Vísbending


Vísbending - 27.07.1988, Page 1

Vísbending - 27.07.1988, Page 1
VIKURIT UM VIÐSKIPTIOG EFNAHAGSMÁL 29.6 27. JÚLÍ1988 BARATTA FJÖGURRA ÞJÓÐA VIÐ ÓÐAVERÐ- BÓLGU; SAMAN- BURÐUR / fjórum löndum á árunum 1985 og 1986 var með viðamiklum efnahagsað- gerðum ráðist til atlögu gegn óðaverð- bólgu. Löndin voru Argentína, Bólivía, Brasilía og ísrœl og höfðu öll þá tneira en 250% verðbólgu. Nú tveim- ur til þremur árum síðar virðist sem að aðgerðirnar hafi heppnast í aðeins tveimur þessara landa, þ.e. í Bólivíu og ísrœl. Tímaritið “The Economist“ gerði nýlega samanburð á reynslu þjóð- anna fjögurra og dregur af henni vissar ályktanir. Að rjúía vítahringinn________________ “Economist“ gerir greinarmun á tvenns konar kenningum sem uppi eru um það hvernig ráða skuli niðurlögum verðbólgu. Önnur gengur út frá því að verðbólgan viðhaldist af sjálfri sér; allt sé meira og minna vísitölubundið og verðbólguvæntingar sjá til þess að vítahringurinn haldi áfram. Fólk venj- ist tilteknu verðbólgustigi og miði allar sínar gerðir við það. Spurningin um að ráða niðurlögum verðbólgu snúist þess vegna um það hvernig breyta megi væntingum fólks. Og áhrifamesta leið- in til þess er sú að beita verð- og launa- stöðvunum um tiltekinn tíma. Sam- kvæmt þessari kenningu helgast aðgerðirnar af því að þær eru tiltölu- lega sársaukalitlar og ættu ekki að voru settar í gang í júní árið 1985, en þá var verðbólga meira en 1000%. Að- gerðirnar fólu í sér verð- og launa- stöðvun auk þess sem dregið var úr ríkisútgjöldum. Þá var nýr gjaldmiðill tekinn í notkun (austral), sem var tengdur dollar. Ári síðar var verðbólg- Veröbólga -breyting frá fyrra ári ----Efnahagsaðgerðir leiða til samdráttar og atvinnuleysis. Hin aðferðin til að ráða niðurlögum verðbólgu felst í því að beita aðhalds- samri peninga- og ríkisfjármálastefnu. Þá er reynt að draga úr eftirspurn eftir peningum með því að hækka vexti og jafnframt stefnt að hallalausum ríkis- búskap. Það fylgir sögunni að þessi að- ferð hafi oft í för með sér atvinnuleysi og tímabundinn samdrátt. Að sögn “Economist“ fylgdu Argentína, Brasilía og ísræl fyrri aðferðinni, en Bólivía þeirri síðari. Argcnlína___________________________ Efnahagsaðgerðirnar í Argentínu an komin niður í 80% án þess að drægi úr hagvexti. En þetta reyndist vera skammgóður vermir. Þrátt fyrir endurnýjaða verð- og launastöðvun tók verðbólgan að vaxa á ný og er nú komin upp í 322%. Ástæðurnar fyrir því að svo fór sem Efni: • Barátta fjögurra þjóða við óðaverðbólgu • Miiljón á mann • Erlend fréttabrol

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.