Vísbending


Vísbending - 25.11.1987, Page 2

Vísbending - 25.11.1987, Page 2
VISBBNPING 2 Mikael M Karlsson dósent Um hlutverk nytjaheimspeki í viðskiptum og öðrum atvinnugreinum Leit frú Dúgan Fyrir nokkrum árum birti banda- rískt tímarit skopteikningu, sem síðan hefur farið víða. Hún sýnir hóp áhyggjufullra viðskiptajöfra um- hverfis fundarborð. Einn þeirra er að ræða við ritara sinn um kallkerfið: “Frú Dúgan,“ segir hann, “viltu gjöra svo vel að senda inn einhvern sem þekkir muninn á réttu og röngu.“ Þessi skopteikning minnir á til- hneigingu sem er rík í samfélaginu í dag. Fólk í ýmsum atvinnugreinum: fjölmiðlun, kennslu, heilbrigðisþjón- ustu, lögfræði, stjórnmálum, og ekki sízt í viðskiptum, gerir sér í vaxandi mæli grein fyrir siðferðilegum vanda- málum, sem ýmist eru beinlínis sprottin af starfi þess, eða tengjast at- vinnu þess á annan hátt. Það gerir sér líka grein fyrir að oft nægir hvorki starfsþjálfun né reynsla í starfi til þess að takast á við slík vandamál. Þessu fylgir sú óskhyggja að það hljóti að vera til sérfræðingar sem geti leyst þessi vandamál, ef okkar kæra frú Dúgan gæti fest á þeim hendur. Þessar tilfinningar verða hér eftir kenndar við frú Dúgan og nefndar einu nafni: “duld frú Dúgan“. Nok'krir heimspekingar sem eink- um starfa við bandaríska háskóla hafa brugðist við duld frú Dúgan með því að skapa nýtt fræðasvið, sem má kalla “hagnýtta (ekki hagnýta) heimspeki“ eða “nytjaheimspeki" (applied philo- sophy). Þótt kerfisbundnar rann- sóknir siðferðilegra vandamála - sið- fræði - hafi auðvitað um langan aldur verið í verkahring heimspekinga, þá hafa þær rannsóknir verið fræðilegar og sértækar, en ekki bundnar tilteknu sviði siðferðilegra spurninga. Nytja- heimspeki fæst nær eingöngu við sið- ferðileg vandamál, sem upp koma í tengslum við ákveðnar starfsgreinar - þess vegna mætti jafnvel kalla hana “hagnýtta siðfræði" (applied ethics) - og eins og nafnið bendir til, er þess vænzt, að hún sé jarðbundin fremur en fræðileg. Helztu undirgreinar nytjaheimspeki í dag eru siðfræði heiíbrigðisstétta og viðskiptasiðfræði. Fyrir aðeins tuttugu árum var nytjaheimspeki ekki til sem sjálfstæð grein, og flestir heimspekingar litu hana hornauga. Nú er þetta breytt, a.m.k. í Bandaríkjunum þar sem kennd eru hundruð námskeiða í nytjaheimspeki, tugir kennslubóka í greininni hafa birzt, og hún er í örum vexti. Einn háskóli í Bandaríkjunum, Bovvling Green State University í Ohio, hefur um árabil útskrifað fólk með meistarapróf í nytjaheimspcki, og undirbýr nú doktorsnám í grein- inni. Meisturunum hefur verið tekið opnum örmum: 68% þeirra hafa fengið atvinnu í beinum tengslum við sérgrein sína í nytjaheimspeki. Svo virðist því sem frú Dúgan hafi til einhverra að leita, a.m.k. vestan hafs. Nytjaheimspeki er þó alls ekki einskorðuð við Bandaríkin. Hún virð- ist óðfluga hasla sér völl víða um heirn, sérstaklega á Norðurlöndum, þar sem sérfræðingadella er alls ráð- andi. Grunurog efi Gagnstætt duld frú Dúgan finnst mörgum - jafnvel þeim sem eru haldn- ir duldinni - að siðferðileg vandamál séu ekki, og geti aldrei verið, á sviði sérfræðinga. Er í raun til sá maður, að hann sé þess umkominn að fella dóma um rétt og rangt? Eru til nothæfar aðferðir til að leysa siðferðileg vandamál? Eru til rétt svör við spurn- ingum sem varða siðfræði? Fólk grun- ar, og það með réttu, að siðgæðis- “sérfræðingurinn" sé einfaldlega ein- staklingur sem predilti eigin smekk og fordóma sem staðfest fræði: Dæmin sem fólk hefur í huga eru skinhelgir ritskoðarar, trúboðar sem heimta að suðurhafseyjaskeggjar klæðist nær- buxum, o.fl. þessháttar. Þessar til- finningar má kalla “trúboðahræðsl- una“. Hún leiðir til þeirrar niður- stöðu að nytjaheimspeki sé byggð á fölskum forsendum og kunni að vera skaðleg. Aðrar og lærðari efasemdir koma frá hefðbundnum háskólaheimspek- ingum, sem draga í efa að heimspeki geti nokkurn tíma orðið nytjagrein: Þetta má kalla “kveinstafi hreinrækt- uðu heimspekinganna“ eða “kúrist- anna“. Röksemdafærslan til stuðn- ings þessari skoðun er of fjölþætt og flókin til þess að henni verði gerð ýtarleg skil í þessu greinarkorni; en ég tel það ómaksins vert að rekja hugs- unarferli sent rennir stoðum undir efasemdir af þeim toga. Þegar menn þekkja til fræðigreinar á einhverju ákveðnu sviði og standa andspænis vanda sem tengist því, þá er þeim eðlilegt að leita ráða og hjálp- ar hjá iðkendum þeirrar greinar. Þannig er eðlilegt að stjórnmálamenn leiti ráða hjá hagfræðingum þegar þeir eiga við efnahagsvanda að stríða, að framleiðendur málningarvöru leiti ráða hjá efnafræðingum, kennarar leiti til kennslufræðinga, og fram- kvæmdastjórar sem standa andspænis siðferðilegum vanda í fyrirtækinu leiti til siðfræðinga (þótt það sé reyndar nýtilkomiðl). Því miður eru margar fræðigreinar illa í stakk búnar til þess að gefa ráð í þeirri merkingu að beitt sé traustum fræðilegum skilningi við lausn vand- ans. Við skulum nú skoða nánar hvers vegna, og að hvaða leyti, þessu er svo farið. Sérhver “hrein" fræðigrein leitar skilnings á viðfangsefni sínu með því að finna því stað í kenningu. Kenning, í þessum skilningi, er kerfi hugtaka, röksemda og ályktana, sem gerir okkur klejft að útskýra ákveðið svið fyrirbæra. Sumar kenningar eru - í yfirfærðri merkingu - “háfleygar" (specula- tive), sem þýðir að af einhverjum ástæðum eru þær ekki nægilega stað- festar eða felldar að öðrum sviðum mannlegrar þekkingar og skilnings til þess að teljast traustar eða vel grund- aðar (grounded). Háfleygar eða ótraustar kenningar geta öðlazt traust; en hitt er algengara, að þær hafi einhverja þá smíðisgalla, sem valda því að þær öðlazt aldrei sess traustra kenninga. Þegar við höfum fundið einhverju fyrirbæri stað innan traustrar kenn- ingar segjumst við með réttu skilja það vísindalegum skilningi. Þeim skilningi getum við svo, ef til vill, beitt við lausn hagnýtra vandamála. Þá tölum við með réttu um nytjavísindi. Allar greinar nytjavísinda grundvall- ast á fræðilegum eða “hreinum" greinum, sem státa af traustum kenn- ingum. En ekki geta allar fræðigreinar státað af traustum kenningum. í raun- vísundum eru margar kenningar há- fleygar (og því ótraustar), en í heim- speki flestallar. Siðfræðin er þar engin undantekning. En sama máli gegnir til dæmis um uppeldisfræði, hagfræði, og næringarfræði sem “hreinar“ fræði- greinar. Samt vilja kennarar fá að vita hvernig þeir eigi að kenna, stjórn- málamenn hvernig þeir eigi að auka hagvöxtinn, og almenningur hvort hann eigi að taka lýsi. Vegna mikillar eftirspurnar er því freistandi að beita

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.