Vísbending - 25.02.1987, Qupperneq 1
VÍSBRNDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL_
8.5 25. FEBRÚAR1987
Gjaldeyrismarkaður
Þróun á gjaldeyrismarkaöi
Viðskiptajöfnuður helstu iðnríkja
hagstæður
Helstu ástæður hins mikla óstöðug-
leika sem ríkt hefur á alþjóðagjald-
eyrismörkuðum undanfarið eru í
reynd mjög margvíslegar. Meðal
atriða sem skipta verulegu máli þegar
staða einstakra mynta er skoðuð er
auðvitað viðskiptastaða viðkomandi
landa gagnvart öðrum löndum. Tafl-
an hér á síðunni sýnir einmitt við-
skiptajöfnuð helstu iðnríkjaárin 1984
og 1985 ásamt stöðunni á þremur síð-
ustu ársfjórðungum.
Eins og kemur fram í töflunni þá
hefur samanlögð staða viðskiptajafn-
aðar þessara ríkja batnað allverulega
og er nú reyndar hagstæð í fyrsta sinn
frá árinu 1984 a.m.k. Þó má segja að
þessi staðreynd breyti litlu þegar
kemur að því að skoða nánar innri
stöðu ríkjanna sem auðvitað skiptir
meginmáli hvað varðar þær væringar
sem verið hafa á alþjóðagjaldeyris-
mörkuðum. Þannig var viðskiptajöfn-
uður Bandaríkjanna óhagstæður um
107 miljarða Bandaríkjadollara árið
1984 og 118 miljarða árið 1985. Á
síðasta ári hefur verið áætlað að við-
skiptajöfnuður landsins verði óhag-
stæður um 170 miljarða Bandaríkja-
dollara. Á sama tíma hefur t.d. við-
skiptajöfnuður Japana verið hagstæð-
ur. Árið 1984 var hann hagstæður um
35 og 1985 um 49 miljarða. Áætlanir
fyrir 1986 benda til þess að hann verði
hagstæðari en nokkru sinni fyrr eða
OECD lönd Kanada 3 -2
Frakkland -1 1
Pýskaland 7 14
Ítalía -3 -4
Japan 35 49
Bretland 1 4
Bandaríkin -107 -118
Helstu iðnríki -65 -56
Önnur OECD lönd -2 -3
OECD samtals -67 -59
um 82 miljarða dollara. Það sama má
segja að gildi um t.d. Þýskaland.
Fjármagnsflæði á síðasta ári ein-
kenndist mjög mikið af aukinni fjár-
festingu í verðbréfum innan Banda-
ríkjanna og þá ekki hvað síst frá
öðrum aðilum en Bandaríkjamönnum
sjálfum. Fjármagnsflæði vegna fjár-
festinga Japana á verðbréfum í
Bandaríkjunum jókst t.a.m. verulega.
Segja má að tvennt hafi komið til; í
fyrsta lagi væntingar um að vextir í
Bandaríkjunum færu lækkandi og í
öðru lagi væntingar um að verð á
vaxtabréfum í Bandaríkjunum færu
hækkandi. I öðrum löndum eins og
Þýskalandi einkenndist fjármagns-
flæði bankakerfisins af mjög mikilli
aukningu útlána og þá sérstaklega á
fyrstu þremur ársfjórðungum 1986
sem svarar til um 13 miljarða Banda-
ríkjadollara samkvæmt nýútkominni
ársfjórðungsskýrslu enska seðlabank-
ans. Á móti þessu þá varð á sama tíma
verulega aukning innlána hjá þýskum
bönkum og þá sérstaklega vegna fjár-
festinga í verðbréfum, líkt og varð í
Bandaríkjunum. Samtals nam þessi
innlánsaukning 16 miljörðum dollara
í Þýskalandi.
Gengi helstu mynta á nýbyrjuðu ári
á alþjóðagjaldeyrismörkuðum
Sú þróun sem átti sér stað allt
síðastliðið ár á alþjóðagjaldeyris-
mörkuðum, þ.e. lækkun gengis
Bandaríkjadollara gagnvart helstu
myntum meginlands Evrópu auk jap-
-1 -1 -2 -1 -3
- -1 1 - -2
4 4 8 8 11
2 -1 -2 - -3
13 15 15 22 26
1 1 1 1 -1
-28 -34 -34 -34 -36
-9 -15 -13 -4 2
- -1 - -2 4
-9 -16 -13 -2 6
anska yensins, hefur það sem af er
þessu ári haldið áfram. Meðfylgjandi
myndir sýna gengi dollara gagnvart
þýsku marki og japönsku yeni eins og
það var skráð hjá Seðlabanka íslands
og birtist vikulega í Vísbendingu og
svo eins og gengisskráningin birtist
í Wall Street Journal fyrir sömu
daga en sú skráning er fengin á gjald-
eyrismörkuðunum í New York auk
þess er líka gengi dollara miðað við
pund eins og það var skráð hjá sömu
aðilum fyrir sama tímabil. Eins og
myndirnar bera glöggt með sér hefur
dollarinn haldið áfram að síga gagn-
vart þessum myntum það sem af er
árinu. Frá því í byrjun ársins þá
hefur dollarinn lækkað um tæp 5%
gagnvart þýsku marki ef miðað er við
fyrsta dag ársins sem gengið var skráð
og þann síðasta sem hér er sýndur.
Gagnvart hinum myntunum sem hér
eru sýndar þá hefur dollarinn lækkað
aðeins minna gagnvart þeim eða um
2.3% gagnvart pundi og tæp 2,7%
gagnvart japönsku yeni. Ástæða þess
að fall dollarans hefur verið minna
gagnvart pundi og yeni en gagnvart
marki eru ýmsar. Hér er vert að
minnast á það að eflaust gætir enn
nokkurra áhrifa frá fundi og sam-
komulagi Bakers og Miyazawa, fjár-
málaráðherrum Bandaríkjanna og
Japans, frá því í haust sem leið en þá
gerðu þjóðirnar með sér samkomulag
sem miðaði að stöðugri gengisskrán-
Efni;
Gjaldeyrismarkaður:
Óvíst hvort jafnvægi náist 1
Olíumarkaðurinn 2
Töflur:
Eurovextir 4
Gengi helstu gjaldmiðla 4
Gengi íslensku krónunnar 4
Fylgirit:
Febrúar 1987
Viðskiptajöfnuður í helstu iðnríkjum
1984 1985 1985 1986
3.ársfj. 4.ársfj. I.ársfj. 2.ársfj. 3.ársfj.
Heimild: Englandsbanki