Vísbending - 13.04.1988, Page 2
VÍSBENDING
um er það auðvitað framboð vinnuafls
en ekki virði ráðstöfunarlauna, sem
meginmáli skiptir. Athyglin hlýtur því
að beinast að því samhengi ráðstöfun-
arlauna og vinnuaflsframboðs, sem
gildir hér á landi.
Erlendir vinnumarkaðshagfræðingar
hafa lagt kapp á að mæla samband-
ið á milli raungildis vinnulauna og
vinnuaflsframboðs og beitt til þess töl-
fræðilegum aðferðum. í löndum, sem
svipar til íslands, hvað félagsgerð og
efnahagsþróun snertir, eru niðurstöður
þeirra mælinga eindregið þær, að sam-
bandið sé jákvætt. Það merkir, að því
hærra sem raungildi vinnulauna sé,
þeim mun meira sé vinnuaflsframboð-
ið. Samkvæmt þessum mælingum,
reynist sambandið þó yfirleitt talsvert
minna en hlutfallslegt, þ.e. vaxi raun-
laun um 10% þá eykst vinnuaflsfram-
boðið yfirleitt um talsvert minna en
10%. Á tæknimáli þýðir þetta, að
svokölluð framboðsteygni vinnuafls sé
jákvæð en minni en 1.
Ekki liggja fyrir nothæfar mælingar á
framboðsteygni vinnuafls hér á landi.
Með hliðsjón af niðurstöðum slíkra
mælinga erlendis virðist þó óhætt að
gera ráð fyrir, að þessi teygni sé á bil-
inu 0-1.
Lækkun í framboði vinnuafls miðað
við mismunandi lækkun ráðstöfunar-
launa frá sjónarmiði launafólks og mis-
munandi framboðsteygni vinnuafls er
lýst í töflu 2.
Með vísan til þess, sem áður hefur
verið rakið, má gera því skóna, að upp-
taka staðgreiðslukerfisins geti lækkað
ráðstöfunarlaun frá sjónarhóli launa-
fólks um 2-5%. Á hinn bóginn gæti
framboðsteygni vinnuafls hér á landi
verið í námunda við 0.5. Séu þessar
ágiskanir nærri lagi, sýnir tafla 2, að
minnkun vinnuaflsframboðs í kjölfar
staðgreiðslunnar gæti hæglega orðið á
bilinu 1-3%. Sé framboðsteygnin hærri
og/eða lækkunin ráðstöfunarlauna frá
sjónarmiði launafólks meiri en hér hef-
ur verið nefnt, yrðu áhrifin á vinnuafls-
framboðið að sama skapi meiri.
Vinnuaflsnotkun og vinnulaun
Eins og rakið hefur verið, eru allar
líkur á því, að upptaka staðgreiðslu-
kerfis skatta muni draga umtalsvert úr
framboði vinnuafls. Á hinn bóginn er
ekki við því að búast, að notkun vinnu-
afls minnki að sama skapi. Samdráttur
í framboði vinnuafls kemur af stað ferli
aðlögunar á vinnumarkaði, sem að öll-
um líkindum mun fela í sér hvort
tveggja, minni heildarnotkun vinnuafls
og hærri vinnulaun. Hver niðurstaðan
verður nákvæmlega ræðst fyrst og
fremst af lögun eftirspurnar- og fram-
boðsfalla vinnuafls. Ef eftirspurnarfall
vinnuafls er mjög teygið (sjá mynd la)
mun vinnauaflsnotkunin fyrst og
fremst aðlagast en launabreytingar
verða litlar sem engar. Ef eftirspurn-
arfall vinnuafls er mjög óteygið (sjá
mynd lb) munu launin fyrst og fremst
aðlagast, en vinnuaflsnotkunin breyt-
ast lítið.
Hugsanlegum niðurstöðum á vinnu-
markaðnum er nánar lýst í töflum 3 og
4. Miðað er við, að staðgreiðslukerfið
þýði 5% lækkun í virði ráðstöfunar-
launa frá sjónarhóli launafólks.
Sé t.a.m. gert ráð fyrir því, að eftir-
spurnarteygni vinnuafls sé -0.5 og
framboðsteygnin 0.4 sýna töflur 4 og 5,
að vinnumarkaðurinn mun finna nýtt
jafnvægi við 1.1% minni notkun vinnu-
afls og 2.2% hærri vinnulaun en fyrir
upptöku staðgreiðslukerfisins. Þannig
sjáum við, að við þessar aðstæður taka
launagreiðendur á sig hluta af þeirri
lækkun ráðstöfunarlauna, sem launa-
fólk telur sig verða fyrir vegna stað-
greiðslukerfisins. Hluti af hinni auknu
skattbyrði kemur hins vegar fram í
minni vinnuaflsnotkun og því e.t.v.
lægri landsframleiðslu á komandi
árum.
Nokkur tími mun á hinn bóginn líða
þar til hinu nýja jafnvægi er náð. Stafar
það bæði af tregbreytanlegum samn-
ingum á vinnumarkaði og því, að það
mun eflaust taka launafólk nokkur ár
að aðlaga vinnuaflsframboð sitt fylli-
lega að hinum nýju aðstæðum stað-
greiðslukerfisins. Á meðan á aðlögun-
arskeiðinu stendur, mun vinnumarkað-
urinn einkennast af samdrætti í fram-
boði vinnuafls, sem auðveldar samtök-
um launafólks að knýja á um launa-
hækkanir. Á aðlögunarskeiðinu verð-
ur því aðstaða atvinnurekenda á vinnu-
markaðnum heldur veikari og launa-
fólks heldur sterkari en ella hefði
orðið.
Tafla 2 Hlutfallsleg læ Hlutfallsl. breyting ráðst.launa kkun vinnuaflsframboðs í kjölfar staðgre iðslu Framboðsteygni vinnuafls
0.20 0.40 0.60 0.80 1.00
0.0% 0.0% 0.0% 0.0% 0.0% 0.0%
-1.0% -0.2% -0.4% -0.6% -0.8% -1.0%
-2.0% -0.4% -0.8% -1.2% -1.6% -2.0%
-3.0% -0.6% -1.2% -1.8% -2.4% -3.0%
-4.0% -0.8% -1.6% -2.4% -3.2% -4.0%
-5.0% -1.0% -2.0% -3.0% -4.0% -5.0%
-10.0% -2.0% -4.0% -6.0% -8.0% -10.0%
Tafla 3 Ahrif staðgreiðslukerfisins á notkun vinnuafls
(Miðað við að staðgr.kerfið lækki ráðst. laun um 5%)
Eftirspurnarteygni Framboðsteygni vinnuafls
vinnuafls 0.00 0.20 0.40 0.60
0.00 0.0% 0.0% 0.0% 0.0%
-0.50 0.0% -0.7% 1.1% -1.4%
-1.00 0.0% -0.8% 1.4% -1.9%
-1.50 0.0% -0.9% 1.6% -2.1%
Tafla 4
Ahrif staögreiðslukerfisins á vinnulaun
(Miðað við að staðgr.kerfið lækki ráðst.laun um 5%)
Eftirspurnarteygni Framboðsteygni vinnuafls
vinnuafls 0.00 0.20 0.40 0.60
0.00 * 5.0% 5.0% 5.0%
-0.50 0.0% 1.4% 2.2% 2.7%
-1.00 0.0% 0.8% 1.4% 1.9%
-1.50 0.0% 0.6% 1.1% 1.4%
* Ekki reiknanlegt.
2