Vísbending - 22.05.1985, Síða 2
VÍSBENDING
2
munur kemur fram að meira eða
minna leyti mánuðina sem myndin nær
til (desember 1984 til ágúst 1985) en
fer þó minnkandi er líður á sumarið. Sé
litið á fyrri hluta ársins 1985 er er-
lendur lánskostnaður miðað við lán í
myntunum fjórurn á bilinu 5 til 15%
umfram hækkun lánskjaravísitölu sé
miðað við síðustu 12 mánuði eða
síðustu 36 mánuði, en á bilinu -5 til
5% umfram hækkun lánskjaravísitölu
sé miðað við síðustu 24 mánuði.
Skýringin er fólgin í því að á fyrri hluta
ársins 1983 var raungengi krónunnar
afar lágt í samanburði við önnur
tímabil, þ.e. verð á erlendum gjaldeyri
var hlutfallslega hátt. Neðri myndin
sýnir raungengi krónunnar
(1978=100) eftir ársfjórðungum árin
1980 til 1985 (áætlun 1985) eftir
reikningum Seðlabanka Islands
(Hagtölur mánaðarins, desember
1984). Ef fyrri hluti ársins 1983 er
borinn saman við fyrri hluta áranna
1982 og 1984 sést þessi mismunur
glögglega. Raungengi krónunnar
(1978= 100) var 97,0 á 2. ársfj. 1982,
83,6 á 2. ársfj. 1983, 88,6 á 2. ársfj.
1984 og var áætlað 90,2 á 2. ársfj.
1985. A öðrum ársfjórðungi 1983 var
því krónan mjög ódýr í verði (þ.e.
erlendur gjaldeyrir var dýr) og því
fengu þeir sem þá tóku erlend lán
tiltölulega margar krónur er þeir
skiptu erlendum lánum sínum í
krónur. Er líður á þetta ár leita
línurnar fyrir erlendan lánskostnað
síðustu I 2, 24 og 36 mánuði saman og
munurinn hverfur— enda er ekki ýkja
mikill munur á raungengi krónunnar á
síðari hluta áranna 1982, 1983 og
1984.
Hækkandi raungengi krónunnar
Síðara atriðið sent athygli vekur á
efri myndinni er að erlendur láns-
kostnaður í samanburði við innlendan
fer lækkandi allt tímabilið sem myndin
nær til (undantekningin er kostnaður
vegna lána sem tekin voru fyrir 24
mánuðum — af ástæðum sem raktar
hafa verið að ofan). Tölurnar frá maí
1985 til september 1985 eru áætlaðar
með því að reikna með óbreyttum
LIBOR vöxtum á viðkomandi mynt-
um og óbreyttu gengi krónunnar frá
því sem skráð var í apríllok. Enn-
fremur var spá um lánskjaravísitölu á
þessu mánuðum lögð til grundvallar
(sjá Vísbendingu 28. nóvembersl.)
Lækkandi kostnaður vegna erlendra
lána í samanburði við innlend lán
stafar aö sjálfsögðu af hækkandi
raungengi krónunnar. Það að vextir
umfram lánskjaravísitölu af erlendum
lánum stefna í um 2 til 4% í september
nk. er að sínu leyti til marks um að
raungengi krónunnar sé orðið fullhátt.
Ef gengi allra (viðkomandi) gjaldmiðla
réðist þannig að kaupmáttarhlutföll
Raunvextir í nokkrum
nágrannalandanna
% á ári
Nafnvextir Raunvextir
Bandaríkin 12,09 8,2
Bretland 10,56 5,3
Danmörk 13,74 7,7
Finnland 10,91 4,4
Frakkland 12,25 5,4
Holland 7,93 5,3
italia 13,22 4,3
Japan 7,19 4,5
Noregur 12,00 6,0
Sviss 4,91 1,4
Sviþjóö 13,23 5,5
Þýskaland 7,71 5,3
Heimild: World Financial Markets, Morgan Guaranty
Trust.
gjaldmiðla röskuðust ekki væru sömu
raunvextir af lánum í hverjum gjald-
miðli í öllum löndum (el' raunvextir
væru 5% í Bandaríkjunum væru þá
einnig 5% raunvextir af dollaralánum
hér á landi). Gengi gjaldmiðla ræðst þó
sjaldnast þannig að kaupmáttarhlut-
föll gjaldmiðla raskist ekki. Engu að
síður er hætt við að misvægi skapist á
fjármagnsmarkaði þegar erlend lán
eru orðin mun ódýrari en innlend lán
— vegna gengisþróunar. Taflan sýnir
raunvexti í nokkrum viðskiptaland-
anna. Nafnvextir eru vextir af lang-
tímaríkisskuldabréfum í viðkomandi
löndum í lok febrúar sl. og miðaðer við
verðbólgu á tólf mánuðunum þar á
undan.
Erlendir vextir
Aðferðin umfram hækkun lánskjaravísitölu
Þegar tölur þær um erlendart lánskostnað Allar tölur umreiknaðartil ársvaxta i %.
umfram breytlngar lánskjaravísitölu sem birst April 1985.
hafa í Vísbendingu síðan í nóvember 1984 eru dollarar sv. frankar þýsk mörk yen
reiknaðar er fyrst gert ráð fyrir því aó erlend lán .dollarar
hafi verið tekin fyrir 12, 24 og 36 mánuðum i siðustu 12 mán. 23
fjórum myntum, dollurum, svissneskum frönkum, síðustu 24 mán. 10
þýskum mörkum og yenum. 1 hverjum mánuði bíöustu 36 Itlúf).
eru reiknaðir áfallnir vextir og er þá miðað við ■
LIBOR vexti af lánum til þriggja mánaða og einu 12 1
þrósenti bætt ofan á þá. Vextir íiok mánaðar eru 2 -6
látnir gilda fyrir næsta mánuð og breytast því síðustu 36 mán. 10 2
vextir mánaðarlega.
1 lok tímabilsins (þ.e. 12, 24 og 36 mánuðum þýsk mörk
eftir að iánin voru tekin) er reiknuð hækkun síðustu 12 mán. 13 2 4
höfuðstóls vegna áfallinna vaxta og vegna síöustu 24 mán. 2 -6 -5
gengisbreytinga og siðan er reiknað hve mikil sú síðustu 36 mán. 11 3 4
hækkun er umfram hækkun lánskjaravísitölu á yen
sama tima og sú hækkun umreiknuð til ársvaxta. síðustu 12 mán. 14 4 5 6
Þessi reikningar eru gerðir fyrir lán i hverri síðustu 24 mán. 7 -1 -1 4
myntum um sig, hverjum tveimur saman og loks í siðustu 36 mán. 16 7 8 12
öllum fjórum myntunum saman. Þegar reiknað er
með lánum ímeira en einni mynt miöast vogir við Allar myntir saman, fproungur i hverri: sidustu 72 mán.: 8,5%
gengi gjaldmióla eins og það var i lok desember síðustu 36mán.: 9,2%
1983. Síðustu 12 mán. eiga við tímabilið apríl '84 til apríl '85, síðustu 24 mán. við
tímabilið apríl '83 tilapril '85, o.s.frv.