Vísbending


Vísbending - 28.11.1984, Qupperneq 1

Vísbending - 28.11.1984, Qupperneq 1
VISBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL 47.2 28. NÓVEMBER 1984 Verðbólgan 1985__________________________________ Stefnir í um 25% verðbólgu frá byrjun til loka ársins Mikil hækkun launa og erlends gjaldeyris Eftir kjarasamninga haustsins og þær ráðstafanir í efnahagsmálum sem gerðar hafa verið í kjölfar þeirra má búast við talsvert örum verðbreytingum næstu vikurnar og fram á vorið. í samningum ASÍ og VSÍ fólst 18-19% hækkun peninga- launa á tímabilinu til 1. janúar nk. en um 24% hækkun peningalauna til loka næsta árs. Pá hefur gengi krónunnar fallið svo gagnvart öðr- um myntum að meðaltali að verð á erlendum gjaldeyri var tæplega 19% hærra föstudaginn 23. nóv- ember sl. en um miðjan október- mánuð. Erfitt er að segja nákvæm- lega til um hvernig þessar hækkanir koma fram í verði vöru og þjónustu á næstu vikum og mánuðum. Engu að síður er ljóst að hér er um meiri hækkanir að ræða en í þeirri hug- mynd um verðlag á næsta ári sem sett var fram í Vísbendingu þann 7. nóvember sl. og birtast því endur- reiknaðar tölur í þessu blaði (sjá töflu á bls. 4). Hækkanir eru meiri annars vegar vegna þess að í ASÍ/ VSÍ samningunum koma launa- hækkanir fyrr á samningstímanum en í samningum BSRB og ríkisins, en hins vegar vegna þeirrar breytingar á gengi krónunnar sem nú hefur verið gerð. Um 3-5% hækkun á mánuöi næstu 3-4mánuði Ef til vill hefur sjaldan verið eins nauðsynlegt og nú að gera skýran greinarmun á þriggja mánaða breytingum verðbólgu og tólf mán- aða breytingum og stafar það af því hve ofangreindar hækkanir hellast yfir með skjótum hætti (sjá mynd á bls. 1). Svo kynni að fara að þriggja mánaða hraði framfærsluvísitölu yrði á milli 50 og 60% í febrúar og mars á næsta ári, jafnvel hærri. Tólf mánaða hraðinn breytist hægar en gæti náð um 30% mánuðina mars til júní/júlí á næsta ári. Eftir það dregur úr verðhækkunum á nýjan leik. Þriggja mánaða hraði fram- færsluvísitölu gæti jafnvel orðið innan við 15% á síðari hluta næsta árs. Hækkun verðlags frá upphafi til loka ársins gæti orðið u.þ.b. 25%. Þetta er nokkru hærri tala en kom fram í stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi sl. fimmtudag og gæti munurinn legið í ráðstöfunum stjórnvalda sem enn eru ekki komnar fram, t.d. lækkunum að- flutningsgjalda. Auk þess er tölu- verð óvissa í framreikningum af þessu tagi og kynni að vera meiri nú en endranær af tveimur ástæðum. Um er að ræða allmiklar hækkanir launa og gjaldeyris (næstum 20% á tveimur mánuðum) og því erfiðara að áætla hvernig þær koma fram í vöruverði en þegar hækkun verð- lags er jafnari og minni. Auk þess hefur verðlagning verið gefin frjáls á allmörgum mikilvægum vöru- Efni: Verðbólgan 1985 Hágengi dollarans og viðskipti 1 vegna alþjóðlegra skulda Islendingar með eitt af 10 2 bestu lénum ársins 3 Töflur: Eurovextir 4 Gengi helstu gjaldmiðla 4 Gengi íslensku krónunnar 4

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.