Vísbending - 25.11.1987, Side 1
VÍSBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL_
37.5 25. NÓVEMBER 1987
Gengismál
Fastgengisstefna kallar á nýja aðlögun að breyttum ytri aðstæðum
Evrópska gjaldeyriskerfið
Lækkun dollaragengis undanfarn-
ar vikur hefur eðlilega komið nokkru
róti á gjaldeyrisviðskiptin í heiminum
og jafnvel ýtt undir getgátur um að
evrópuríkin átta, sem mynda Evr-
ópska gjaldeyriskerfið, kunni áður en
langt um líður að stokka upp gengi
mynta sinna hvert gagnvart öðru.
Almennt er talið að gengi ítölsku lír-
unnar, dönsku krónunnar, franska og
belgíska frankans standi höllum fæti,
en v-þýska markið og hollenska gyll-
inin standi aftur betur að vígi. Nú
þegar er verðbólguhraðinn meiri í
Danmörku, Ítalíu og Frakklandi en
t.d. í V-Þýskalandi og Hollandi, sem
raskar samkeppnisstöðu landanna að
öðru óbreyttu.
Evrópska gjaldeyriskerfið, EMS,
byggir á samkomulagi átta ríkja inn-
an Evrópubandalagsins um að breyt-
ingar á gengi myntanna megi ekki
verða meiri en 2.25% upp eða niður
frá viðmiðunargengi. Gengi ítölsku
lírunnar má þó sveiflast upp og niður
um 6%. Enn sem komið er eru
Bretar utan þessa kerfis, en þess er
vænst að þeir telji sér hag í því að
slást í hópinn fyrr en seinna til að
njóta betur þess stöðugleika sem
svona gjaldeyrissamvinna býður upp
á.
Uppstokkun af því tagi sem sumir
þykjast nú sjá fyrir er ekki talin fela í
sér neinar stökkbreytingar, eða á bil-
inu 1- 3%, til eða frá, og í þau til-
tölulega fáu skipti sem slíkt hefur
gerst hafa breytingar verið fremur
litlar. EMS kerfið virðist þannig hafa
fest sig bærilega í sessi og upp að
vissu marki hefur viðmiðun við eina
mynt innan kerfisins jafngilt viðmið-
un við aðra.
Samvinna evrópuríkjanna átta í
gjaldeyrismálum undirstrikar fyrst og
fremst hversu mikilvægan þau telja
stöðugleika í gengismálum vera fyrir
efnahagslíf landanna. En stöðugt
gengi þýðir jafnframt að efnahags-
stefna ríkjanna verður að vera vel
samræmd. Það gengi ekki til lengdar
fyrir eitt aðildarríkið að halda uppi
þenslusamri peningamála- eða ríkis-
fjármálastefnu. Og það gengi ekki
heldur að semja um hærri laun en
verðmætasköpun gefur tilefni til.
Annars stæðu þjóðir frammi fyrir
viðskiptahalla, erlendri skuldasöfnun
og verðbólgu, sem veikja sam-
keppnisstöðuna og draga úr hagvexti
og lífskjörum þegar til lengri tíma er
Iitið. Stöðugt gengi er þannig í aðra
röndina tæki til að veita efnahags-
starfseminni visst aðhald.
Fastgengisstefnan á íslancH
Á íslandi hafa stjórnvöld um
nokkurra ára skeið lýst því yfir að
þau stefndu að því að halda gengi
krónunnar stöðugu. Þetta gekk
brösuglega framan af, því þrátt fyrir
yfirlýsingarnar seig krónan eitthvað
þegar raungengið reyndist vera orðið
hátt og viðskiptahallinn hættulega
mikill. Frá ársbyrjun 1987 hefur hins
vegar tekist að halda gengi krónunn-
ar stöðugu án þess að viðskiptin við
útlönd hafi versnað verulega, þrátt
fyrir rúmlega 20% verðbólgu og
lækkandi gengi dollars. Þetta hefur
ullariðnaðurinn, sem selur mest í
dollurum, fengið að kenna á, en fisk-
iðnaðurinn síður vegna þess hve
verðhækkun á fiski í Bandaríkjunum
hefur verið mikil. í ljósi væntanlega
versnandi ytri skilyrða er það því
ekki fyrr en á næstu mánuðum sem
fer virkilega að reyna á fastgengis-
stefnu stjórnvalda og jafnframt á það
hvort slíkar stefnuyfirlýsingar muni
reynast trúverðugar í framtíðinni.
Með fastgengisstefnu sinni hafa
stjórnvöld viljað láta það berast til
aðila vinnumarkaðarins að þeir semji
um laun sem taki mið af þeim skil-
yrðum sem fast gengi setur þeim.
Þetta er ekki svo erfitt þegar ytri að-
stæður eru hagstæðar útflutnings-
greinum, en verður vandasamt þegar
t.d. gengi gjaldmiðilsins í Iandi kaup-
andans fellur.
Aðlögun að lakari aðstæðum ererf-
ið af ýmsum ástæðum. Fyrirtæki hafa
t.d. vanist því að kostnaðarhækkun-
um væri mætt með gengislækkunum
þegar illa áraði og til raunir til sveiflu-
jöfnunar í sjávarútvegi hafa verið á
vegum stjórnvalda en ekki fyrirtækj-
anna sjálfra. Þau eru þess vegna ekki
eins viðbúin samdrætti og þau gætu
verið. Það kann þó að vera ekki síður
mikilvægt í þessu sambandi, að laun
taka ekki nægilega mikið mið af af-
komusveiflum fyrirtækja. Laun
hækka gjarnan þegar vel árar, en
lækka ekki þegar illa gengur nema
hugsanlega óbeint vegna þess að
verðlag hækkar meira en launin. í
Vísbendingu sem út kom þann 7. okt-
óber reifaði dr. Guðmundur Magnús-
son hugmyndir um hlutaskipti þar
sem laun taka mið af afkomu fyrir-
tækja og á síðu 4 í þessu blaði gerir dr.
Þorvaldur Gylfason grein fyrir sínum
skoðununi á þessu sviði. Báðar eru
greinarnar framlag til umræðu um
aðlögunarvanda íslenskra fyrirtækja
sem brýnt er að taka á.
FG
,. . . _ . :
Efni:
Gengismál: Fastgengisstefna kallará nýja aðlögun að breyttum ytri aðstæðum 1
Um hlutverk nytja- heimspeki i viðskiptum og öðrum atvinnugreinum 2-3
Skipulagsvandinn á vinnumarkaðnum 4