbreyttum á milli gjaldmiðla. Ef verðbólga á Islandi er 15% og verð- bólga í Þýskalandi er 2,5% verður verð á marki hér á landi að hækka um (1,15/ 1,025) 12,2% til að verð á þýskum vörum haldist óbreytt hér á landi miðað við inn- lendar vörur. Þannig er einnig hægt að áætla vfsitölu lánskostnaðar fram í tímann eftir reglunni um kaupmáttar-

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.