Vísbending


Vísbending - 13.11.1985, Blaðsíða 2

Vísbending - 13.11.1985, Blaðsíða 2
VISBENDING 2 Nokkur af helstu sjónarmiðum við álagningu skatta Skattarnir hlaðast upp í tímans rás hafa skattprósentur verið hækkaðar og nýir skattstofnar verið fundnir upp til að auka tekjur ríkissjóðs þegar illa horfir. Oft hefur fyrst og fremst verið haft að leiðarljósi að minnka hallarekstur ríkissjóðs með auknum tekjum án tillits til skil- virkni í skattlagningu eða hagkvæmni við innheimtu. Vegna tímaskorts, stórnmálalegs þrýstings og málamiðl- unar milli flokka hefur ekki verið færi á að gæta að þeim almennu skilyrðum sem sköttun þarf að hlíta til að tekju- öflunin fari ekki úr böndunum. Helstu almennu skilyrðin við skatt- lagningu eru að skattar séu réttlátir, að innheimtan sé hagkvæm og álagn- ingin auðskilin þeim sem greiða og loks að skattar séu hlutlausir þannig að þeir hvetji hvorki einstaklinga né fyrirtæki til að haga sér öðruvísi en ef skattlagningin væri ekki til staðar. Skattgreiðendur eru að jafnaði ófúsir til að greiða opinber gjöld. Tregðan stafar af því að fólk veit ekki hvað það er sem það er að fá fyrir peningana og óttast jafnvel að ekki sé haldið nógu vel á hjá hinu opinbera. Með skattheimtunni glatast það að- hald sem alltaf er þegar launamaður- inn sjálfur ráðstafar kaupi sínu og veit hvað hann fær fyrir hverja krónu. Úr því að ekki er unnt að skattleggja eftir notum af opinberri þjónustu er auð- skilið að sótt sé þangað sem auðveld- ast er að ná í peningana hverju sinni. Þannig vill það verða að skattar hlað- ast hver ofan á annan, þeim fjölgar úr hófi og freistast er til að hækka skattprósentur í stað þess að leggja áherslu á að stækka skattstofna. Markmiö og skilyrði skattlagningar Markmið skattlagningar er að sjálf- sögðu fyrst og fremst að afla tekna til umsvifa ríkisins. í flestum ríkjum hafa stjórnvöld einnig leitast við að beita skattkerfinu til tekjujöfnunar. Þannig er mönnum með háar tekjur gert að greiða hlutfallslega hærri skatta en fólki með lágar tekjur jafnvel þótt þeir si'ðarnefndu njóti opinberrar þjónustu í ríkari mæli en þeir fyrr- nefndu. En stighækkandi skattarhafa mikil áhrif á efnahagslífið önnur en þau að jafna tekjur. Þeir draga úr hvata til að vinna, gera betur og afla hærri tekna. Há skattþrep verðaeinn- ig til þess að einstaklingar og fyrir- tæki leita leiða til að komast hjá því að greiða skatta eins og þeim ber lögum samkvæmt. Einnig geta skattar sem í eðli sínu eru hlutlausir tekið að virka með eða á móti tekjujöfnun. Þannig má búast við að söluskattur, sem nú er orðinn 25%, þ.e. fimmtungur af verði þeirrar vöru og þjónustu sem hann leggst á, sé farinn að vinna gegn tekjujöfnun vegna þess að fólk með lág laun þarf að verja miklu hærri hluta teknasinna til kaupa á söluskattsskyldum vörum og þjónustu en þeir sem tekjuhærri eru. Annað meginskilyrði sem skatt- heimta þarf að uppfylla er að hún sé einföld og auðskilin þannig að ekki komi til ónauðsynlegs kostnaðar við innheimtu og flóknar og snúnar reglur valdi ekki vondum skattskilum. í þriðja lagi þarf að gæta að því að skattkerfið sé hlutlaust í þeim skiln- ingi að álagning skatta verði ekki til þess að einstaklingur eða fyrirtæki taki að hegða sér öðruvísi en án skattsins. Með hlutleysisskilyrðinu er ekki verið að staðhæfa að lausn mark- aðarins sé fullkomin, þ.e. að besta hugsanleg skipting tilfanga í þjóðar- búskapnum sé sú er felst í markaðsbú- skap án íhlutunar. í skilyrðinu um hlutleysi skatta felst hins vegar sú trú að lausn markaðarins sé að jafnaði best og sjaldnast sé á færi hins opin- bera að bæta hana. Með hlutleysi skattlagningar er því reynt að gera ekki upp á milli atvinnugreina og fyrirtækja með álagningu opinberra gjalda — eða skattfrádrætti eða styrkj- um hér og ekki þar, eftir byggðarlög- um, landshlutum, vörutegundum, starfstéttum, kynjum eða tekjuhóp- um. Með því að leitast við að hafa skattlagningu hlutlausa raskar ríkið eðlilegri starfsemi atvinnulífsins minnst og dregur þar með minnst úr hagvexti og batnandi lífskjörum í landinu. Framhald af bls. 1 Innheimta tekjuskatts sem tekinn væri með einni prósentu af öllum launum um leið og þau eru greidd yrði vissulega mun einfaldari en það kerfi sem við búum við nú. Vegna þess að slíkur skattur er einfaldur, auðskil- inn, réttlátur og hlutlaus er hvatinn til skattsvika minni en nú. Auk þess yrði allt eftirlit svo auðvelt að ekki er ástæða til að reikna með umtalsverð- um skattsvikum. Samtímainnheimta jafns tekjuskatts Myndin sýnir að allt frá árinu 1978 hafa samanlagðir skattar einstaklinga til ríkisins og sveitarfélaga aldrei ver- ið hærri en 13,1% af tekjum á greiðsluári. Á árinu 1986 er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi að skattar einstaklinga til ríkisins sem hlutfall af tekjum á greiðsluári (þ.e. skattar vegna ársins 1985) verði 3,8%. Skattar einstaklinga til sveitarfélaga í ár eru 7% af tekjum greiðsluárs og yrðu samanlagðir skattar einstaklinga til ríkis og sveitarfélaga innan við 11 % af tekjum þess árs ef það hlutfall héldist óbreytt á næsta ári. Útsvarið er þegar jafn skattur og væri tekju- skattur það einnig nægði því 11% skattur á tekjur til að ná sömu tekjum ríkis og sveitarfélaga og áætlað er að afla ef ekki er tekið tillit til frádráttar- liða og miðað er við samtímagreiðslu tekjuskatts og útsvars. Frádráttur verður að vera jafn einfaldur og skatt- urinn sjálfur - ef til vill aðeins einn liður sem færi eftir fjölskyldustærð. Þannig er hugsanlegt að 15% skattur á tekjur með samtímagreiðslu nægði til að afla ríki og sveitarfélögum þeirra tekna sem nú fást með tekju- skatti og útsvari. Þá er ekki tekið tillit til þess að tekjur ykjust væntanlega verulega vegna mun betri skattskila og auðveldari innheimtu og eftirlits. Með þessu móti mætti hugsanlega auka hlutfall tekjuskatta í tekjuöflun ríkisins nokkuð og draga um leið úr hlut söluskatts eða virðisaukaskatts.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.