Vísbending


Vísbending - 04.01.1990, Blaðsíða 3

Vísbending - 04.01.1990, Blaðsíða 3
VÍSBENDING SKATT- LAGNING VAXTA- TEKNA OG VERÐ- TRYGGING Dr. Þorvaldur Gylfason Ríkisstjórnin hefur í hyggju að leggja skalt á raunvexti af sparifé, eins og komið hefur fram í fréttum. Málsvarar stjórnarinnar hafa haldið því fram, að þessi skalllagning muni ekki draga úr innlendum sparnaði. Fjármálaráðherra hefur til dærnis fullyrt það opinberlega, að áhyggjur ntanna af minnkandi sparnaði séu ástæðulausar, eins og sjá megi af því, að sömu rnenn lýsi áhyggjum af hækkandi vöxtum vegna skattlagningarinnar! Raunvextir fyrir og eftir skatt Ráðherrann ITaskaði á einföldu atriði. Hann ruglaðist á raunvöxtum fyrir og eftir skatt, rétt eins og margir aðrir áhrifamiklir stjórnmálamenn halda áfram að ruglast á nafnvöxtum og raunvöxtum. Skattlagning raun- vaxta af sparifé hœkkar vexti að ógreiddum skatti og hækkar þar með lántökukostnað heimila og fyrirtækja, en lœkkar vexti að greiddum skatti og dregur þannig úr sparnaðarvilja alntennings, ef vextir hafa áhrif á sparnað á annað borð. Ef ríkisstjórnin er ákveðin í að leggja skatt á raunvexti af sparifé af einhverjum ástæðum, þá eiga málsvarar hennar ekki að réttlæta þá ákvörðun með því að þræta fyrir það, að skattlagningin dragi úr sparnaði. Þeir ættu frekar að viðurkenna það, að sparnaður hljóti að dragast sarnan að öðru jöfnu, en færa þá jafnframt skynsamleg rök að því, að skatt- lagningin sé æskileg eða nauðsynleg til þess að ná öðrum markmiðum, sem séu mikilvægari en að standa vörð um sparifé þjóðarinnar. Þeir ættu sem sagt að viðurkenna það vafningalaust, að ríkisstjórnin tekur skattlagningu sparifjár (til dærnis í því skyni, að fjármagnstekjur séu skattlagðar með sarna hætti og launatekjur) fram yfir eflingu sparnaðar og viðnárn gegn verðbólgu. Mislagðar hendur Jafnvel þótt viðnám gegn verðbólgu sé efst á stefnuskrá ríkissljórnarinnar enn sem fyrr, heldur stjórnin áfram að taka ýmsar ákvarðanir, sem stuðla að áframhaldandi verðbólgu. Fyrirhuguð skattlagning sparifjár er aðeins eitt dæmi af ntörgum. Breyling lánskjaravísitölunnar á síðasta ári er annað dæmi, en sú breyting skerti raunverulega ávöxtun sparifjár veru- lega, enda var það lilgangurinn að létta vaxtabyrði skuldara. Auk þess er verðbólga vanmetin með nýju láns- kjaravísitölunni, þannig að raunvextir virðast vera hærri nú en þeir eru í raun og veru. Vísitölubinding fjárskuld- bindinga er með öðrum orðum hætt að fela í sér fulla verðlryggingu. Og sparifé heldur áfram að brenna upp í bönkunum. Innstæður á tékka- reikningum og almennum sparisjóðs- bókum rýrnuðu um 3 milljarða króna í fyrra vegna verðbólgu. Þessi spari- fjárrýrnun jafngildir 50.000 króna skatti á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu að jafnaði. Þessu fé er varið til þess að greiða niður útlán og viðhalda margvíslegri óhagkvæmni í bankarekstri. Og nú boðar forsætis- ráðherra afnám vísitölubindingar sparifjár í þokkabót án þess að sýna nokkurn skilning á því grundvallar- atriði, að efling innlends sparnaðar er forsenda þess, að hægt sé að ná verðbólgunni niður til frambúðar. Vandinn hér er sá, að of rnargir íslenzkir stjórnmálamenn gæta ekki nógu vandlega að innbyrðis samhengi hlutanna. Þeir segjast vilja ná tökurn á verðbólgunni til þess að treysta rekstrargrundvöll atvinnuveganna, en laka samt sem áður ákvarðanir, sem hafa þveröfug áhrif. Þetta er gamall vandi. Hver ríkisstjórnin á eftir annarri hefur barizt gegn verðbólgu í orði kveðnu, en knúið hana áfrarn engu að síður með óskynsamlegri stefnu í nkisfjármálum, peningamálum og skipulagsmálum atvinnuveganna. Þess vegna er verðbólguvandinn óleystur enn. Og þess vegna halda skuldir okkar við útlendinga áfrant að hrannast upp. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar, sem nú hefur verið samþykkt á Alþingi, munu erlendar langtímaskuldir þjóðarinnar hækka upp í 53% af þjóðartekjum í árslok 1990, en þær nárnu 41% af þjóðartekjum í árslok 1988. Samkvæmt þessu verður skuldin kornin upp í urn 700.000 krónur á hvert ntannsbarn í landinu í árslok 1990 borið saman við rösklega 400.000 krónur tveim árum fyrr. Þvílík skuldasöfnun gæti að vísu verið réttlætanleg, ef öllu lánsfénu væri varið til arðvænlegrar fjárfestingar, en því er ekki að heilsa nú. Vísitölubinding Nú kann einhver að spyrja: er innbyrðis samhengi í því að rnæla með verðtryggingu sparifjár, en gegn vísitölubindingu launa við núverandi aðstæður? Svarið er já. Þessar tvær skoðanir stangast alls ekki á, þvert á móti. Astæðan er einföld. Hún er sú, að viðnánt gegn verðbólgu er mikil- vægasta markmið stjórnvalda í efna- hagsmálum nú. Verðtrygging sparifjár stuðlar yfirleitt að minni verðbólgu nteð því að efla sparnað. Afram- haldandi bann við vísitölubindingu launa stuðlar líka að minni verðbólgu nú með því að draga úr víxlhækkununt kaupgjalds og verðlags. Þess vegna á verðtrygging sparifjár rétt á sér við núverandi aðstæður í íslenzku efnahagslífi, en vísitölubinding kaup- lags ekki. Þegar verðbólgan hefur verið kveðin niður, verður tímabært að leiða hugann að öðrum valkostum, fyrr ekki. Það er alkunna, að vísi- tölubinding hefur bæði kosti og galla við eðlilegar aðstæður, hvort sent er á peningamarkaði eða vinnumarkaði. Reyndar má færa gild rök að því, að bezt sé að binda hvorki vexti né kauplag við verðvísitölur og stuðla með því móti að sem mestum sveigjanleika raunvaxta og kaupmáttar launa í því skyni að draga úr sveiflum í fjárfestingu, atvinnu og framleiðslu, en þá þarf verðlag að vera sæmilega stöðugt og hafa haldizt sæntilega stöðugt um nokkurt skeið. Það er nægur tími til stefnu. Við eigum langt í land.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.